Morgunblaðið - 17.01.2014, Side 38
38 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2014
Ég ætla að fagna 40 ára afmælinu með fjölskyldu og vinum ámorgun,“ segir Ólafur Andri Briem sem er 40 ára í dag.Ólafur Andri hefur mikinn áhuga á gömlum amerískum
bílum, helst frá 8. og 9. áratug síðustu aldar, og á einn slíkan. „Eig-
inlega finnst mér ekkert varið í þessa nýmóðins bíla,“ segir hann.
„Ég safnaði fyrir Knight Rider (Pontiac Firebird Trans Am) í sjö ár
en ég sá sjónvarpsþætti þar sem bíllinn lék stórt hlutverk áður en ég
flutti til Íslands frá Svíþjóð níu ára gamall.“ Ólafur Andri bætir við
að hann hafi lengi fylgst með sölutilboðum á svona bíl á e-bay, loks
fundið einn álitlegan og boðið í hann með dyggri aðstoð frá Bílabúð
Benna. „Og nú er hann kominn og er í góðu lagi. Alger perla.“
Annað áhugamál er að setja saman tölvubúnað en það nýjasta er
matseld. „Sjálfsagt hef ég smitast af öllum þessu fínu matreiðslu-
þáttum,“ segir hann. „Svo kom það sjálfum mér á óvart hvað mér
þykir skemmtilegt að fara á sinfóníutónleika í Hörpu, en foreldrar
mínir, þau Snjólaug Ólafsdóttir og Haraldur Briem, bjóða mér
stundum að hlaupa í skarðið fyrir sig þegar þau komast ekki.“
Ólafur Andri hefur líka gaman af jarðvinnu og hefur eytt nokkr-
um sumrum í sumarbústað fjölskyldunnar í Skorradal við að leggja
göngustíga og bílaplan. „Ég nota engar vinnuvélar við það, bara
hendurnar og skóflu.“ steinthor@mbl.is
Ólafur Andri Briem 40 ára
Stoltur Ólafur Briem er ángæður með bílinn góða.
Safnaði fyrir Knight
Rider í sjö ár
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Reykjavík Alexander Úlfur fæddist
30. september kl. 13.48. Hann vó
3.585 g og var 51 cm langur. Foreldrar
hans eru Sara Barðdal Þórisdóttir og
Hákon Víðir Haraldsson.
Nýir borgarar
Keflavík Aron Sölvi fæddist 13. sept-
ember kl. 20.41. Hann vó 3.925 g og
var 53 cm langur. Foreldrar hans eru
Sara Rut Agnarsdóttir og Haukur Ein-
arsson.
S
igurjón fæddist í Reykja-
vík 17.1. 1954, ólst upp í
Hafnarfirði til tíu ára ald-
urs, í Vesturbænum í
Reykjavík og í Vogunum.
Hann var í Lækjarskóla, Flataskóla,
Melaskóla, Hagaskóla og Vogaskóla.
Síðar lauk hann prófum í skipstjórn-
arréttindum frá Stýrimannaskól-
anum.
Sjómannslíf undir Jökli
Sigurjón fór 17 ára á vertíð vestur í
Ólafsvík, var þar lengst af sjómaður í
áratug en auk þess hafnarverkamað-
ur í Reykjavík og á Akureyri:
„Mannlífið í verbúðunum í Ólafsvík,
var ólíkt öllu sem ég þekkti og vissi
um á þessum árum. Óharðnaður ung-
lingurinn gekk þarna í flasið á gegnd-
arlausri óreglu, slagsmálum og ást-
arleikjum fyrir opnum tjöldum. Ég
fann til smæðar minnar en átti síðar
eftir að vera lengi á verbúðum og sjá
meira af þessu.“
Sigurjón M. Egilsson blaðamaður – 60 ára
Á Helgafelli Sigurjón er hér leiðsögumaður og fer fyrir gönguhópi á vegum SÁÁ fyrir fáeinum árum.
Sjómaðurinn sem villt-
ist yfir í blaðamennsku
Morgunblaðið/Frikki
Með konu og bræðrum Talið frá vinstri: Egill Egilsson, Kristborg Há-
konardóttir, afmælisbarnið, María Egilsdóttir og Hafsteinn Egilsson.
Takk hreinlæti ehf, Viðarhöfða 2, 110 Reykjavík - Sími 577 6500 - Fax 577 6505
Geymslubox Ýmsarstærðirog gerðir