Stígandi - 01.07.1943, Page 31

Stígandi - 01.07.1943, Page 31
STÍGANDI UM MÁLVÖNDUN 21 meira. Tungan er þrungin vizku, og mér er það fyllilega ljóst, að þeir, sem hafa yndi af henni, meta hana meira en öll tól og tæki, koppa og kirnur. En allt um það er aðalhlutverk hennar í því fólgið að vera tæki, sem menn beita til þess að tjá hugsanir sínar og komast á snoðir um, hvað öðrum býr í brjósti. Hlutverk málsins er það, að gera mönnum kleift að blanda geði, eins og forfeður vorir komust að orði. En mönnum er mjög ólíkt farið. Sumir eru fálátir og þyrrk- ingslegir, aðrir sítalandi og hjalandi. En ég vænti þess, að ég fullyrði ekki of mikið, þótt ég haldi því fram, að enginn hafi svo mikla óbeit á viðræðum við aðra menn, að honum brygði ekki í brún, ef hann vaknaði við það einn morguninn, að hann hefði glatað hæfileikanum til að tala og gleymt tungunni. Þetta staf- ar ekki aðeins af því, að allir hafa eitthvert yndi af samræðum við annað fólk, heldur einnig af því, að þetta málæði er mönn- um nauðsynlegt og óhjákvæmilegt. Án málsins væri lífsgleðin horfin og samneytið við annað mennskt fólk að mestu úr sög- unni. Með þessu vildi ég þó alls ekki halda því fram, að þindar- laust málskalp sé lofsvert eða æskilegt. Heppilegast er, að sú elfur flæði ekki yfir bakka sína, en hún má hins vegar ekki þorna. En málið er tæki hugsunarinnar á fleira en einn veg. Það er ekki aðeins flutningatæki hugsunarinnar, ef svo mætti að orði kveða. Með þessu á ég við það, að hlutverk málsins er annað og meira en það, að því er beitt til þess að flytja hugsanir frá ein- um manni til annars og frá einni kynslóð til annaírar. Sé það þó fjarri mér að draga úr mikilvægi þessa flutnings, því að á hon- um er reist tilvera allrar menningar. Hvað væri um bókmennt- irnar og vísindin, ef þetta væri aðeins hugsanir, sem skyti upp í heila einhverra afburðamanna, en kæmist aldrei þaðan út til okkar hinna? Þetta myndi hafa það í för með sér, að reynslan gæti ekki færzt frá einum einstaklingi til annars, hver maður gæti einungis hagnýtt sér reynslu sjálfs sín, en einskis annars. En rista ekki áhrif málsins enn dýpra? Á því leikur enginn vafi. Án orða væri ekki um að ræða neina hugsun, sem nefnandi væri því nafni, því að við hugsum í orðum, eins og komizt hefir verið að orði. Um leið og við nemum málið, lærum við að hugsa, og hugsanir manna eru tengdar orðunum órjúfandi böndum. Án einhvers konar tákna, hygg ég, að öll æðri hugsun komi ekki til

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.