Frúin - 01.06.1963, Síða 48
Allir prinsar austurlanda
biðluðu til hinnar undur-
fögru pnnsessu, Singha,
en furstinn af Bazola
var sá auðugasti. Hann
skildi viS konu sína og
kvæntist hinni fögru
konu. — HjónabandiS
entist aSeins í tvö ár.
Myndin sýnir hjónin
ásamt barni þeirra, sem
er tveggja ár.
LAND-
LAUS ÆVINTYRA DR(
Hjónaskilnaðir eru næsta tíðir
víða um lönd, en þó brá mönn-
um heldur en ekki í London, Cannes
og Monaco, eins og sprengju hefði
verið varpað meðal þeirra, þegar
Furstinn er næst-ríkasti maður
heims. — Þegar hann fór úr
landi átti hann 300 milljónir
dollara.
furstinn í Baroda, smáríki á Ind-
landi, birti eftirfarandi tilkynningu
í stórblöðunum nýverið: „Hér með
tilkynnist, að ég ber ekki lengur á-
byrgð á skuldbindingum konu minn-
ar, hennar hátígnar furstafrúarinn-
ar af Baroda."
En uppgjafafurstafrúin — Singha
að nafni — lét sér hvergi bregða, því
að fáeinum dögum síðar hóf hún
gagnsókn á auglýsingasviðinu og lét
lögfræðing sinn birta eftirfarandi
með stórum fyrirsögnum: „Allt það,
sem hennar hátign hefur meðferðis,
þar á meðal skartgripir, demantar,
aðrir eðalsteinar og perlur, er eign
hennar, og ræður hún ein yfir því.“
Furstafrúin af Baroda er fegurri
en nokkur önnur tigin kona, sem
landflótta er. Það er eins og hún stigi
beint út úr Badad-ævintýrunum á
tímum Harúns Al-Rasids, sem sagt
er frá í 1001 nótt. Hún fæddist í
smáríkinu Baroda, sem naut veru-
legrar sjálfsstjórnar undir hand-
leiðslu Breta, og henni tókst að
krækja í furstann þar, þótt prinsess-
ur af hennar tagi væru til í þúsunda-
tali í Indlandi. Maður hennar var
talinn annar auðugasti maður heims,
auðurinn metinn á 300 milljónir doll-
ara, nizaminn í Hyderabad einn álit-
inn auðugri, enda var gizkað á, að
eigur hans væru 3ja milljarða doll-
ara virði — auk jarðeigna og verk-
smiðja.
Auðkýfingar krafðir um eigur.
Þegar Bretar veittu Indlandi sjálf-
stæði og Nehru varð forsætisráðherra
1947, krafðist hann þess, að þessir
tveir auðugu furstar afhentu ríkis-
sjóði allan auð í fjárhirzlum sínum.
Þeir féllust á það með því skilyrði,
að þeir fengju að halda persónuleg-
um eignum sínum, sem voru all-
nokkrar.
48
FRÚIN