Stígandi - 01.07.1943, Síða 54

Stígandi - 01.07.1943, Síða 54
44 SKOLLA-FAXI STÍGANDI sem tekið getur fram í, ekki eitt fuglskvak í allri víðáttunni á milli slaghörpuleikarans og hásætis drottins. Morguninn eftir hitti ég villimann. Hann sagðist vera vinnu- maður hjónanna, sem byggju í kofanum, og að hann byggi í hreysi skammt frá. Hann sagði, að þau væru búin að vera þar í mánuð, að slagharpan hefði verið flutt á uxavagni út í óbyggð- ina, og að hann — villimaðurinn sem við nefnum svo — færi í kaupstað eftir nauðsynjum tvisvar í mánuði. Hann sagði mér einnig frá eldinum. Villimaðurinn hafði verið að klifra upp úr árgilinu, með vatnsfötu í hendinni, þegar hann varð eldsins var. Að vísu var það aðeins reykurinn, sem hann sá, en þessir svörtu piltar hafa haukhvöss augu. „Eftir lítinn tíma stór eldur“, sagði hann. Svo skildi hann við mig, en ég hugsaði, hvað þessi maður og þessi kona gætu verið að gera úti í óbyggðum Ástralíu með slaghörpu og tónleika“. Ég sneri mér snögglega að Vasonji og spurði: „Virðist yður þögn ríkja í þessum mosavaxna bæ? Þér vitið ekki, hvað þögn er! Umhverfis yður er sífelldur kliður. Dynur járnbrauta, mál- æði kvenna og karla á kaffihúsum, bifreiðaskrölt og verksmiðju- gnýr, en í landinu, sem ég er að segja yður frá, þar var ekkert nema þögnin, og ein slagharpa. Þær börðust um _ völdin, en Suður-Krossinn horfði rólegur á“. Ég sagði frá, hvernig ég hefði reynt að komast hjá að heyra slaghörpuleikinn næsta kvöld. ---------„Það var ekki um að villast, að eldur var laus í skógin- um, það var komið reykjarmistur í loftið, sem fór vaxandi, er á kvöldið leið. Það var skógareldur á fimm til tíu mílna svæði. — Ekkert til að óttast í svipinn, en bezt að vera við öllu búinn; enginn gat sagt, hvenær vindstaðan breyttist, og ef eldurinn læsti sig í kvoðutrén, þá var voði á ferðum fyrir þau, sem í kof- anum bjuggu. Ég lét slaghörpuleikinn ekki trufla mig, meðan dagsins naut, og er rökkvaði, gekk ég út á sléttuna, en tónarnir eltu mig. Það var líkt og þeir legðu landið undir sig og heyrðust hvar sem maður var staddur, og þetta kvöld var ég meira á valdi tónanna en áður; nú voru þeir blandnir trega og ekka, þeir stigu frá jörðu til himna, liðu frá stjörnu til stjörnu, og teiknuðu myndir á bláar vegleysur himnanna. . Ég sá hersveitir ríða um loftið: Riddara með glóandi stjörnur á spjótsoddunum, þungvopnað fötgöngulið, sem hjó heil sólkerfi í smáa hluti, en út úr skuggunum stigu svipir dáinna kvenna og köstuðu á mig kveðju um leið og þær liðu og hurfu. Þvílíkan

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.