Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 580 8900 | bilalind.is
Vantar alltaf
fleiri bíla á skrá!
Fylgstu með okkur á facebook
Fylgstu með okkur á facebook
BMW540i
04/2000, ekinn 223 Þ.km,
sjálfskiptur, leður og fullt annað.
Frábær eigendaferill!
Verð 1.790.000. Raðnr.251534
MAZDA 5 Advance, 7manna
Árgerð 2012, ekinn 35 Þ.KM,
dísel, 6 gírar. Verð 3.350.000.
Rnr.410712
VWTOUAREGV10 diesel
08/2005, ekinn 118 Þ.km,
sjálfskiptur, fullbúinn glæsijeppi!.
Verð 4.690.000.
Raðnr.250830
M.BENZ C230 Kompressor
Árgerð 2005, ekinn 145 Þ.KM,
bensín, sjálfskiptur. Einn
eigandi. Lækkað verð 1.690.000.
Rnr.400114
DI
SE
L
LÆ
KK
AÐ
VE
RÐ
Valdir bílar á
100% láni
Áttatíu sentimetra hátt líkneski af Mao
Tse-tung var afhjúpað í bænum Shenz-
hen í Kína í gær, í tilefni 120 ára afmæl-
is kommúnistaleiðtogans. Það tók tutt-
ugu listamenn átta mánuði að ljúka við
styttuna, sem er úr gulli, skreytt eð-
alsteinum og hvílir á stalli úr hvítu jaði.
Kostnaður við gerð styttunnar nam
16,5 milljónum Bandaríkjadollara, sem
þykir úr takti við yfirlýsingar forset-
ans, Xis Jinpings, sem hefur lagt
áherslu á að draga úr ríkmannlegum
veisluhöldum og öðrum munaði síðan
hann tók við embætti.
Stjórnvöld hafa raunar leitast við að
draga úr yfirdrifnum hátíðahöldum í
tilefni afmælisins og hefur m.a. verið
ákveðið að taka 100 þátta sjónvarps-
þáttaröð um Mao, sem sýna átti í des-
ember, af dagskrá og sýna þætti um
kínverska herinn í staðinn. AFP
Afmælis-
stytta úr gulli
og jaði
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Bandaríkjamaðurinn Robert Levin-
son, sem hvarf í Íran fyrir sex árum,
var fyrrverandi starfsmaður alríkis-
lögreglunnar FBI og stundaði njósn-
ir fyrir leyniþjónustuna CIA. Asso-
ciated Press og Washington Post
sögðu frá málinu á fimmtudag en
bandarískir embættismenn hafa
haldið því fram að Levinson væri al-
mennur borgari sem hefði verið að
sinna viðskiptum í Íran þegar hann
hvarf.
Samkvæmt AP og Washington
Post flaug Levinson til ferðamanna-
staðarins Kish Island í Íran í mars
2007 til að rannsaka spillingu í land-
inu en vonir stóðu jafnframt til að
hann gæti aflað upplýsinga um
kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Te-
heran. Fjölmiðlarnir segja að teymi
sérfræðinga hafi ráðið Levinson, sjó-
aðan alríkislögreglumann með sér-
þekkingu á rússneskum glæpasam-
tökum, til að safna upplýsingum,
þvert á reglur CIA.
Þegar bandaríska þingið komst að
því hvað hafði átt sér stað var þrem-
ur sérfræðingum sagt upp og sjö
öðrum refsað. Til að koma í veg fyrir
vandræðalega lögsókn greiddi CIA
fjölskyldu Levinsons 2,5 milljónir
Bandaríkjadollara.
Todd Ebitz, talsmaður leyniþjón-
ustunnar, sagðist ekki myndu tjá sig
um meint tengsl Levinsons við
stjórnvöld en þau væru staðföst í því
að skila honum örugglega í faðm fjöl-
skyldu sinnar.
