Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 14.12.2013, Qupperneq 52
52 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri alnabaer.is ▪ Opnunartími: Virka daga 10 til 18 og til jóla laugardaga frá 11 til 14 Jólavörurnar eru komnar í Álnabæ Jólagardínur, jóladúkar og jólaefni Líttu við og skoðaðu úrv alið Ég er af þeirri kyn- slóð, sem ólst upp við, að þulir Ríkisútvarps- ins væru margra manna makar, frétta- menn og dagskrárgerð- armenn fyrir utan þul- arstarfið. Þannig öðluðust þeir líka meiri reynslu af störfum fyrir útvarp. Menn eins og Thorolf Smith, Axel Thorsteinsson, Pétur Pétursson, Jón Múli Árnason, Jónas Jónasson og Stefán Jónsson, svo ein- hverjir séu nefndir. Hlustendur vöknuðu upp við raddir þessara manna klukkan sjö á morgnana og heyrðu þá ljúka dagskránni klukkan tólf á kvöldin, þegar dagskránni lauk. Þá var aðeins ein íslensk útvarpsstöð til á landinu, sem var að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins og ekkert næt- urútvarp, enda ætlast til að fólk svæfi á næturnar án slíks áreitis. Þegar menúett Boccherinis heyrðist í upp- hafi morgunútvarps þá vissi maður alltaf, að Axel Thorsteinsson var við hljóðnemann, en hann las líka stund- um upp eigin þýðingar síðdegis. Lengst af var það þó hin þægilega rödd Jóns Múla, sem vakti mann á morgnana með orðunum: „Útvarp Reykjavík, Útvarp Reykjavík, góðan dag. Ríkisútvarpið býður yður vel- komin á fætur.“ Síðan sagði hann okkur hvaða dagur var og hvað var liðið á morguninn, fór svo að lýsa því, sem hann hafði séð út um gluggann á Skúlagötu 4, en hleypti síðan morg- unbæninni og veðurfréttum að. Þeg- ar kom svo að fréttatímanum, þá las hann bæði tilkynningar og fréttir, eins og allir þulirnir í morgunútvarp- inu gerðu. Á kvöldin sofnuðu hlust- endur svo út frá djassþáttunum hans, ef hann var ekki kynnir á Sinfón- íutónleikum í Háskólabíói á fimmtu- dagskvöldum, eða Gunnar Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sinfóníunnar, var ekki með einhvern fræðsluþátt um klassíska tónlist á síðkvöldum. Thorolf Smith, Axel Thorsteinsson og Margrét Indr- iðadóttir lásu öll upp fréttir í útvarp- inu og tóku viðtöl við fólk, þótt þau væru fréttastjórar, enda hafði það verið lenska, að fréttastjórarnir gerðu það til jafns við þulina, og hafði verið frá upphafi. Enginn sagði neitt við því, þótt þulirnir og fólkið á fréttastofunni í þá daga gegndu þannig mörgum hlutverkum í einu og væru líka dagskrárgerðarfólk að auki. Fólki fannst það sjálfsagt, en í dag þurfa allir að vera sérhæfðir á öllum sviðum, og það, sem tók ekki nema nokkra menn, þarf minnst tíu til fimmtán manns að gera í dag. Það er engin furða svo sem, þótt eyðslan sé mikil á þeim fjár- munum, sem fara til út- varpsins og alltaf vanti meiri peninga í hítina. Að ætla hins vegar að láta alla þulina fara, eins og stendur til, er hreinasta glópska og óvirðing við okkur hlustendur, enda nauðsynlegir. Svo kom Rás2, og með henni næt- urútvarpið, en flestir hlustuðu áfram á „gömlu gufuna“, eins og aðal- útvarpsrásin var alltaf kölluð, enda fjölbreyttara úrval í dagskránni þar, tónlist og talað orð í bland án alls glamúrs og æsings, eins og hefur ein- kennt þær útvarpsstöðvar, sem síðar hafa komið, eftir að útvarpsrekstur var gefinn frjáls og mjög mörgum finnst óþolandi að hlusta á þess vegna. Við höfum verið svo heppin