Morgunblaðið - 14.12.2013, Side 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Í rannsókn Hagstofu Íslands á út-
gjöldum heimilanna á árunum 2010-
2012 kemur fram að heimili ein-
hleypra eru 37% heimila á höfuð-
borgarsvæðinu. Í öðru þéttbýli er
hlutfallið 25,2% og 26,1% í dreifbýli,
líkt og sýnt er á grafi hér fyrir ofan.
Landsmeðaltalið var 32,9%.
Til samanburðar var landsmeðal-
talið 26,9% á árunum 2000-2002. Ein-
hleypur í rannsókninni er sá sem býr
einn, óháð hjúskaparstöðu. Síðan
sambærileg könnun var fyrst gerð
um aldamótin hefur hlutfall heimila
einhleypra verið hærra á höfuðborg-
arsvæðinu en á öðrum landsvæðum.
Samkvæmt rannsókninni er meðal-
stærð heimilis 2,4 einstaklingar.
Að sögn Heiðrúnar Eriku Guð-
mundsdóttur, deildarstjóra vísitölu-
deildar á Hagstofunni, veitir Rann-
sókn á útgjöldum heimilanna
2010-2012 mikilvægar upplýsingar
um neyslumynstur þjóðarinnar.
Þær upplýsingar eru notaðar til að
áætla vægi einstakra útgjaldaliða
þegar vísitala neysluverðs er sett
saman, þ.e. þær segja til um hvaða
vöruflokkar skuli verðmældir.
Ríflega 71.000 í mat og drykk
Til dæmis sýna niðurstöðurnar að
meðalheimilið varði í fyrra 71 þús-
und krónum á mánuði til kaupa á
mat og drykkjarvörum. Samsvaraði
það 14,4% af útgjöldunum. Athygli
vekur að útgjöld vegna hótela og
veitingastaða dragast saman um
15% milli ára 2011 og 2012.
Af öðrum niðurstöðum má nefna
að ef tækjaeign heimila á árunum
2000-2002 er borin saman við tækja-
eignina 2010-2012 hafa mun færri
heimili heimilissíma nú en áður. Hef-
ur hlutfallið lækkað úr 91,7% í 78%.
Uppvaskið er á undanhaldi
Á hinn bóginn eru uppþvottavélar
nú mun algengari, hlutfall þeirra
hækkar úr 49,7% í 74,6%. Gamla
góða uppvaskið er samkvæmt þessu
á undanhaldi á íslenskum heimilum.
Þá eru þurrkarar mun algengari
2010-2012 en á árunum 2000-2002.
Hlutfall heimila með þurrkara
hækkar þannig úr 39,4% í 51,7%.
Hlutfall heimila með örbylgjuofna
hækkaði einnig, fór úr 79% í 84,7%.
Um 27% heimila eru með heima-
bíóskerfi en ekki var spurt um slík
kerfi 2000-02. 1.772 heimili tóku þátt
í rannsókninni og var svörun 49,7%.
Einhleypum virðist
hafa fjölgað á öldinni
Könnun Hagstofunnar bendir til að fleiri kjósi að búa einir
Morgunblaðið/Ómar
Þingholtin í Reykjavík Vísbendingar eru um að einhleypum fari fjölgandi.
Fjórðungur í einbýli
» Þátttakendur í könnuninni
voru spurðir um gerð hús-
næðis sem þeir búa í.
» Sögðust 27% búa í ein-
býlishúsi og 13,7% í raðhúsi.
» Þá sögðust 19,1% búa í 2
til 5 íbúða húsi og 36,1% í
fjölbýli.
» Loks sögðust 2,5% búa í
herbergi en ekki var vitað um
gerð húsnæðis í 1,7% tilvika.
» Þá sögðust 55,5% hafa að-
gang að bílskúr og hefur hlut-
fallið farið hækkandi að sögn
skýrsluhöfunda.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Meðalheimilið á Íslandi keypti mat og drykk
fyrir 71.000 krónur á mánuði í fyrra.
Þetta er ein niðurstaða rannsóknar Hagstof-
unnar á útgjöldum heimila 2010-2012.
Skal tekið fram að rannsóknin byggist á
könnun. Alls tóku 1.772 heimili þátt í rann-
sókninni og var svörun 49,7%. Könnunin sem
slík veitir því fyrst og fremst vísbendingar.
