Frúin - 01.06.1963, Síða 25
Varfotitii untflegt útlit ifðar nneí qéfayn Metfni
KONUR verða yfirleitt fyrr þreytt-
ar en karlar. Konur þarfnast
einnig meiri svefns. Sú kona, sem
hefur tækifæri til þess að sofa nægi-
lega mikið, mun sjá þess merki á
útliti sínu.
SNYRTING UNDIR NÓTTINA.
Meðan sofið er, losar líkaminn sig
við þreytueitur, og það á sér stað
að nokkru leyti gegnum húðina. Þess
vegna megið þér alls ekki — hversu
þreytt, sem þér kunnið að vera —
fleygja yður í rúmið, án þess að
hreinsa húðina vandlega af óhrein-
indum dagsins og öllum lit. Þér verð-
ið að gefa yður tima til þess að
snyrta yður undir nóttina. Þér eigið
að baða augu yðar úr volgu kamillu-
tei. Blóðrásin í húðinni örvast með
því að hún sé strokin kröftuglega með
mjúkum bursta eða grófum þvotta-
poka. Þá andar húðin meira en ella
og það er mikilvægt að næturlagi.
Þér eigið að sofa við opinn glugga,
ef því verður við komið, og þér meg-
ið ekki klæða yður mjög mikið í
rúmið. Það veiklar líkamlega hreysti
yðar og þér verðið næmari fyrir kvefi
að vetrarlagi.
LIGGIÐ ENDILÖNG.
Mikið atriði er að geta sofandi slak-
að á öllum vöðvum. Fyrst á að slaka
á vöðvum í maga og lærum, síðan
í 'fótunum niður í tær, þá í vöðvum
í öxlum, handleggjum og höndum og
að endingu á vöðvum í hálsi og and-
liti. Ef þér venjið yður á að slaka
á vöðvunum í ákveðinni röð, tekst
yður að lokum að slaka á öllum vöðv-
um í einu.
Reynið að liggja endilöng í svefn-
inum og hafið lítið undir höfðinu
og ekki mjög mjúka dýnu. Koddinn
má ekki vera svo mjúkur, að þér
getið grúft andlitið niður í hann, því
þá fáið þér svefnhrukkur.
Ef þér eruð „ofsofnar‘“ að morgni,
þá þvoið yður í framan úr köldu
vatni, og gott er að láta saman við
það ofurlítið af bóraxi. Látið lítið
eitt af olíu eða fituefni á fingurgóm-
ana og rjóðið þessu um andlit og
enni, augu og háls. Hallið höfðinu
fyrst til vinstri og svo til hægri.
Ef þér fáið örlítinn svima við þess-
ar hreyfingar, er það vegna þess að
heilinn er ekki alveg búinn að jafna
,sig eftir svefninn. Það hefur áhrif á
yður. En albezt er að fara í steypi-
bað.
Þér ættuð helzt ekki að sofa minna
en átta klukkustundir á sólarhring.
En því miður eru margar konur
neyddar til að láta sér nægja langt
um minni svefn. Þegar það er gert
lengi, táknar það, er frá líður, rán-
yrkju gagnvart hinu unglega og fagra
útliti yðar. Þess vegna verðið þér
að gæta þess að fá yður blund ein-
hvern tíma dagsins, þótt ekki sé
nema í 10 mínútur, til þess að safna
kröftum til þess, sem eftir er af hús-
störfunum.
EKKI SVEFNLYF.
Þér skuluð reyna að komast af án
svefnmeðala. Fyrsta inntakan býður
Framh. á bls. 54
FRÚIN
25