Stígandi - 01.07.1943, Blaðsíða 44
34
FJÖLL OG FIRNINDI
STIGANDI
taka í taumana, áður en orðið er um seinan, og fela síðan Bún-
aðarfélagi íslands framkvæmdir allar. Myndi þá Búnaðarfélagið
láta einhvern ráðunauta sinna hafa með höndum málefni þetta,
unz skipaður yrði „hreindýra-ráðunautur", og ætti þess ekki að
verða langt að bíða. — Þá munu hreindýrin skjótt verða landi
voru að því gagni, sem til var ætlast í upphafi.
Hreindýrin eru sá eini búpeningur, sem gert getur öræii ís-
lands arðberandi og fegrað þau stórum!
„Þat vil ek, at þeir ráði, sem hyggnari eru, því at verr þykki mér sem
oss muni duga heimskra manna ráð, er þau koma fleiri saman.“
Olafur pá Höskuldsson.
„Eigi má ek þat vita, herra, at ek hafa hér mikinn sóma með yður, en
móðir mín troði stafkarls stig út á íslandi“.
Auðurm vestfirzki.
„Skýzk þeim mörgum vísdómurinn, er betri ván er at“.
Grettir Ásmundsson.
„Hefir hver til síns ágætis nökkut“.
Gunnar á Hlíðarenda.
„Berr er hverr at baki, nema sér bróður eigi“.
Kári Sölmundarson.
„Seint er um langan veg at spyrja sönn tíðindi".
Snorra-Edda.