Stígandi - 01.07.1943, Page 68

Stígandi - 01.07.1943, Page 68
58 BJARNI STÓRHRÍÐ STÍGANDI Léttur í spori, hreinn og snyrtilegur gekk hann við hlið mér, þreyttum og kolmórauðum af heyryki. Allt ryk settist að mér. „Ójá, það var einu sinni draumur minn að verða læknir“, tók Bjarni upp annars hugar, mældi Bröttuhjalla íhugulum augum og varp öndinni lítilsháttar. Svo leit hann hálfkankvíslega á mig, eins og hann læsi spurnir þær, sem flugu um hug mér, og sagði: „Þakka þér fyrir dagsverkið, drengur minn, þú ert orðinn þreyttur. Flýttu þér í háttinn, og njóttu svo vel sunnudagshelg- arinnar". — Daginn eftir var sama blíðviðrið. Það var þetta dásamlega veður, sem stundum fylgir rakinni sunnanátt í dölunum hér norðanlands. Sólin skein í heiði, örléttur sunnanandvari bærði laufið á trjánum sunnan undir Hemingsstaðabæ, þrestirnir léku í og yfir birkiskóginum í neðstu hlíðum Bröttuhjalla og Vígi gamli lá móður af hita og vellíðan við fætur mér, þar sem ég sat á garðbroti upp af bænum. Eg man, að ég var búinn bezta skarti ungra manna þá, tár- hreinni, hvítri Byronsskyrtu, sem svo var nefnd, og mig dreymdi um vissa átján ára stúlku í ljósum sumarkjól með rauðu belti, stúlku með ljósa, leikandi lokka, geislandi bros og dularfull veðrabrigði í augum. „Góðan daginn, gott er veðrið enn“, sagði Bjarni, sem kom að í þessum svifum og settist á garðbrotið hjá mér. „Dásamlegt veður“, svaraði ég og reyndi að vera skáldlegur og djúpsær: „Það eru svona stundir, sem gefa lífinu fyllingu og unað og gera það vert þess að lifa því“. „Þær eru góðar í og með, en það er starfið, fyrst og fremst starfið, sem gefur lífinu gildi“, svaraði Bjarni. „Það er harðrátt, ef það fær húsbóndavaldið yfir mönn- um“, sagði ég. „Og friðsældin og kyrrlætið eru hættuleg, ef þau komast í vana“, anzaði Bjarni. „En hann er þungur að bera kross stritsins og áhyggnanna langa ævi“, þráaðist ég við. „Og þó hafa örlögin oft komið þyngra höggi á þann áhyggjulausa einmitt vegna þess, hvað þau hafa getað valdið honum snöggra og óvæntra umskipta“, svaraði Bjarni alvarlega og horfði fjar- hugulum augum yfir sólkyrra sveitina. Eg var hættur að hugsa um átján ára stúlku í ljósum sumarkjól með rauðu belti og dul- arfull veðrabrigði í augum. Eg fann að innri maður Bjarna stór- hríðar var innan skothelgi minnar, og ég gekk umsvifalaust til verks. „Hvernig stóð annars á því, að þú hættir námi, Bjarni, og

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.