Stígandi - 01.10.1943, Qupperneq 8
70
GRÓIÐ LAND
STÍGANDI
landi, sem er að gróa, gætir þessa að vísu lítt. En jafnskjótt og
gróðurbreiðan verður samfelld, hefst hin harðasta samkeppni
milli tegundanna, og þær tegundir, sem sízt fá samlagazt skilyrð-
um þeim, er fyrir hendi eru, verða að þoka um set. Svo er talið, að
í megindráttunum séu það hiti, vatn, loft, ljós og jarðvegur, sem
ráði úrslitum um, hversu tegundirnar skipa sér sarnan. En þegar
vér athugum tiltölulega lítið svæði, eins og land vort er, verðum
vér að skoða hvert smáatriði í þessum efnum niður í kjölinn.
Þótt land vort sé ekki stórt, þá veitir það liarla mismunandi
gróðurskilyrði. Mundi það þó koma enn betur í ljós, ef flóra
landsins væri fjölskrúðugri en hún er. En einangrun landsins
langt frá öðrum löndum hefir valdið því, að tegundir eru hér
færri miklu en loftslag og frjósemi jarðvegsins leyfa. Hiti og
einkum úrkoma eru allmisjöfn í ýmsum héruðum landsins, enda
þótt sá munur sé ekki stórfelldur í ýmsum héruðum á láglendi,
þá munar verulega bæði á meðalárshita og sumarhita eftir hæð
yfir sjávarmáli. Er hitinn stórum mun lægri á hálendinu en niðri
í byggðunum. Sá munur ræður því, að hér koma frarn tvö allólík
gróðurbelti. Láglendið lieyrir til nyrzta hluta tempraða beltisins,
barrskógabeltinu, enda þótt barrskóginn vanti hér. Hálendið og
sum köldustu byggðarlögin eru liins vegar heimskautalönd að
gróðurfari.
Mislent er hér einnig mjög. Hefir það mikil áhrif á hita og raka
jarðvegsins. Hæðir eru ætíð þurrlendari en lægðir, og þuir jarð-
vegur hlýrri en rakur, svo að þessa sér glöggan mun í gróðurfari.
Þá er ætíð miklum mun hlýrra í brekkum, sem snúa gegn sólar-
átt en hinum, sem skuggamegin liggja. Skjól er plöntunum einnig
mikilsvirði. Þá má ekki gleyma snjólaginu á vetrum. Mikill snjór
er hagkvæmur gróðri, ef hann einungis liggur ekki svo lengi frani
eftir sumri, að vaxtartíminn styttist verulega af þeirri sök. Þá
hefir og sjóloftið sýnilega nokkur áhrif í þessu efni, enda ætíð
hægt að finna mun gróðurs á útnesjum og inn til dala. En þegar
vér skoðum öll þessi atriði ofan í kjölinn, mun samt koma í ljós,
að raki jarðvegsins um meginvaxtartímann mun verða liöfuð-
atriðið, sem úrslitum ræður um það, hverjar tegundir vaxa saman.
Þá er eðli og efnasamsetning jarðvegsins allmisjafnt. Hér er bæði
gróðrarmold, sand- og leirjörð, og á það allt sinn þátt í því að
skapa gróðurlendi. Þó er þess að gæta, að varla getur miklu mun-
að á efnasamsetningu jarðvegs hér, þar sem meginhluti landsins er
gerður af sömu bergtegund, blágrýtinu, eða á rót sína að rekja til