Morgunblaðið - 17.01.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2014
Í Pisa-könnuninni kom fram að ís-lenski menntaturninn er skakk-
ur. Öðru máli gegndi um hinn kín-
verska. Á Pisa-kvarðanum trónir
hann þráðbeinn á toppinum – að
minnsta kosti í Sjanghæ. Þar reikna
börn og lesa af meiri list en annars
staðar á byggðu bóli og hefði mátt
ætla af umræðunni að réttast væri
að Ísland gengi í Kína – eða yrði
hverfi í Sjanghæ þar sem mælingin
fór víst fram.
Ekki eru þó allir jafn uppnumdiraf kínversku menntakerfi.
Listamaðurinn Ai Weiwei, sem nýt-
ur lítillar hylli kínverskra ráða-
manna, gagnrýnir
kínverskt mennta-
kerfi í viðtali við
Der Spiegel um
helgina. Blaðamað-
ur spyr hvað geti
verið að kerfinu,
nemendur í
Sjanghæ séu þeir
bestu í heimi í stærðfræði, nátt-
úruvísindum og lesskilningi.
Ai svarar: „Ég held að kerfiðokkar sé holt og innantómt.
Tökum mannúð, einstaklings-
framtak og sköpunarkraft – á þess-
um gildum byggir þjóðfélag. Hvaða
uppeldi fáum við, hvaða drauma
dreymir okkur? Daglega á ég sam-
skipti við námsmenn, frá Kína,
Þýskalandi, Bandaríkjunum, Hong
Kong og Taívan. Ég hef komist að
því að kínverskir stúdentar hafa
minnsta menntun í að átta sig á
hvað er fallegt og rétt. Þeir kunna
að vera færir og listnæmir, en þá
skortir hæfileikann til að dæma
sjálfir. Það er sorglegt að sjá full-
orðið ungt fólk, 20 til 25 ára, sem
aldrei hefur fengið kennslu í að
taka eigin ákvarðanir. Sá sem get-
ur það ekki finnur ekki heldur fyrir
neinni ábyrgðartilfinningu. Og sá
sem hefur enga ábyrgðartilfinn-
ingu skellir skuldinni á kerfið.“
Kannski er ekki svo eftirsókn-arvert að sitja á skólabekk í
Sjanghæ eftir allt saman.
Ai Weiwei
Menntaparadís?
Staksteinar
Veður víða um heim 16.1., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 4 alskýjað
Nuuk -3 snjókoma
Þórshöfn 6 skúrir
Ósló -6 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur -2 skýjað
Helsinki -12 heiðskírt
Lúxemborg 6 skúrir
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 6 léttskýjað
London 10 skúrir
París 7 léttskýjað
Amsterdam 7 skúrir
Hamborg 3 þoka
Berlín 2 skýjað
Vín 5 skýjað
Moskva -8 snjókoma
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 15 skýjað
Róm 10 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -17 snjókoma
Montreal -2 léttskýjað
New York 3 alskýjað
Chicago -1 alskýjað
Orlando 10 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:50 16:27
ÍSAFJÖRÐUR 11:21 16:06
SIGLUFJÖRÐUR 11:04 15:48
DJÚPIVOGUR 10:26 15:50
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins
fyrir borgarstjórnarkosningar í vor
var samþykktur einróma á fundi
Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna síðdegis í gær. Tæplega
200 manns sóttu fundinn þótt hann
færi fram á sama tíma og landsleikur
Íslendinga og Spánverja í handbolta.
Sjónvarpsskjár var í hliðarsal fyrir
þá sem ekki vildu missa af handbolt-
anum.
Óttarr Örn Guðlaugsson, formað-
ur Varðar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að eindrægni hefði ríkt á
fundinum. Engin tillaga hefði komið
fram um að breyta listanum eða
gagnrýni á skipan hans.
Framboðslistann skipa fimmtán
karlar og fimmtán konur, þar af
fimm karlar og fimm konur í tíu
efstu sætunum. Þrír karlar skipa
þrjú efstu sætin í samræmi við nið-
urstöður prófkjörs flokksins í haust.
Jórunn Frímannsdóttir Jensen,
hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi
varaborgarfulltrúi, skipar heiðurs-
sæti listans.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
er í efsta sætinu. Júlíus Vífill Ingv-
arsson er í öðru sæti, Kjartan Magn-
ússon þriðja, Áslaug María Friðriks-
dóttir fjórða, Hildur Sverrisdóttir
fimmta, Marta Guðjónsdóttir sjötta,
Börkur Gunnarsson sjöunda, Björn
Gíslason áttunda, Lára Óskarsdóttir
níunda og Herdís Anna Þorvalds-
dóttir í tíunda sæti.
Framboðslistinn samþykktur
Eindrægni var á 200 manna fundi sjálfstæðismanna í Valhöll í gær um borg-
arstjórnarlistann Fimm karlar og fimm konur eru í tíu efstu sætunum
Morgunblaðið/Ómar
Framboð ákveðið Fremst t.v. situr Halldór Halldórsson, nýr oddviti D-
listans, þá Kjartan Magnússon borgarfulltrúi og Sólveig Pétursdóttir.