Frúin - 01.06.1963, Qupperneq 62
BLÓMKÁL
Hér eru nokkur atriði,
sem þér skuluð leggja á
minnið.
1. Leggið kálið í kalt
saltvatn dálitla stund.
Skerið burtu grófustu
og ljótustu blöðin en
látið sem mest af grænu
blöðunum vera með. Þau
eru eins og fallegur
rammi utan um hvíta
blómið.
2. Blómkálið á að sjóða
lítið. Það á að vera lif-
andi og frísklegt, en ekki
samanþjappað.
3. Blómkál, sem er
dálítið dökkt, getur líka
verið gott, t.d. í súpur,
jafning eða eggjakökur
(ómelett) o. fl. rétti.
tómatsóslu og rifinn ost með þess-
um rétti.
Hamborgarkótilettur.
750 gr. hamborgarhryggur, 1 egg,
rasp og 1 dl rauðvín.
Skerið hamborgarhrygginn í sneið-
ar. Veltið sneiðunum upp úr þeyttu
egginu og síðan raspinu og steikið
þær síðan á pönnu upp úr smjöri.
Hellið að síðustu rauðvíninu út á
pönnuna og látið sjóða. Kótiletturn-
ar eru bornar fram með grænkáls-
jafningi og brúnuðum kartöflum.
Karry.
Karry inniheldur margskonar
tegundir af kryddi til dæmis hvít-
an pipar,múskat, rauðan pipar, kan-
el, lauk og nellike og ótal margt
fleira. Karrý má nota langtum meira
en gert er og flestir gera sér í hugar-
lund. Allir þekkja hænsnakjöt í
karrý og lambakjöt í karrý með hrís-
grjónum. En það er einnig gott að
steikja kótilettur upp úr karrý og
karrý með steiktri rauðsprettu á-
samt hrísgrjónum er herramanns-
matur.
Bananasneiðar og ananashringir
hvorttveggja brúnað í karrýsmjöri og
borið fram með köldu svínakjöti
(einnig lambakjöti) er mjög ljúf-
fengur réttur.
Kjötið er sneitt niður og sneiðarn-
ar lagðar á fat. Bananasneiðunum
velt upp úr karrýi og þær brúnaðar
varlega í smjöri á pönnu. Teknar af
pönnunni og raðað ofan á kjötið. I
þessu tilfelli má nota jöfnum hönd-
um ananas eða banana.
Nougat-kaka.
130 gr. smjörlíki.
130 gr. sykur.
2 st. egg.
150 gr. lyftiduft.
1 matsk rjómi.
Hrærið smjörlíkið, látið sykurinn
í og hrærið saman unz orðið er létt.
Látið eggin út í eitt og eitt í senn.
Hveitið blandað lyftiduftinu, rjóm-
anum blandað í deigið. Bakist vel í
vel smurðu kökumóti.
Kaldri kökunni er skipt í þrjá
hluta. Þeir lagðir aftur saman með
smjörkremi á milli og einnig er kak-
an smurð að utan með smjörkremi.
Skreytt með nougati.
Smjörkrem: 150 gr. smjörlíki, 200
gr. flórsykur, eitt stk. egg, 3 tesk.
vanilludropar. Smjörlíkið hrært, flór-
sykrinum, eggjunum og vanilludrop-
unum bætt út í. Hrært um stund.
Nougat: 100 gr. sykur, 50 gr. möndl-
ur. Sykurinn bræddur, söxuðum
möndlunum bætt út í. Látið kólna á
smurðri plötu. Mulið og sett á kök-
una.
Hafrabrauð.
300 gr. hveiti.
200 gr. haframjöl.
5 tesk. lyftiduft.
2 matsk. sykur.
2 stk. egg.
70 gr. smjörlíki.
Ca. Vi 1. mjólk.
Þurrefnin látin í skál. Mjólkinni,
eggjunum og bráðnu smjörlíkinu
bætt út í. Bakað í vel smurðu aflöngu
móti.
Hnetukökur.
100 gr. smjörlíki.
200 gr. púðusykur.
2 stk. egg.
1 tesk. vanilludropar
350 gr. hveiti.
2 tesk. lyftiduft.
Vi tesk. salt.
100 gr. saxaðar hnetur.
Blandið saman þurrefnunum, mylj-
ið þar í smjörlíkið. Eggjunum og
vanilludropunum bætt í. Deigið hnoð-
að. Mótaðar tvær 5—6 cm. þykkar
lengjur. Látið standa í kæli í 1—2
klukkustundir. Skorið í sneiðar Bak-
að á velsmurðri plötu ljósbrúnar.
Kókóskransar.
200 gr. hveiti.
200 gr. kókósmjöl.
150 gr. sykur.
200 gr. smjörlíki.
1 stk. egg.
Venjulegt hnoðað deig. Hakkað
gegn um hakkavél, notið stjörnu-
mynztrið, skorið í 8 cm. langa bita,
sem úr eru mótaðir hringir. Bakað
við góðan hita í nálega 8 mínútur
Eins og allir vita þykir engin
hárgreiðsla fullkomin nema borið
sé hárlakk í hárið. Að sjálfsögðu eru
ótal tegundir á boðstólum og allir
hrósa sinni vöru. Uppi hafa verið
raddir um að hárlakk væri skaðlegt
hárinu ef það væri lengi í. Enginn
dómur skal á það lagður hér, en trú-
legt er að það sé ekki til bóta. Nú
er hinsvegar komið á markaðinn
nvtt hárlakk sem hægt er að bursta
úr hárinu hvenær sem er. Og auð-
vitað er það París, sem sendir þetta
frá sér. Þetta hárlakk hefir nú þeg-
ar náð geysimiklum vinsældum og
sölu í Evrópu og er nú komið hér á
markaðinn. Klesst hár af hárlakki er
ljótt og er mikill hægðarauki að geta
burstað lakkið úr í stað þess að
þurfa að þvo hárið, því að eins og
við vitum má ekki gera það of oft.
Þetta hárlakk heitir ELNETT og fæst
í verzlunum.
62
FRÚIN