Í grafinu hér fyrir ofan má sjá sundurliðun
útgjalda hjá meðalheimili. Tölur eru á verðlagi
ársins 2012. Séu útgjöldin 2010 og 2012 borin
saman kemur í ljós að heimilin vörðu um 4%
meira til kaupa á mat og drykk árið 2012 en
þau gerðu 2010. Útgjöld vegna húsnæðis, hita
og rafmagns hækkuðu um 9,4%. Hækkunin
var 21% í liðnum húsgögn, heimilisbúnaður og
fleira, 9,6% til heilsugæslu, 21,3% til ferða og
flutninga og 14,6% vegna pósts og síma.
Athygli vekur að könnunin bendir til að út-
gjöld heimila vegna kaupa á áfengi og tóbaki
standi nánast í stað á tímabilinu. Loks má
nefna að vægi húsnæðis, hita og rafmagns
hækkar úr 27,2% árið 2010 í 27,8% árið 2012.
Meðalútgjöld jukust um 32 þúsund eða um 7%.
Rannsókn á útgjöldum
heimilanna 2010-2012
Á verðlagi 2012
*Miðað er við að 2,4 séu í heimili. Heimild: Hagtíðindi Hagstofu Íslands
2010 2011 2012
Neysluútgjöld -
meðaltal á heimili
í þúsundum ámánuði* 456 484 488
Matur og
drykkjarvörur 68 74 71
Áfengi og tóbak 16 16 15
Föt og skór 25 24 23
Húsnæði, hiti
og rafmagn” 124 125 136
Húsgögn,
heimilisbúnaður o.fl. 20 24 24
Heilsugæsla 16 20 18
Ferðir og flutningar 64 67 77
Póstur og sími 14 16 16
Tómstundir og
menning 52 56 54
Menntun 5 6 4
Hótel og
veitingastaðir 22 26 22
Aðrar vörur og
þjónusta 31 31 30
Samtals 456 484 488
Meðalútgjöld á heimili eftir árum
og bakgrunnsþáttum 2010-2012
Á verðlagi ársins 2012 í þúsundum króna
Meðalútgjöld eftir heimilisgerð
2010 2011 2012
Allir 456 484 488
Einhleypir 269 304 336
Hjón/sambýlisfólk án barna 501 510 548
Hjón/sambýlisfólk með börn 603 630 642
Einstæðir foreldrar 362 393 401
Önnur heimilisgerð 608 659 598
Mánaðartekjur ólíkra tekjufjórðunga
Á verðlagi ársins 2012
2010 2011 2012
Allir 456 484 488
1. fjórðungur 362 384 403
2. fjórðungur 392 437 447
3. fjórðungur 438 508 485
4. fjórðungur 585 611 667
Heimili eftir heimilisgerð
Hlutfall í hundraðshlutum
Höfuðborgar- Annað Dreifbýli Alls
svæðið þéttbýli
Allir 100 100 100 100
Einhleypir 37 25,2 26,1 32,9
Hjón/sambýlisfólk án barna 14,6 21,6 27,1 17,7
Hjón/sambýlisfólk með börn 30,4 36,8 34,1 32,3
Einstæðir foreldrar 11,4 10,2 3,7 10,3
Önnur heimilisgerð 6,6 6,2 9 6,8
Ráðstöfunartekjur heimila 2011 og 2012*
Á mánuði í þúsundum króna
Meðaltal Meðaltal Breyting
2009-2011 2010-2012 %
Allir 513.754 533.419 3,8
Einhleypir 283.850 290.347 2,3
Hjón/sambýlisfólk án barna 546.586 557.729 2
Hjón/sambýlisfólk með börn 709.592 763.539 7,6
Einstæðir foreldrar 394.927 388.820 -1,5
Önnur heimilisgerð 745.273 773.192 3,7
*Tekjur áranna 2009-2011 eru allar á verðlagi ársins 2011, tekjur 2010-2012 eru á verðlagi ársins 2012.
Tekjur eru verðuppfærðar með vísitölu launa.
Meðalútgjöld heimilis eru 488 þúsund krónur
Hagstofan birtir niðurstöður könnunar á neysluvenjum heimilanna á tímabilinu 2010 til 2012
AFGREIÐSLUTÍMI Í DESEMBER
Laugardagur 14. des. 11–16
Sunnudagur 15. des. 11–16
Mánudagur 16. des. 10–18
Þriðjudagur 17. des. 10–18
Miðvikudagur 18. des. 10–19
Fimmtudagur 19. des. 10–19
Föstudagur 20. des. 10–19
Laugardagur 21. des. 11–19
Sunnudagur 22. des. 11–19
Mánudagur 23. des. 10–19
ÞÚ FINNUR BÓKINA
Á FISK ISLÓÐ
Fiskislóð 39 | 101 Reykjavík
Sími: 575-5636 | forlagid.is