hér á Íslandi, að hið eina sanna Ríkis- útvarp, blessuð gamla gufan, hefur verið fjölbreytt að efnisuppbyggingu gegnum tíðina hlustendum sínum til ómældrar ánægju, enda hlustunin eftir því. Þegar Ríkisútvarpið var átt- rætt var það auglýst sem „skemmti- staður þjóðarinnar í 80 ár“, og ekki að ósekju, því að það hefur vissulega staðið vel undir því nafni fram á þennan dag, enda mótað eftir BBC og fleiri aldagömlum, góðum útvarps- stöðvum í nágrenni við okkur. Þannig á ríkisútvarp líka að vera, og þannig er ríkisútvarp uppbyggt í öllum vest- rænum lýðræðislöndum. Blanda af tónlist, fræðsluþáttum, messum, kynningum á nýútgefnum hljóm- diskum og bókum, skemmtiþáttum af ýmsu tagi, fréttum og veðurfregnum, auglýsingum, þar á meðal andláts- tilkynningum, leiklist, barnatímum, jólakveðjum og svo mætti lengi telja. Að fara svo að endurskíra þetta RÚV skil ég ekki, hvað á að þýða, og finnst það hin mesta sérviska. Það lýðræðisríki, sem ekki hefur frjálst og óháð, fjölbreytilegt rík- isútvarp, stendur ekki undir því nafni, og því má það ekki gerast að núverandi útvarpsstjóri fái frið til að breyta Ríkisútvarpi íslensku þjóð- arinnar í einhverja einkaútvarpsstöð sér í vil og hunsa öll lög landsins í því sambandi, líkast því, sem gerist suð- ur í álfu. Þá er kominn tími til þess að fara að skipta um yfirstjórn útvarps- ins, þegar svo er komið málum. Á þessum jafnréttistímum, sem við lifum nú á, væri ekki nema sann- gjarnt að ráða konu í það starf, enda er vel hægt að hagræða í útvarps- rekstrinum með hagfræði hinnar hagsýnu húsmóður án þess að saxa alltof mikið af dagskránni, konu, sem virðir það líka, að þetta er útvarps- stöð allra landsmanna og þjóðareign, og er sannkallað ríkisútvarp, en ekki eign einhvers sérhagsmunahóps með óljós markmið, sem hlustendur geta ekki áttað sig á hver eru og kemur ekkert nálægt markmiðum ríkisfjöl- miðils í lýðræðisþjóðfélagi. Slíkt má alls ekki gerast og verður að sporna við með öllum tiltækum ráðum, eins og mögulegt er. Ríkisútvarpið fyrr og nú Eftir Guðbjörgu Snót Jónsdóttur » Lengst af var það þó hin þægilega rödd Jóns Múla, sem vakti mann á morgnana með orðunum: „Útvarp Reykjavík, Útvarp Reykjavík, góðan dag.“ Guðbjörg Snót Jónsdóttir Höfundur er guðfræðingur og fræði- maður og dyggur útvarpshlustandi. Samkomulagið sem fulltrúar Reykjavík- urborgar, Icelandair Group og íslenska ríkisins skrifuðu und- ir í Hörpu 25. október sl. um að fresta lokun N-S-brautarinnar til ársins 2022 vekur litla hrifningu tals- manna Betri byggðar. Þetta samkomulag um að fresta lokun brautarinnar vekur líka spurn- ingar um hvort hætt verði við brotthvarf flugvallarins úr Vatns- mýri á meðan illa gengur að finna nýtt flugvallarstæði fyrir höf- uðborgina sem verður að vera með minnst þremur flugbrautum. Vegna veðrabreytinga sem geta skapað vandræði þvert á allar veð- urspár er lágmark að brautirnar liggi í minnst sex áttir. Hug- myndin um að nýtt flugvallarstæði skuli vera í 15 km fjarlægð frá sjúkrahúsum höfuðborgarsvæð- isins leysir engan vanda og er með öllu óraunhæf. Fyrir flugmenn á farþegaþotum Flugleiða sem fljúga milli Evrópu og Norður- Ameríku er það mikið öryggis- atriði að í landinu séu minnst þrír varaflugvellir þegar of mikil veð- urhæð veldur því að óhjá- kvæmilegt er að hætta við lend- ingu á Keflavíkurflugvelli. Af þessum sökum hefur