Frúin - 01.06.1963, Blaðsíða 13

Frúin - 01.06.1963, Blaðsíða 13
inn næsta laugardag og stakk upp á því, að þau útveguðu sér þoðskort. Charles féllst þegar á hugmyndina, og íklæddur einkennisbúningi og orðum frá stríðinu gekk hann til Yvonne og bauð henni upp í dans. Litlu seinna sá frú Vendroux, þar sem hún sat dauðuppgefin og drakk kaffi, að frú Danquin kom þjótandi til hennar. „Þau dansa þriðja dans- inn.“ Og þær héldu áfram að telja. „Fjórir, fimm og sex!“ Yvonne kom að hinum tveimur hvíslandi konum og sagði rólega: „Mamma, herforinginn bað mín núna rétt áð- an og ég svaraði honum með jái.“ Konunum létti. Fimm dögum ,síðar var haldin trúlofunarveizla og brúðkaupið var ákveðið hinn 8. apríl 1921. Það var sama ár og Nikita og Nina Krustjev giftu sig. Þá hafði Konrad Adenauer í fjögur ár verið borgarstjóri í Köln. Harold Macmillan hafði einmitt ný- lega dregið sig til baka sem aðstoð- arforingi hjá yfirlandsstjóranum í Kanada, en Jacqueline Kennedy var enn þá ófædd. Lífið í hernum var ekki létt hin fyrstu ár og hin ofsalega metorða- girnd og framtíðaráætlanir Charles, gerðu hann ekki að hinum auðveld- asta manni í sambúð hjónabands- ins. Þegar hann var í fríi frá her- þjónustunni, þá sökkti hann sér nið- ur í bækur um hernaðartækni og um það, hvernig Þjóðverjar yrðu stöðv- aðir, ef þeir reyndu að nýju árás á Frakkland. Honum hlotnaðist einn- ig ofursta tign. En Yvonne dreymdi um líf úti í sveit og hús, sem væri hennar eigið ásamt garði. Hún átti það skilið þar sem hún hafði af skyldurækni alið manni sínum börn og það í réttri röð. Fyrst drenginn Philippe, síðan stúlkuna Elisabet, en árið 1928 náði óhamingjan þeim, er þriðja barnið fæddist. Anne var lömuð, og bæði andlega og líkamlega vanþroskuð, en samt hrífandi stúlka, sem öll fjöl- skyldan unni og tilbað. Árið 1934, eftir fjórtán ára hjóna- band, fékk Yvonne loks uppfylling drauma sinna. Hún eignaðist sitt eigið sveitasetur, La Boisserie, í ná- munda við þorpið Colombeylles- Deux-Eglies, umlukið hálfum öðrum hektara lands. Hér var hún í essinu sínu. Hún bakaði brauð og sultaði. Hún tók þátt í velgerðarstarfsemi þorpsins og gætti baunanna í garð- inum sínum. Hún unni heimilisstörf- um og við sjálft lá, að hún öfundaði þjónustustúlkurnar. Dag nokkurn, að loknu liðsforaingjaboði og yfirmanna á staðnum, kom hún út í eldhúsið þar sem þjónustustúlkan Marguerite var í óða önn við uppþvittinn. Þá mælti hún: „Láttu þetta bíða, Mar- guerite og farðu til hárgreiðslukon- unnar.“ Marguerita varð 'himinlifandi glöð yfir því að geta frestað þessari leið- inda vinnu og fór þegar af stað, en þegar hún kom til baka, sá hún, að frúin hafði þvegið allt upp. Ein þjón- ustustúlkan minntist þess, hversu vel Yvonne féll að sitja í eldhúsinu við hraðprjón sitt, á meðan þjón- ustufólkið vann að störfum sínum umhverfis hana. „Ég kann vel við mig hérna,“ sagði hún afsakandi. „Maður er aldrei einmana í eldhúsi.“ Smekkur Charles de Gaulle var hræðilegt áfall fyrir óásakanlega matreiðslu Yvonne. Ef hún til dæmis spurði: „hvað langar þig í að borða, Charles?“ þá leit maður hennar upp frá sögu hernaðarins, og sagði bros- andi: „Hvernig lízt þér á kál?“ „Þú fékkst kál í gær,“ svarar hún þá andvarpandi. „Jæja, en flatbaunir?“ ,,Þú fékkst flatbaunir í fyrradag.“ „Nú, en soðinn þorsk?“ Álit Yvonne á klæðum var álíka fábrotið og manns hennar á mat. Marguerite, fyrrverandi þjónustu- stúlka hennar, segir eftirfarandi: „Frúin sagði mér, að þegar hún var ung, þá dreymdi hana um að eiga aðeins tvo kjóla. Á því tímabili, sem ég_ um^ekkst hana, var smekkur hennar óbreyttur. Árið sem ég vann hjá henni, þá klæddist hún aðeins einu sinni betri klæðnaði og var þá í svörtum kvöldkjól.“ Síðan skall stríðið á og hinir miklu atburðir, er breyttu Charles de Gaulle og stöðu hans sem óþekktur ofursti, í ódauðlega persónu franskr- ar sögu. De Gaulle sneri við til Frakklands sem hetja, en þegar árið eftir, 1946, var honum þröngvað til þess að draga sig til baka, af hinum gömlu stjórnmálamönnum. Þá áleit hann að vegur hans sem stjórnmálamaður, væri þá þegar á enda fyrir fullt og allt. Við getum ímyndað okkur hversu ánægð Yvonne var yfir því. Auðvitað sýndu hinar nýju gráður, að de Gaulle var ekki hinn sami og árið 1939. Hann hlaut heiður, orður og alheims viðurkenningu, en Yvonne yppti öxlum yfir breytingunum, eins og þær hefðu ekki átt sér stað, og í augum hennar var allt sem áð- ur. Hún sá sjálf um innkaupin hjá Gömul mynd af Yvonne de Gaulle, þar sem hún er í eldhúsinu sínu. kaupmanninum, ók í látlausasta bíl Frakklands í svartri kápu, sem íbú- ar þorpsins þorðu að leggja eið við, að væri frá árunum fyrir stríð, en hún var hin ánægðasta. Árið 1948 dó veslings dóttir þeirra, hin lamaða Anne. í tuttugu ár hafði hún lifað lífi, sem tæplega gat talist líf. Hún dó án þess að gera sér grein fyrir hvað pabbi hennar var og hvað hún sjálf var. Eftir lát Anne, fórnaði Yvonne miklum tíma í það að hjúkra hjálp- arvana og sjúkum börnum. Hún hratt af stað heimili undir nafninu Anne de Gaulle stofnunin, fyrir andlega og líkamlega vanþroska stúlkur. Börn hennar gengu í hjónaband og eignuðust börn. Pilippe, sjó- liðsforingi, kvæntist Henriette de Montalembert og Elisabeth gekk að eiga de Boissieu ofursta. * Fjórða lýðveldið nálgaðist endalok sín. Þjóðin hrópaði á de Gaulle hers- höfðingja í erfiðleikum sínum árið 1957. René Coty, hinn aldraði for- seti, sem bjó fábreyttu lífi í Elysée- höllinni, tók á móti þeim klukkan tíu 13 FRÚIN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.