Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 62

Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 62
STÍGANDI Vera Stanley Alder: LEYNDARDÓMAR TILVERUNNAR Friðgeir H. Berg þýddi. Kafli úr bókinni: The Fifth Dimen- ion and the Future of Mankind. Þráður tilverunnar er leyndar- dómur, sem falinn er bak við þau miklu hlið, sem nefnd eru líf og dauði. Stöðugt sendir hann þó áskoranir — sinn eiginn áróður — út til okkar, með skini hverrar stjörnu, sem blikar gegnum geim- inn. Frá órofi alda hafa hugsuðir allra tíma glímt við að ráða gátu síns eigin lifs. Þeir hafa aðhyllzt og af- neitað, umsagnir þeirra blika eins og stjörnur í dimmu hvolfi sögunn- ar. Sumar beina geislunum til norð- urs, aðrar til suðurs, sumar hafa mikið ljósmagn, aðrar minna. Rúm og tími, orka og efni, hafa verið viðfangsefni hugsuðanna. Þeir hafa látið eftir sig mikinn fjölda skoðana, hugmynda og fullyrðinga; margar snjallar, en flestar ósamrým- anlegar. Fornir spekingar töluðu um lífið eða tilveruna sem sérstök svið. Nútíma vísindi ræða um hreyf- ingar og bylgjur, og þeir, sem lengst virðast komnir, tala um stærðir. Gætum við fengið ljósa hugmynd um, hvað hinir ýmsu fræðimenn hafa viljað, og vilja enn, láta þessi nöfn tákna, þá myndum við geta fundið skyldleika þeirra á milli, við kæmumst — ef til vill — að raun um, að þau mynduðu eina sam- stæða heild, sem brugðið gæti ljósi á leyndardóminn um lifið — bjart- ara ljósi en við fram til þessa höf- um átt kost á. I því, sem hér verður sagt, verð- ur reynt að forðast fornar slóðir spekinga og hugsuða liðins tíma, einnig verður reynt að sneiða hjá skáldskap, trúarbrögðum og heim- speki — en innan þeirra takmarka fluttu hinir fornu hugsuðir fræði sín. Ætlun vor er að fylgja sem mest því, sem nú eru nefnd vísindi. — — Líklegt má telja, að hæsta tindi nútíma vísinda hafi verið náð af Einstein, er hann kunngjörði fund sinn á hinni fjórðu stærð. Nú vill svo til, að fáir hafa átt mikinn kost á að mynda sér skoðun — eða ná skilningi á kenningu Einsteins, virðist því vel farið að taka hana til meðferðar, um leið og vér höldum áfram leitinni að leyndardómi til- verunnar. Við skulum ekki láta orð- ið stærð — eða vídd, eins og það er stundum nefnt af sumum — aftra okkur frá að verða einhvers vísari, en vér munum af fremsta megni sneiða hjá vísindalegu málfari og orðatiltækjum, og allt, sem krafizt verður af lesendunum, er að leyfa hversdagsskynsemi sinni að hug- leiða það, sem hér verður sagt. Einstein reisti eins konar virki af stærðfræðilegum sönnunum um kenningu sína. Það hefur efalaust verið gott sönnunargagn fyrir sér- fræðinga, en almenningi varð það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.