stundum þurft að snúa farþegaþotunum til Reykjavíkur, Egilsstaða og Ak- ureyrar. Síðustu þrjá áratugina hafa glatast of mörg tækifæri sem hefði mátt nota til að flýta fram- kvæmdum við Sundabraut og mis- læg gatnamót á Reykjavíkursvæð- inu. Blóðugt er að fá fréttir af eftirgjöf forsætis- og innanrík- isráðherra sem hafa viljandi sam- þykkt árás borgar- stjóra og formanns borgarráðs á sjúkra- flugið með því að loka NA-SV-brautinni næstu áramót. Það snýst um að þeir sem hafa borgina á sínu valdi telji sjálfsagt að öryggi sjúkraflugvélar með fárveikan mann innanborðs skuli um ókomin ár stefnt í sjálfheldu örfáum mínútum fyrir áætl- aðan lendingartíma. Með lokun NA-SV-brautarinnar fá andstæðingar sjúkraflugsins óá- reittir að leika sér með fleiri mannslíf án þess að innanrík- isráðherra, borgarstjóri og for- maður borgarráðs taki það nærri sér. Íbúar Skerjafjarðar sem and- mæla lokun flugbrautarinnar og leggjast gegn íbúðarbyggð í Vatnsmýri hafa miklar áhyggjur af auknum umferðarþunga. Í sjón- varpsfréttum Stöðvar tvö 18. nóv- ember lýsti forsætisráðherra yfir andstöðu sinni gegn því að NA- SV-brautin yrði tekin undir íbúð- arbyggð eftir að hafa undirritað í Hörpu samkomulagið við Jón Gnarr og Dag B. Eggertsson. Að loknu falli núverandi borg- arstjórnar næsta vor er nú talið fullvíst að löng saga verði af þessu nýja samkomulagi sem forsætis- ráðherra, innanríkisráðherra og forstjóri Flugfélags Íslands náðu við borgarstjóra og formann borg- arráðs ef óhjákvæmilegt verður að framlengja notkun N-S-braut- arinnar til ársins 2030 eða 2040 á meðan nýtt flugvallarstæði utan höfuðborgarinnar finnst ekki. Skammarlegt er að siðblindir og pólitískir öfgahópar skuli halda til streitu kröfunni um lokun NA-SV- brautarinnar í þeim tilgangi að beina sjúkrafluginu utan af landi til Keflavíkur. Þótt árás þeirra á lífæð allra landmanna heppnist þýðir það ekki að andstæðingar flugvallarins í Vatnsmýri standi um ókomin ár uppi sem sigurveg- arar þegar fyrirsögnin Endalok innanlands- og sjúkraflugsins birt- ist á forsíðum dagblaðanna. Þá verður stuðningsmönnum núver- andi flugvallar í Vatnsmýri á höf- uðborgarsvæðinu og landsbyggð- inni enginn hlátur í huga þegar þeir heyra í fjölmiðlum skelfilegar fréttir um að Flugfélagið Ernir og Flugfélag Íslands sjái sína sæng upp reidda. Í kjölfarið myndu von- sviknir íbúar höfuðborgarsvæð- isins og landsbyggðarinnar svara fyrir sig með þeim skilaboðum að Jón Gnarr, Dagur B. og núverandi borgarstjórnarmeirihluti eigi margt ólært og skuli nú gera hreint fyrir sínum dyrum. Sam- komulagið sem náðist um að loka NA-SV-brautinni næstu áramót mun snúast upp í pólitískan skrípaleik sem innanríkisraðherra tekur þátt í. Þá sannast það fljót- lega að allar forsendurnar fyrir áframhaldandi rekstri flugfélag- anna næstu áratugina standast aldrei. Nú spyrja vonsviknir landsmenn sem sitja eftir með sárt ennið hvort innanríkis- ráðherra sé á blindgötum. Kostn- aðurinn við að finna nýtt flugvallarstæði utan höfuðborg- arinnar verður íslenska ríkinu of- viða. Áætlað er að hann geti orðið 25-30 milljarðar króna, sem erfitt er að útvega. Er innanríkisráðherra á blindgötum? Eftir Guðmund Karl Jónsson » Samkomulagið sem náðist um að loka NA-SV-brautinni næstu áramót mun snúast upp í pólitískan skrípaleik … Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.