Morgunblaðið - 31.12.2013, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Blandan byggist upp á fljótandi lífrænu járni,
sérvöldum jurtum, ávaxta djús og blöndu af c-
og b-vítamíni, til að auka járnbúskap líkamans.
Floradix er jurtablanda sem
hjálpar til við að auka járnmagnið
í blóðinu, án aukefna.
Ertu slöpp?
Getur verið að þig vanti járn?
fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík,
Selfossi og Barðanum Skútuvogi
Nú þegar veturinn er genginn í garð munu langar frostnætur reyna
Tudor er
hannaður til þess að þola það álag sem slíkar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur. Tudor - betra start!
Betra start fyrir þig og þína
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Frystitogarinn Þór HF kom til
heimahafnar í Hafnarfirði klukkan
sjö að morgni 18. desember síðast-
liðinn samkvæmt áætlun. Áhöfnin
gekk þá frá borði í síðasta sinn því
öllum hafði verið sagt upp. Á liðnu
vori kom fram í fréttum að áhöfn-
inni hefði verið sagt upp störfum
frá og með haustinu. Þorvaldur
Svavarsson, fyrrverandi skipstjóri á
Þór HF, sagði að hann hefði fengið
að vita frá útgerðinni að kvöldi 17.
desember að nú væri þetta „bara
búið“.
„Svona er þetta. Tuttugu og fjög-
urra ára starf farið,“ sagði Þorvald-
ur. Hann byrjaði hjá Stálskipum
ehf. 2. janúar 1990 sem 2. stýrimað-
ur á Ými HF. Eftir það fór hann á
Rán HF og svo á Þór HF árið 2002
og hefur verið skipstjóri frá árinu
2003. Um borð í Þór HF var 26
manna áhöfn og með mönnum í
landi voru 40 sjómenn á togaranum.
„Þetta er svaka högg. Þetta er síð-
asti togarinn í Hafnarfirði,“ sagði
Þorvaldur.
Hann sagði að flestir í áhöfninni
ættu að baki langan starfsaldur hjá
útgerðinni og væru margir á fimm-
tugs- og sextugsaldri. Hann sagði
að atvinnuhorfurnar fyrir tog-
arasjómenn væru ekki góðar.
„Þetta er örugglega bara búið,“
sagði Þorvaldur. Hann var ekki
bjartsýnn á að sjómennirnir af Þór
HF fengju pláss á íslenskum tog-
urum. Íslenskum togarasjómönnum
fækki hratt þessa dagana.
„Nú fer maður bara að gera eitt-
hvað annað,“ sagði Þorvaldur.
Útgerðarfélagið Stálskip ehf. hef-
ur borgað hæstu meðallaunin hér á
landi undanfarin ár, samkvæmt
samantektum Frjálsrar verslunar.
Meðallaun hjá fyrirtækinu voru um
23 milljónir fyrir hvert ársverk í
fyrra líkt og árið 2011 en tæplega
21 milljón árið 2010.
Valborg Óskarsdóttir, hjá Sjó-
mannafélagi Hafnarfjarðar, sagði
að atvinnuástand á meðal sjómanna
þar í bæ væri slæmt. „Áður fyrr
var þetta útgerðarbær en hann er
það ekki lengur. Sjómönnum hefur
fækkað með hverju ári,“ sagði Val-
borg. Hún segir að nokkrir sjó-
menn séu á atvinnuleysisskrá í
Hafnarfirði.
Úthlutað aflamark Þórs HF í
upphafi yfirstandandi fiskveiðiárs
var 4.792 þorskígildistonn. Þorsk-
kvóti skipsins er 1.360 tonn, karfi/
gullkarfi 1.656 tonn, djúpkarfi 388
tonn, ufsi 756 tonn og minna af öðr-
um tegundum.
Stálskip ehf. vildi ekki tjá sig
neitt um málið þegar haft var sam-
band við fyrirtækið í gær.
40 sjómenn á Þór HF missa plássin
Áhöfnin gekk frá borði í síðasta sinn 18. desember sl. Þór HF eini togarinn sem gerður er út frá
Hafnarfirði Erfiðar atvinnuhorfur hjá togarasjómönnum Sjómönnum fækkar með hverju ári
Morgunblaðið/Eggert
Togarinn Þór HF Útgerð skipsins hefur gengið vel en nú er komið að tímamótum og áhöfnin farin í land.
Togaraútgerð Íslendinga hófst í
Hafnarfirði þegar fyrsti tog-
arinn í eigu Íslendinga, Coot,
kom þar til hafnar 6. mars 1905.
Frystitogarinn Þór HF-4 hefur
verið eini togarinn sem gerður
hefur verið út frá Hafnarfirði
undanfarin ár. Stálskip ehf., út-
gerð Þórs HF, hefur verið á með-
al hæstu gjaldenda opinberra
gjalda árum saman. Því er
næsta ljóst að Hafnarfjarð-
arbær verður af miklum tekjum
hætti félagið útgerð.
Á síðustu öld var starfrækt
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar sem
gerði út marga togara. Þeir báru
nöfn mánaðanna, m.a. Apríl,
Maí, Júní, Júlí og Ágúst. Fyr-
irtækið var rekið með miklum
halla og ákvað bæjarstjórn
Hafnarfjarðar árið 1986 að
leggja bæjarútgerðina niður og
selja eigur hennar.
Þór HF eini
togarinn nú
Coot var fyrsti íslenski togarinn.
TOGARAÚTGERÐ ÍSLEND-
INGA HÓFST Í HAFNARFIRÐI
Inga Marianne Ólafs-
son, hjúkrunarfræð-
ingur, lést 28. desem-
ber, 77 ára að aldri.
Hún fæddist 20. des-
ember árið 1936 í
Stokkhólmi. Foreldrar
hennar voru Gunnar
Falk, lögreglustjóri og
síðar framkvæmda-
stjóri VOLVO í Sví-
þjóð, og Alma Eng-
lund, síðar Andersson,
húsmæðrakennari.
Fósturfaðir hennar var
Sigvard Andersson.
Inga lauk hjúkr-
unarfræðinámi frá Sjuksköter-
skolan í Eskiltuna. Eftir að hún
fluttist til Íslands starfaði Inga við
Landakotsspítala árin
1976-82, var skóla-
hjúkrunarfræðingur
við Hagaskóla 1983-
2000 og starfaði við
hjúkrunarheimilið
Droplaugarstaði frá
1982-2000. Auk þess
tók hún virkan þátt í
starfi Sænska félags-
ins á Íslandi.
Hún giftist Ólafi
Ólafssyni, fv. land-
lækni, árið 1960. Sam-
an eiga þau fimm
börn; Ástu Sólveigu,
Ingibjörgu, Bjarna
Ólaf, Pál og Gunnar Alexander.
Fyrir átti Ólafur tvo syni; Ólaf og
Grím.
Andlát
Inga Marianne
Ólafsson