Stígandi - 01.07.1943, Page 43
STÍGANDI
FJÖLL OG FIRNINDI
33
skiptaleysi „hins opinbera“, — allt hefir lagzt á eina sveif með
„mæðiveiki illra örlaga“. — „Sumarhús" — afsakið! Veturhús
eru nú í eyði ásamt tólf öðrum heiðarbýlum, og eru nú aðeins
tvö ein eftir: Sænautasel og Heiðarsel. Eru bændur beggja,
gamlir menn og þreyttir, að þrotum komnir, — og svo leggjast
þessi síðustu býli tvö í auðn!
Er þetta ekki átakanlegur „heiðarhamur?“
Hér verður ríkið að taka í taumana, áður en það er um sein-
an! Merkilegur þáttur í lífi þjóðarinnar er að líða undir lok, án
þess að nokkuð sé gert til að semja þar nýjan þátt og glæsileg-
an, sem þó væri harla auðvelt, ef skáldgáfa þjóðarinnar væri
runnin úr frjómold hins lifanda lífs, en ekki pappírsgögn ein og
hversdagslegt hrjósturlendi. — Hér gætu verið hlý og vistleg
heiðabýli, traust og velbyggð, með velræktaðan túnblett og
velhirtan, góða veiðikænu, fáeinar ær og — 200—300 hrein-
dýra hjörð! Þá væri heiðabúunum vel borgið! Og lífið yrði þeim
þroskavænlegur leikur í hæfilegri baráttu við eðlilega erfiðleika
lífsins. —
Nú liggur aðal-bílvegurinn til Norðurlands um Heiðina miðja.
— Á hann þá aðeins að verða til þess að flytja síðasta heiðarbú-
ann til grafar, — eða á sveitina? — Það væri sárari heiðar-
harmur, en tárum taki!-----------
Hreindýrin eru „útigangssauðir" íslendinga! Þau þurfa hvorki
hús né hey. Þess vegna eiga þau heima á heiðarbýlunum, öllum
öðrum fénaði fremur, því að þau eru sjálfkjörin iénaður fjalla
og öræfa! — Á þetta hefi ég bent öðru hvoru í 20—30 ár, og
ég mun gera það framvegis, meðan ævin endist, unz rödd hróp-
andans nær að lokum eyrum „heimdalla“ þjóðarinnar!
Til þess að framkvæmd verði hafin í þessa átt, þarf að breyta
til hið allra bráðasta. Hreindýrin eiga ekki að vera „Dómsmála-
tarfar og Kirkjumál-kýr“. Enda er það furðu einkennileg ráð-
stöfun og dæmalaus.1) Hér verður Landbúnaðarráðuneytið að
Hreindýrin — þessi vanrækta og vanmetna ríkiseign — hafa sætt
furðulegum örlögum, síðan þeim var troðið upp á stjórnina fyrir fjórum
árum. Lentu þau fyrst, — að visu af eðlilegum ástæðum, — í Viðskipta-
ráðunejrtinu. Árið eftir var svo að sjá, sem væru þau komin til föðurhús-
anna, í Landbúnaðarráðuneytið. Og mátti búast við, að þar fengju þau loks
friðland. — En nú eru þau vistuð í Dóms- og Kirkjumálaráðuneytinu! —
Vonandi á þó eigi fyrir þeim að liggja að lenda í Utanríkisráðuneytinu, því
að þá kynni að vera hætta á að þeim yrði „skilað aftur“ til útlanda, — með
lítilli þökk fyrir lánið! Höf.