Frúin - 01.06.1963, Blaðsíða 37
llviln skyrtan
prjón og lagt til hliðar. Annað stykki
prjónað eins. Síðan eru bæði stykk-
in sameinuð með því að búa til 13
lykkjur á milli þeirra. í annari hverri
umferð er síðasta lykkjan af fyrra
stykkinu tekin fram af prjóninum,
fyrsta lykkjan af viðbættu lykkjun-
um prjónuð, og lykkjan á undan síð-
an dregin yfri hana. í lok umferð-
arinnar er síðasta viðbætta lykkjan
og fyrsta lykkjan á öðru stykkinu
prjónaðar saman, og umf. siðan prjón-
uð út. Þegar eftir er aðeins ein af
viðbættu lykkjunum, eru teknar úr
2 lykkjur þar. Síðan prjónað áfram
á 74 lykkjunum, sem eftir eru, Eftir
25 cm frá uppfitjun, er prjónuð 1
umferð brugðin, síðan 6 umferðir
sléttar fyrir faldinn, og svo fellt af.
Bakstykkið prjónað á sama hátt
og framstykkið.
Saumur: Pressið stykkin. Saumið
hliðarsauma og hafið þá 1V2 cm
breiða. Pressið saumana á röngunni
og kastið þá. Saumið skálmasaumana
og brjótið inn faldana og saumið.
Dragið teygjuband í gegn í mittið.
J akkinn:
Hægri boðungur: Fitjið upp 52
lykkjur með bláu garni á prjóna
nr. . Prjónið 5 umf. sl. prjón, síðan
1 umf. brugðið og prjónið .síðan áfram
sl. Á hægri kanti eru 6 lykkjur ávallt
prjónaðar 1 sl., 1 br., og mynda þann-
ig lista framan á boðungnum. Aukið
í 8 lykkjum á prjóninn með jöfnu
millibili, og prjónið áfram sl. Eftir
14 cm frá uppfitjun, eru prjónaðar
2 lykkjur saman næst lykkjunum 6,
sem mynda boðungslistann, 18 sinn-
um í annarri hv. umf., og síðan 5
sinnum í 4. hv. umf. Samtímis 5. úr-
töku eru felldar af 2 lykkjur í vinstri
'hlið, því næst felld af 1 lykkja (1
laus fram af, næsta prjónuð , hin
dregin yfir) þrem lykkjum frá vinstri
kanti 26 sinnum í annarri hv. umf.
Á sama hátt er í hægri kanti því næst
felld af 1 lykkja fjórum lykkjum
frá kanti 3 sinnum í annari hv. umf.
Kantlykkjurnar 6 eru prjónaðar á-
fram 1 sl., 1 br. í 7 cm 1 viðbót,
síðan geymdar á nál. eða þræði.
Vinstri boðungur: Prjónaður gagn-
stætt hægri boðung. Á vinstri kanti
eru gerð 4 hnappagöt: 2 lykkjur
felldar af 3 lykkjum frá kanti, og
í næstu umferð búnar til aðrar 3 yfir
þeim. Fyrsta hnappagatið er gert í
3. u.mferð frá faldi, annað 3 umf.
seinna (hnappagötin 2 í faldinum
eiga að standast á), hin tvö hnappa-
götin eru gerð með 5V2 cm millibili.
Eftir 2. úrtöku í hálsmáli, er vasinn
búinn til: Prjónaðar 3 lykkjur, 2
saman, 6 lykkjur. Lykkjurnar geymd-
ar. Á 18 lykkjunum, sem eftir eru,
er prjónuð 1 umf. sl. eftir 3. úrtöku,
síðan 1 umf. sl. á röngunni, þá 5
umferðir sl. fyrir faldinn, og svo
fellt af. Fitjið upp sér í lagi 18 lykkj-
ur fyrir bakstykki vasans, prjónið 6
cm sl. prjón, og með þessar lykkj-
ur fyrir aftan vasann er nú prjón-
að yfir allar lykkjurnar á boðungn-
um.
Bak: Fitjið upp 70 lykkjur, prjón-
ið 5 umf. sl., því næst 1 sl. á röng-
unni og prjónið síðan áfram sl. prjón.
Aukið 10 sinnum með jöfnu millibili
á næsta prjón. Eftir 17 cm eru prjón-
aðar 2 lykkjur saman 3 lykkjum frá
hægri kanti og 1 felld af (sbr. að
ofan) 3 lykkjum frá vinstri kanti.
Úrfellingin er gerð 26 sinnum í ann-
arri hverri umferð. Lykkjurnar, sem
eftir eru felldar af í einu.
Hœgri ermi: Fitjið upp 38 lykkj-
ur, prjónið 5 umferðir sl. prjón, 1
umferð sl. á röngunni og haldið áfram
með sl. prjón, aukið 8 lykkjum í með
jöfnu millibili í fyrstu sl. umferð-
inni. Aukið 1 lykkju í sín hvoru
megin, 2 lykkjum frá kanti 6 sinn-
um í sjöttu hverri umferð og síðan
6 sinum í 4. hverri Umferð. Eftir 21
cm eru felldar af 2 lykkjur, síðan
prjónaðar saman 2 lykkjur þrem
lykkjum frá hægri kanti og 1 felld
af 3 lykkjum frá vinstri kanti, 26
sinnum í annarri hverri umferð. Úr-
takan ofan á erminni er gerð þannig:
Við 21. úrtöku eru miðlykkjurnar
fjórar prjónaðar þannig, að fyrst eru
prjónaðar 2 saman, þá 1 tekin framan
af prjóninum, sú næsta prjónuð og
lausa lykkjan dregin yfir hana. Þetta
er gert 4 sinnum í 4. hverri umferð.
Lykkjurnar 8, sem eftir eru, felldar
af í einu.
Vinstri ermi prjónuð gagnstætt
þeirri hægri.
Saumur: Stykkin pressuð. Hliðar-
saumarnir saumaðir. Ermasaumarnir
saumaðir og ermarnar settar í. Lykkj-
ur axlsaumanna saumaðar saman og
hálslistinn saumaður við. Saumaður
faldurinn neðan á jakkanum, ermun-
um, og faldurinn á vasanum. Hnappa-
götin á ermalíningunum köstuð sam-
an, og 3 gylltir hnappar saumaðir á
sinn hvorn boðung.
-¥■
Aðeins einhver máttugri mannin-
um, getur stjórnað mætti atomsins!
(kjarnorkunnar).
Lisa Meitner, kjarnorkufræðingur.
*
Jeg trúi á ódauðlega sál. Vísindin
hafa staðfest, að enginn hlutur, eða
efni, getur orðið að engu. Líf og sál
geta þess vegna ekki orðið að engu,
og eru (þar af leiðandi) því ódauð-
leg.
Wernher von Braun,
eldflaugasérfræðingur.
-X
FRÚIN
37