Stígandi - 01.07.1943, Page 37

Stígandi - 01.07.1943, Page 37
STÍGANDI UM MÁLVÖNDUN 27 hvötum. Áður hefir verið um það rætt, hversu náið samband er milli máls og hugsunar. Það liggur því ekki f jarri að álykta sem svo, að vandað mál og vönduð hugsun fari alla jafna saman. Ég veit, að frá þessu eru undantekningar. Hér er alls kostar óhugs- anlegt að gefa algildar reglur. En þetta mun þó vera meginregl- an. Vandvirkni um eitt atriði ætti að hafa í för með sér vandvirkni um annað, sérstaklega þegar þessi atriði eru jafnnáskyld og þau, er hér um ræðir. Það mætti því ætla, að þroski einstaklingsins sem einstaklings vaxi við það, að hann leggi rækt við málið, fági það og vandi, eftir því sem kostur er á. En nú skulum við athuga málið frá enn annarri hlið, sem ekki kemur neinni siðfræði við. Allir vilja, að eftir því sé tekið, sem þeir segja eða rita. Þeir hyggja alltaf, að það sé ákaflega merki- legt, hversu fánýtt sem það er. Þetta er veikleiki flestra, en vafalaust hefir hann hlutverk að vinna. Það efa ég ekki. En hvernig er því nú farið? Er meiri gaumur gefinn máli manna, ef það er vandað eða óvandað? Hér er heldur engar algildar reglur hægt að gefa. Þetta fer að miklu leyti eftir því, til hvers konar fólks menn snúa máli sínu. En mér er nær að halda, að menn fái betri áheyrn hjá góðum áheyrendum, ef þeir vanda mál sitt, og ég þori að fullyrða, að ritverk lifir því lengur sem það er ritað á vandaðra máli. Og hnyttin tilsvör geta lifað öld- um saman, ef hugsunin hæfir í mark, en það getur hún því að- eins gert, að henni sé valinn haglegur búningur, vandað mál. Af þessu er auðsætt, að menn auka sinn eigin hróður með því að leggja stund á málvöndun. Það ber því allt að sama brunni, skiptir ekki máli, frá hvaða bæjardyrum þetta er séð. Niðurstaðan verður ávallt sú, að mál- ið beri að vanda. Mönnum finnst ef til vill óþarft að eyða svona mörgum orðum að því að styðja þetta rökum. En ég er á öðru máli. Hirðuleysi eða að minnsta kosti tómlæti um meðferð málsins er allt of almenn með oss Islendingum. Menn þurfa ekki annað en lesa verk helztu rithöfunda vorra nú á tímum, svo að ekki sé minnzt á blöðin, til þess að sannfærast um, að þessi staðhæfing er á rökum reist. En hvers vegna er þessu þannig háttað? Um það hefir að nokkru leyti verið rætt áður, en ég get ekki stillt mig um að bæta hér nokkru við. Það getur verið, að þetta stafi að nokkru leyti af vanþekkignu, en sú van- þekking hlýtur að einhverju leyti að stafa af því, að menn

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.