Frúin - 01.06.1963, Side 30
inga sína, hann teiknar þá líka. Hann
er frístundamálari. Meðal fyrir-
mynda hans má finna meðal annars
Philip drottningarmann og lord
Snowdon.
Stephan Ward býr yfir margs kon-
ar hæfileikum. Hann hefur mikinn
áhuga á kvenfólki, enda þótt sá á-
hugi sé alveg ópersónulegs eðlis, og
þannig er hann fyrsta flokks hjóna-
bandsmiðlari og var í miklu áliti sem
slíkur meðal fína fólksins. Meðal af-
reka hans á þessu sviði má telja
hjónaband lord og lady Astor á
Clivenden. Lady Astor var fyrrum
sýningarstúlka og góð vinkona
Wards. Á Clivenden hittast allir sem.
hafa embætti eða og peninga. Þar
hitti líka hermálaráðherra Englands,
Profumo, stúlkuna sem gerði út um
örlög hans — Christine Keeler.
Það var Christine-Eliza sem breytt-
ist undir snjallri leiðsögn Ward-
Higgins úr smáblómi í húsagarði í
blómstrandi orkídeu símavændisins.
Christine segir svo frá í minningum
sínum, að Ward hafi látið það hittast
svo á, að Profumo — ásamt konu
sinni — sá hana í fyrsta sinni á Evu-
klæðunum einum saman. Svo heppi-
lega vildi til, að henni hafði dottið
í hug að baða sig allsnakin í sund-
laug Wards. En Profumo og kona
hans kunnu sig einum of vel til að
láta í Ijós, að þeim yrði bilt við. —
Annars hefur sitt af hverju átt sér
stað í þessari sundlaug. Meðal annars
var það þar, sem hermálaráðherra
Englands ásamt rússneska sendi-
ráðsfulltrúanum syntu sér til skemmt-
unar með hina fögru Christine á
öxlunum. — Winston Churchill
varð að orði þegar hann heyrði þetta:
Það er ánægjulegt að vita að Eng-
land og Rússland skuli enn hafa
hitzt á sama vígvellinum.
Loks rann sá dagur upp, að Prof-
umo gróf sína pólitísku gröf með þvi
að afneita algerlega sambandi sínu
við Christine frammi fyrir neðri
deild brezka þin^sins. Með þessu
móti vonaðist hann til að geta þagg-
að orðróminn niður. Þar skjátlaðist
honum. Og Macmillan forsætisráð-
herra skjátlaðist einnig með því að
taka lygar Profumos sem góða og
gilda vöru. Á kosningafundi fyrir
skemmstu, var einum frambjóðanda
fyrir flokk Macmillans heilsað með
hróninu: Kjósið Christine!
Keeler-hneykslið hefur ekki aðeins
komið við kaunin á brezku ríkis-
stjórninni, heldur einnig á ensku
kirkjunni. Ástæðan er bók sem einn
biskup ensku kirkjunnar gaf út um
jólaleytið undir nafninu: Honest to
God. Þar er því haldið fram, að það
sé skylda heiðarlegs manns, að
bjarga sér með lygum í lengstu lög,
ef einhver kemst að því, að hann sé
eiginkonu sinni ótrúr. Þetta eigi
hann að gera með tilliti til eiginkonu
sinnar og þjóðfélagsstöðu. Stjórn-
málaandstæðingar Macmillans benda
nú á að Profumo hafi ekki gert
annað en að fylgja ráðum kirkjunn-
ar. og vonast þannig til að geta feng-
andstæðinga kirkjunnar á sitt band,
með því að varpa skugga á kirkjuna.
En söguhetjan sjálf — stúlkan sem
vakti England úr pólitískum Þyrni-
rósarsvefni — hvernig reiðir henni
af?
Það er svo sem gott og blessað að
selja endurminningar sínar fyrir 8
milj. króna, en víst er að ýmislegt
sem hún þagði yfir, getur átt eftir
að kosta hana lífið. Það er a. m. k.
