Frúin - 01.06.1963, Qupperneq 10
Á. myndinni til hægri
sést frú de Gaulle
ásamt manni sínum
í opinberri heimsókn
í Englandi.
LESIÐ ÞESSA ÁGÆTU GREIN UM FRÚ DE
GAULLE, SEM HATAR AÐ LÁTA Á SÉR BERA
□ G ELSKAR AÐ PRJDNA.
ÆDSTA KONA FRAKKLANDS
MESTA GÁTA FRAKKLANDS
EFTIR FREDERIG SANDS
var lesinn upphátt í bekknum, þar
sem hann var talinn sérstaklega at-
hyglisverður, en nunnan sem hafði
bekkinn með höndum, hefur ef til
vill verið illa fyrir kölluð, því að
hún mælti strangt:
„Stúlka á þínum aldri getur ekki
hafa skrifað þetta, einhver hlýtur
að hafa hjálpað þér.“
Yvonne varð svo undrandi yfir
þessari óréttlátu ákæru, að hún kom
ekki upp einu einasta orði, en hristi
höfuðið. Ein stúlkan í bekknum þaut
upp í reiði og sagði: „Yvonne getur
ekki svindlað. Það er henni alveg
ómögulegt að gera slíkt.“ Nunnan
roðnaði og baðst afsökunar. Yvonne,
sem ekki hafði náð sér eftir ásökun-
ina, brast í grát.
Vendroux fjölskyldan hafði þá á-
gætu reglu, að sameina gamlar og
nýjar hugmyndir erfðavenjum sín-
um. Faðir Yvonne var dómari og
átti sæti í borgarstjórninni. Móðir
hennar átti sína litlu, en ekki alveg
þýðingarlausu stöðu í sögunni, þar
sem hún var fyrsta franska konan
Það er eitthvað alveg sérstakt við
frú de Gaulle, eitthvað sem hrífur
alla, er verða á vegi hennar. Hún er
frábrugðin öllum öðrum konum nú-
tímasögunnar, en áhrif hennar eru
ótvíræð og ávallt hrífandi.
í hinum svarta algenga búningi,
sem hún klæðist á innkaupum sínum,
hinnir hún einna helzt á franska
millistéttar bóndakonu, en sama
kvöldið getur hún strixað við kvöld-
verðarboð, meðal tignustu kvenna
Frakklands, þar sem einkennisbún-
ingur er viðhafður. Öllum konum er
það ljóst, að glæsileikinn felst ekki
eingöngu í dýrum klæðaburði. Hún
er þekkt fyrir ást á einkalífi og ein-
veru, en þegar hún heldur ræður,
þá er mál hennar svo ákveðið og vel
byggt, að menn freistast til að álíta
það lífsstarf hennar.
Þrátt fyrir rólegt og kurteist fas,
vekur hún ótta umhverfis sig. Hin-
ar háttsettu konur Parísar, höfðu
ekki sparað háð sitt á frú Coty, milli-
stéttarkonuna, sem var gift fyrrver-
andi forseta. Klær þeirra og bitru
tungur, eru bæði miskunnarlausar
og sjálfumglaðar en andspænis frú
de Gaulle verða þær þögular og ótta-
slegnar.
Til þess að geta skilið hana, verð-
um við að nálgast hana betur. Hún
fæddist í Calais 22. maí árið 1900 og
var gefið nafnið Yvonne Carlotte
Anne Marie Vendroux. Vendroux
fjölskyldunni getur maður fylgzt
með hundrað ár aftur í tímann. Þeir
voru verksmiðjueigendur og skipa-
byggjendur. Ættliður eftir ættlið var
alinn upp eftir föstum reglum.
Drengirnir fengu kennslu sína hjá
prestum og stúlkurnar, sem ávallt
klæddust svörtu, voru færðar 1
nunnuskóna af fóstrum sínum og
sóttar á kvöldin. Æsku sína átti
Yvonne í Calais, á sloti fjölskyld-
unnar í Charleville. Hún var skáld-
leg og trúhneigð og lét eitt sinn svo
um mælt, að lífstakmark hennar
væri að lifa og deyja í sama húsinu.
Henni gekk vel í skóla, ef til vill
of vel. Eitt sinn kom það fyrir þegar
hún var sextán ára, að stíll hennar
10
FRÚIN