Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 80

Morgunblaðið - 14.12.2013, Síða 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2013 ég, því heimildir eru fyrir því að enn séu til lög í skúmaskotum Scott. Tilfinningahlaðin endurkoma Útgáfunni var fylgt eftir með tónleikum í haust og hóaði Scott m.a. saman hluta af þeim mann- skap sem stóð að plötunni á sínum tíma. Þessa menn barði ég augum á hinum sögufræga stað Barrow- lands í Glasgow nú á þriðjudaginn. Á bassa var Trevor Hutchinsson („sem er ennþá myndarlegasti maðurinn í Írlandi,“ lýsti Scott yfir og hann fer eflaust ekki með fleip- ur en Hutchinson minnti helst á Dean Martin, stóískur og mjög svo náttúrulega „svalur“). Þá lék á saxófón, orgel, mandólin og fleira Anthony Thistlethwaite sem var jafnan hægri hönd Scott á mekt- arárunum. Fiðlari var þá Steve Wickham, sem Scott hefur kallað tónlistarbróður sinn, en það var fyrir tilstilli Wickham að Fisherm- an‘s Blues-ævintýrið allt fór af stað á sínum tíma. Fyrir aðdáendur Waterboys er þetta um margt tilfinningahlaðin endurkoma en í árafjöld töluðust þessir menn ekki við. Leikar hófust á „Strange Boat“ af Fisherman‘s Blues en fljótlega var hent í rokkaða útgáfu af fyrsta smelli Waterboys, „A Girl Called Johnny“. Menn voru því ekki eingöngu í Fiskimannsblúsnum (þó að nóg væri efnið!) og lög eins og „Don‘t Bang The Drum“ og „The Whole Of The Moon“ voru einnig spiluð. Fisherman‘s Blues-efnið var engu að síður í forgrunni, nema hvað, og „When Will Be Married“ var leikið, sem og frábært titillagið (og þá söng salurinn með sem einn maður) og hið gullfallega „When Ye Go Away“. Hápunkturinn var hins vegar helmögnuð útgáfa af „We Will Not Be Lovers“, þetta grama, sára lag flutt af eftirtekt- arverðum fítonskrafti. Sveitin var klöppuð upp þrisvar og kvaddi með fjörugri útgáfu af hinu dásamlega „And a Bang on the Ear“ en það lag kom þessum penna upp- runalega á bragðið. Ljúfsárt Auðvitað hreyfði það við manni að sjá þessa menn samein- aða á ný, sækjandi í þennan gnægtabrunn sem þeir hlóðu í sam- einingu á sínum tíma. Og á völdum augnablikum mátti skynja sanna töfra, þessi tilfinning sem þú færð þegar máttur tónlistarinnar nær upp og út fyrir manneskjurnar sem eru að skapa hana. Það er erfitt að koma þessu í orð en allir þeir sem hafa orðið snortnir af tónlist vita hvað ég er að tala um. En (og nú koma leiðindin) eitthvert dökkt ský virðist hanga eilíflega yfir Scott og fyrir því finnur maður líka. Ein- hverjir ókennilegir, óþægilegir straumar sem flæða einnig út í sal- inn. Það er nóg að lesa ævisögu hans (Adventures of a Waterboy, kom út í fyrra) til að skilja, a.m.k. betur, af hverju staða mála er svo. Ljúfsár kvöldstund var því nið- urstaðan en aðdáun mín á listfengi Scott hefur ekki minnkað agnar- ögn og yrði ég fyrstur manna til að stökkva á annan hundrað laga skammt frá þessum blessuðu Fisherman‘s Blues-upptökum. Fleyið skrítna » Auðvitað hreyfðiþað við manni að sjá þessa menn sameinaða á ný, sækjandi í þennan gnægtabrunn sem þeir hlóðu í sameiningu á sínum tíma. Sameinaðir Tónlistarbræðurnir Mike Scott og Steve Wickham á tónleikum.  The Waterboys fagna kjörútgáfu Fisherman‘s Blues með tónleikum  Blaðamaður fylgdist með einum slík- um í Barrowlands, Glasgow TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Well here we are in aspecial place, what areyou gonna do here? … Here we are in a fabulous place, what are you gonna dream here?“ Þessar rómantísku sönglínur eru teknar úr opnunarlagi This is the Sea, „Don‘t Bang The Drum“, sem var þriðja hljóðversplata rokksveit- arinnar The Waterboys. Þær koma úr brjósti leiðtogans, Mike Scott, og ná vel að kjarna þann mann og hvernig vegferð hans í lífinu hefur verið yfirleitt. Eins og nærri má geta hefur þessi hárómantíska sýn á allt og alla verið honum til bölv- unar og blessunar; hlutir eru um- faðmaðir í miklu hástigi eða allt er guðsvolað og svart þegar hlutirnir passa ekki við kjörmyndina. Þessi þráhyggja stýrði meðal annars málum er meistarastykkið Fisherman‘s Blues var tekið upp. Opinber afrakstur var tólf laga plata en fullkomnunarárátta Scott varð til þess að langt yfir hundrað upptökur söfnuðust í sarp. Til að marka kvartaldarafmæli plötunnar var megnið af þessu gefið út sem Fisherman‘s Box, sem hefur að geyma 121 lag alls. Megnið, segi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.