Frúin - 01.06.1963, Síða 14
KOIMUR
STJÓRNA
í öðrum stað hér í blaðinu er skrifað um konu,
^ sem helgaði sjálfsögðum jafnréttiskröfum
kvenna líf sitt og starf. Nú, nokkrum áratugum
seinna, má segja að hugsjónir hennar og ótal ann-
arra kvenna um víða veröid, hafi rætzt. Allsstaðar
láta konur í sívaxandi mæii æ meir til sín taka á
opinberum vettvangi. Þær eru borgarstjórar, þing-
menn, sendiherrar og ráðherrar, og allsstaðar hafa
störf þeirra verið engu síður árangursrík en samf
bærileg störf karla. „Frúin“ vill vekja athygli á, að
einnig hér á landi hefur þróun þessara mála verið
konum hagstæð, þótt langt sé í land með að ís-
lenzkum konum skiljist, að tími er til kominn, að
þær fari að gefa sig meir að þjóðmálum, þar sem
þær eru fullur helmingur þjóðarinnar og reynslan
hefur sýnt, að nokkuð stór hluti karlmanna álítur
enn þann dag í dag, að staður konunnar sé við
hlóðirnar.
Sem betur fer, gerist skilningur karla á getu og
hæfileikum konunnar æ ríkari, og fyrir því hafa
verið samþykkt lög á Alþingi um sömu laun karla
og kvenna fyrir sömu vinnu. Fyrir nokkrum ár-
um gerðist sá einstæði atburður, að þrjár konur
samtímis voru framkvæmdastjórar samborgara
sinna í langfjölmennustu byggðarlögum landsins,
þ. e. í Reykjavík, Kópavogi og Mosfellssveit.
Frú Auður Auðuns borgarstjóri í Reykjavík, frú
Hulda Jakobsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi og frú
Helga Magnúsdóttir oddviti í Mosfellssveit.
viðtöl
við þrjár for^stnkonur:
Frú Auði Auðunsí.
Frú llnldu Jakolisdóttur.
Frii Ilclgu Magniisidiittiir.
„Frúnni“ finnst þetta mjög athyglisvert, og hefur
ekki fregnað annað en að störf þeirra hafi verið
farsæl og þær hafi verið vinsælar í starfi.
Tilgangurinn með því að vekja athygli á þessu
er sá, að hvetja konur til meiri þátttöku í opin-
berum málum. Þessar konur hafa sýnt og sannað,
að farsæl stjórn landsmála fer ekki síður vel úr
hendi kvenna en karla.
Mætti fordæmi þessara ágætu kvenna verða öðr-
um konum hvatning til starfa á þessu sviði. Er-
lendis fer þátttaka kvenna í stjórnmálum og opin-
berum störfum sívaxandi, og ber ekki á öðru en
að karlar jafnt sem, konur séu ánægð með þá þró-
un mála. „Frúin“ hefur snúið sér til fyrrnefndra
kvenna og lagt fyrir þær nokkrar spurningar, sem
þær hafa verið svo vinsamlegar að svara.
Konur! Munið að það er ekki aðeins heill og hamingja heimilina sem er í
ykkar höndum, heldur er og einnig hlutur ykkar í þjóðarbúskapnum svo mik-
ilvœgur að þið megið ekki undir neinum kringumstœðum vera sinnulausar
um ráðstöíun hans. Karlmennirnir vilja vel, en eruð þið vissar um að þeir
skilji alltaí ykkar sjónarmið? — Kunngerið vilja ykkar og gerið þeim ljóst, að
það eruð þið. sem íáið þeim völdin í hendur.
14
FRÚIN