Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 42
32
FJÖLL OG FIRNINDI
STÍGANDI
síðan fjölgað vel og eðlilega, og munu þau nú vera full 400
talsins.
Lítið var vitað með vissu um hjörð þessa, fjölda hennar og
útbreiðslu, fyrr en haustið 1939. En þá tóku sér ferð á hendur
þeir félagar, Helgi Valtýsson og Edvard Sigurgeirsson, ljós-
myndari á Akureyri, og heimsóttu hreindýr þessi í sumarhögum
þeirra, Kringilsárrana, sem er þríhyrnd landspilda vestan Jök-
ulsár, — en milli hennar og Kringilsár, — og nær alveg inn
undir brún Brúarjökuls. Var þá fylgdarmaður þeirra félaga
Friðrik bóndi Stefánsson á Hóli í Fljótsdal, og var hann síðar
settur eftirlitsmaður hjarðarinnar. Hafa þeir félagar síðan haft
vakandi auga á „hreindýra-málum“ öllum, og síðastliðið vor
lögðu þeir upp í nýjan leiðangur, en þá til vetrar- og vor-stöðva
dýranna, Vestur-öræfa. Var ferð þessi farin í síðari hluta maí-
mánaðar og fram í júní, en um það leyti vors stendur yfir burð-
ur kúnna á Vestur-öræfum.
I báðum leiðangrum þessum tók Edvard Sigurgeirsson all-
margt mynda og kvikmynda, og eru það fyrstu myndir, sem
teknar hafa verið af íslenzkum hreindýrum villtum.1)
Fyrri för þeirra félaga var hafin frá Möðrudal á Fjalli og
haldið þaðan inn undir Jökul, vestan Jökulsár á Brú. En síðari
förin var hafin frá Reyðarfirði, eystra, og að öræfaferðinni lok-
inni var haldið landveg heimleiðis, norður fjöll um Möðrudal,
Grímsstaði og Mývatnssveit. —
Jökulsdalsheiði, landflæmið mikla frá Möðrudalsfjallgarði
austur að innstu daladrögum Vopnafjarðar og suður að efri
hluta Jökulsdals, er að leggjast í eyði. Áður voru hér 15 heiða-
býli alls, og mörg þeirra til skamms tíma. Var sauðf járrækt all-
mikil á Heiðinni og lífvænlegt á marga vegu, þótt býli legðust
í eyði öðru hvoru sökum eldgosa og hallæris. En sum þeirra
risu þó upp á ný um hríð. Áður fyrr voru einnig hópar af hrein-
dýrum á Heiðinni, en hurfu þaðan af manna völdum sem annars
staðar. Mikið haglendi er í Heiðinni og víðlent, veiðivötn mörg
og góð, veiði og veiðiskilyrði óþrjótandi. En fólkið hefir smám
saman gefizt upp í lífsbaráttu sinni. Einangrun, fámenni, af-
]) Útgáfufélagið Norðri á Akureyri hefir í undirbúningi allmikla „hrein-
dýra-bók“, sem koma á út í haust. Verður þar skýrt frá flestu því, sem um
hreindýr er vitað hér á landi. Eru þar einnig frásagnir um ferðir þeirra
félaga og árangur þeirra. Verður í bók þessari margt mynda af hreindýr-
um, hreindýraslóðum o. fl. Höf.