AP fékk fyrst veður af tengslum
Levinsons við CIA árið 2010 en sam-
þykkti þrisvar sinnum að hætta við
birtingu fréttarinnar þar sem banda-
rísk stjórnvöld sögðust vera á slóð
hans. Það leið hins vegar og beið og
aðgerðir til að finna Levinson og
frelsa báru ekki árangur.
Hvíta húsið fordæmdi fréttastof-
una fyrir að birta upplýsingarnar.
„Við hörmum að AP skuli hafa valið
að birta frétt sem gerir ekkert til að
færa okkur nær því að heimta hann
heim. Rannsóknin á hvarfi herra
Levinsons heldur áfram og við erum
öll staðráðin í að finna hann og færa
hann örugglega heim í faðm fjöl-
skyldu sinnar,“ sagði Caitlin Hay-
den, talsmaður öryggisráðsins.
Stjórnvöld í Washington og Te-
heran áttu í viðræðum um frelsun
Levinsons þegar myndir og upptök-
ur af honum dúkkuðu upp 2010 og
2011 en Íranar hafa neitað að hafa
nokkra vitneskju um örlög hans. Ef
Levinson er enn á lífi hefur hann
verið í haldi lengur en nokkur annar
bandarískur ríkisborgari.
Levinson var njósnari fyrir CIA
Hvarf fyrir sex árum Átti að rannsaka spillingu og afla upplýsinga um kjarnorkuáætlun Írana
AFP
Leyndarmál Bandaríska þingið vissi af því að Levinson hefði verið á mála
hjá leyniþjónustunni en stjórnvöld báðu AP að birta ekki fréttir um málið.
Mannshvarf
» Líklegt þykir að Levinson
hafi verið rænt.
» Bandarískir embættismenn
segja næstum öruggt að Íranar
hafi vitað að Levinson hafði
tengsl við CIA.
» Fjölskyldu Levinsons bárust
myndir í apríl 2011 þar sem
hann virðist vera í haldi ótil-
greindra aðila.
» Eftir að Levinson-málið
komst upp setti leyniþjónustan
nýjar reglur sem takmarka
samvinnu sérfræðinga á veg-
um stofnunarinnar og aðila ut-
an hennar.
Nýgreiningum krabbameina fjölgaði
um 11% á alþjóðavísu á fimm ára
tímabili og voru 14,1 milljón árið
2012, samkvæmt krabbameinsrann-
sóknarstofnun Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar, WHO. Tilfellum
brjóstakrabbameins fjölgaði um
fimmtung.
Samkvæmt skýrslu WHO, sem
byggist á upplýsingum um 28 teg-
undir krabbameins frá 184 ríkjum,
fjölgaði dauðsföllum af völdum
krabbameins um 8,4% milli áranna
2008 og 2012, þegar þau voru 8,2
milljónir. Algengustu krabbameinin
voru lungnakrabbamein, 13%,
brjóstakrabbamein, 11,9%, og
krabbamein í ristli og endaþarmi,
9,7%.
Af þeim sem létu lífið af völdum
krabbameins þjáðist fimmtungur af
lungnakrabba, 9,1% af lifrarkrabba-
meini og 8,8% af krabbameini í
maga.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gerir
ráð fyrir að nýgreiningum krabba-
meina muni fjölga næstu ár og verða
19,3 milljónir árið 2025, vegna vaxtar
og öldrunar jarðarbúa.
Í skýrslunni er sérstaklega vakin
athygli á snarpri aukningu brjósta-
krabbameinstilfella. Árið 2012 voru
1,7 milljónir kvenna greindar með
sjúkdóminn og 6,3 milljónir höfðu
verið greindar með hann fimm ár á
undan. Frá árinu 2008 hefur tilfell-
um brjóstakrabbameins fjölgað um
meira en 20% og dauðsföllum vegna
krabbameinsins fjölgað um 14%.
Nýgreiningum
fjölgar um 11%
Tilfellum brjóstakrabbameins hefur
fjölgað um fimmtung Spá aukningu
AFP
Banvænt 522.000 konur létust úr
brjóstakrabbameini í fyrra.