Stígandi - 01.07.1943, Side 71

Stígandi - 01.07.1943, Side 71
STÍGANDI BJARNI STÓRHRÍÐ 61 minn urðum að skríða í f járhúsin, og hríðin ofboðsleg og blönd- uð skara og möl, sem veðrið reif úr melunum uppi í heiðaröxlinni. Við komum sjaldnast óblóðugir í andliti inn frá gegningunum dagana þá. Ég segi dagana, því að þessi ofsi stóð samfleytt í f jóra sólarhringa. A fimmta degi stillti. Nú var jólaleyfi mitt senn liðið, og ég flýtti mér að Bjargi til að kveðja Sólveigu. Ég var í dansandi léttu skapi yfir heiðaröxlina, og mér fannst ég frjáls sem fugl, er ég rann á flugaferð niður að Bjargi. Rétt innan við túnið skriplaði annað skíðið mitt á harðspora, og ég stakkst á kaf í mjúka fönnina og var lengi að krafsa mig upp, en ég hló og hugsaði, að fall væri fararheill. Þegar kom í hlaðið á Bjargi, kom gamall hundur lallandi á móti mér, hnusaði þegjandi að fótum mínum, en gekk svo fram á hlaðvarpann, settist þar og rak upp langdregið, ömurlegt spangól inn til heiðarinnar. í því kom bóndinn út, og við heilsuðumst. „Hvar eru stúlkurnar?" spurði hann svo. „Stúlkurnar?" endurtók ég. En svo þóttist ég skilja skensið og sagði brosandi: „Það ert þú, sem felur stúlkurnar fyrir mér.“ En bónda stökk ekki bros. „Það er þá ekkert að þeim, fyrst þú ert svona kátur,“ sagði hann. „Að þeim?“ Eg fann ís- kallt vatn hríslast niður um bak mér. „Komu þær Sólveig ekki hingað á Annan?“ Bóndi sneri sér snöggt við: „Guð hjálpi þér, maður, hvað segirðu? Ætlar þú að segja mér, að þær hafi lagt hingað í bylnum?“ „Nei“, sagði ég, og tungan var sem föst við góminn, „þær fóru góðri klukkustund fyrr en hann brast á, og við töldum víst, að þær hefðu komizt hingað nokkru fyrir byl- inn. Ég var í húsunum, þegar þær fóru, annars hefði ég fylgt þeim“. Mér fannst bóndi horfa lengi, lengi á mig, þar sem ég hallaðist magnstola upp við bæjardyraþilið. Svo heyrði ég rödd hans eins og neðan úr gröf: „Hingað hafa þær ekki komið, við héldum, að þær sætu í góðu yfirlæti hjá ykkur.“ Allt í einu datt mér harðsporinn í hug, og það var sem svefn rynni af mér. Ég sá bónda stara náfölan á mig, báðir hugsuðum við það sama: Þær hafa villzt, sennilega inn á heiðar, og hvað þá? „Við verðum að hefja þegar leit, kallaðu á piltana, ég fer hér inn á heiðina“, og ég rauk af stað. Um tvö hundruð skrefum innan við Bjargstúnið var harðsporinn, sem ég hafði hnotið um. Hann var eftir lítinn kvenmannsfót, og það var eins og táfarið bennti til heiðarinnar. Ég knúði skíðin og hraðaði mér inn hlíð- arslakkana, inn og fram af Bjargi. Isköld skelfingin rak mig á-

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.