það sem Christine óttast mest. Henni
er alltof vel kunnugt um margt hátt-
sett fólk sem hefur óhreint í poka-
horninu. Það er enginn Ijómi yfir
þessari ungu stúlku sem hefur sak-
leysislegt barnsandlit, en líkama full-
vaxta konu. Christine er farið að
gruna að hún sé nú orðin aðeins leik-
sonpur annarra.
Keeler-málið allt er táknrænt fyrir
þjóðfélagsmeinsemd sem fyrirfinnst
ekki aðeins í Englandi, heldur líka í
öðrum löndum, meðal fólks, sem hef-
ur ekki lengur neitt til að berjast
fvrir og enga örðugleika að etja við.
Æðsta hugsjón þessa fólks verður þá,
að komast hærra í þjóðfélagsstigan-
um, og leika sér í sundlaug í frí-
stundunum. Eða það lætur sér nægja
að kaupa fínna sjónvarpstæki eða
bíl.
Þetta ber ekki svo að skilja, sem
að velferðarþjóðfélagið sé ranglega
skinulagt, öðru nær, velferð er skil-
yrði fyrir mannsæmandi lífi. Það er
engin skömm að því að hafa í sig og
á, það er bláber nauðsyn. En þær
bjóðir sem hafa nú frelsast undan
ánauð hungursins verða líka að
kunna að nota frístundir sínar til
einhvers. Það þarf að beina áhuga-
málum fólks, en þó einkum æskunn-
ar inn á réttar brautir. Það er ekki
nóg að mata hana á dægurlögum og
kvikmyndum. Þegar svo er komið,
skyldi engan undra, þótt útkoman sé
einhvers konar Keeler-hneyksli.
Utivera
Mikil útivera gefur góða heilsu.
Gaktu berhöfðaður, og láttu útiloftið
leika um hár þér, það ver þig bet-
ur móti skallanum.
Farðu út og leitaðu matarlystar-
innar. Hún er einhversstaðar úti.
Farðu út og losaðu þig við tauga-
veiklunina. Hún á heima inni í hús-
inu. Trú, traust og tryggð, ást von og
dirfð, eru förunautar fjalla, skóga
og engja, sigla sæinn og sækja mót
stormi og sól. Jesús kenndi undir
beru lofti. Uppfræðsla og menntun
ætti fram að fara undir beru lofti.
Eftirlætisdraumur minn, er háskóli
utan gátta, þar sem lærisveinar, skó-
lausir, hattlausir, lærðu speki sína
undir sól og stjörnum. Hraustir lík-
amir stemma að mestu stigu fyrir
kveifarskap og duttlungum. Úti getur
þú lært grasafræði, jarðfræði og
stjörnufræði. Sönn vísindi þrífast
best undir beru lofti, eins og náttúr-
an sjálf. Át er hollara utan gátta en
innan. Hesturinn er hraustári en
maðurinn, af því hesturinn verður
að ganga og leita eftir hverri munn-
fylli af grasi, sem hann bítur.
Útiveran er úrlausn fangahúss-
vandamálsins. Frá svartholi til sólar,
á leið mannfélags-úrtíningsins að
liggja, ef hann á nokkurn tíma að
rísa frá eyðileggingu til endursköp-
unar.
Vitskertir sjúklingar sem fyllast
æði í_klefum sínum. verða friðsamari
úti. Útivera er ódýr og ríkuleg.
Jafnvel kossarnir verða betur að
notum úti en inni,
Guð bjó allt utanhúss, en menn-
irnir allt innanhúss. Og guð býr úti
en mennirnir inni — með skurðgoð-
um sínum.
SÉRHVER STÓR HUGSUN ER
LÝGI TIL SMÁMENNISINS.
★
Sennileiki þess, að líf hafi myndast
af tilviljun, er álíka og að óskert
orðabók sé árangurinn af sprengingu
í prentsmiðju!
Edwin Conklin, lífeðlisfræðingur.
Jeg er ofsakátur, ég skelf! Blóðið
rennur hraðar í æðum mér. Guð
hefir beðið 6000 ár eftir áhorfanda
að verki sínu. Viska hans er tak-
markalaus; það sem við vitum ekki,
fellst í honum, jafnt og það litla
sem við vitum.
Jóhannes Kepler, stjörnufræðingur
30
FRÖIN
FRÚIN
31