Stígandi - 01.07.1943, Side 55

Stígandi - 01.07.1943, Side 55
STÍGANDI SKOLLA-FAXI 45 slaghörpuleik hafið þér aldrei heyrt, af því að þér hafið aldrei heyrt fulla þögn heldur sífelldan dyn, því að í Evrópu er ekki til full þögn“. Ég tók mér málhvíld. — Ég varð þess var, að Vasonji tautaði fyrir munni sér: Skolla-Faxi, talaði við sjálfan sig um hann, og ég fór að fá ljósari hugmynd um hann en ég hafði áður haft, og af sundurlausum orðum og setningum þótt- ist ég skilja, að hann hefði verið hið mesta mannsefni. Gamli maðurinn tautaði um frægð og allan þann auð, sem þeir hefðu getað unnið sér með hljómleikum í stórborgum heimsins: Kan- ada, Brazilíu, Ástralíu, Ameríku og Evrópu. — „Haldið þér áfram“, sagði hann svo, „segið mér allt, sem þér vitið“. —„Þegar slaghörpuleikurinn var að trylla mig, var hendi lögð á öxlina á mér. Það var villimaðurinn. Honum var mikið niðri fyrir: „Eld- ur kemur! Kemur fljótt!“ Ég leit í kringum mig, ég fann fljótt brunalyktina úr skóginum. Vindurinn hafði breytzt, og eldurinn stefndi á kofann. Hann var enn í nokkurra mílna fjarlægð, en færðist óðum nær. „Gerðu þeim aðvart“, sagði ég við villimann- inn. „Það þýðingarlaust. Hann bara spila. Hann ekki skilja neitt annað en spila“.------ Þegar ég sagði Vasonji frá því, er næst gerðist, sá ég hana eins og hún birtist mér í kofadyrunum stundu síðar, þegar ég hafði lengi barið á hurðina. Hún kom með kertisstúf í hendinni, hélt honum hátt og horfði á mig hreinum, bláum augum. — Einu sinni sá ég mynd af her Atla Húnakonungs, þar sem hann er á göngu sinni til Róma. í þeim her voru konur, sem minntu á hana. Háar, bjarthærðar, brjóstamiklar, sterkar, en þó göfugar útlits. Þykkar hárfléttur féllu niður axlir og brjóst, og þær báru ungbörn eða hjálpuðu til að draga þunga flutningavagna. Ég fór að lýsa henni fyrir Vasonji. — Eins og þess væri nokkur þörf. — Hann sagði aðeins: „Marga! Marga!“ Ég hefði átt að skilja, hvernig í öllu lá, en í ákafa og hita frásagnar minnar, gleymdi ég því, er ég annars hefði mátt renna grun í. „Þegar hún opnaði dyrnar, skall slaghörpuleikurinn í fang mér með öllu sínu seiðmagni. Ég sá baksvip mannsins, er sat við hljóðfærið. Miklar herðar og höfuð með flaksandi faxi af dökkrauðu hári. — Fax, var eina orðið, sem hægt var að nota um þvílíkt hár. — Svo hallaði konan hurðinni að stöfum og við stóðum utanhúss, undir suðrænum næturhimni og hlustuðum á brakið og súginn í skógareldinum, sem þá færðist óðfluga nær. „Það er hætta á ferðum“, sagði ég við konuna. „Vindurinn

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.