Stígandi - 01.07.1943, Síða 65
STÍGANDI
FRÚIN Á GRUND
55
tignarsæti því, er henni var ætlað. Menn sögðu, að hún hefði
gert það til að minna sjálfa sig á auðmýkt frammi fyrir guði.
Frú Valgerður Briem andaðist 17. júlí 1872 94 ára gömul.
Var hún jarðsett að viðstöddu fjölmenni í kirkjugarðinum á
Grund. Hvílir hún þar við hlið eiginmanns síns og sonar, sem
ásamt henni höfðu um hálfrar aldar skeið varpað frægðarljóma
yfir hinn forna sögustað Grund í Eyjafirði.
„Ek hefi þá metnaðargirnd at eiga inn bezta manninn ok inn göfugasta
soninn með honum, er á Islandi mun fœðazk".
Dalla ÞoTvaldsdóttir.
„Ek var ung gefin Njáli, ok hefi ek því heitit honum, at eitt skyldi ganga
yfir okkur bæði“.
Bergþóra á Bergþórshvoli.
„Ok skulum vit binda sár þeirra manna, er lífvænlegir eru, úr hvárra
liði sem eru“.
Halldóra Gunnsteinsdóttir.
„Nú er mikit um sólskin ok sunnanvind, ok ríður Sörli í garð.“
Þórdís Guðmundardóttir.
„Þeim var ek verst, er ek unna mest.“
Guðrún Ósvíiursdóttir.
„Þat muntu hugsa, at þú munt þykkjast hafa gert meiri þoranraun en
tala vit konur.“
Þorgerður Egilsdóttir.
„Þú munt illa mæla eftir hann dauðan, er þú veitir honum eigi lifanda.
En eigi skal ek þá annan ala son, ef þú selur þenna undir vápn.“
Kona Þorvarðs Höskuldssonar.