Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 33

Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 33
STÍGANDI VONBRIGÐI 95 ég hefi umgengizt þau frá æsku, og þau hafa gert mig einmana, óhamingjusaman og dálítið undarlegan, því neita ég ekki. Hvernig ættuð þér að skilja mig strax, herra minn? Ef til vill munuð þér gera það, ef ég má biðja yður að hlusta á mig í tvær mínútur. Því að þetta er fljótsagt, ef hægt er að segja frá því. Látið mig geta þess, að ég ólst upp í mjög lítilli borg á afar hreinlátu prestsheimili, þar sem ríkti gamaldags, ofstækiskennd bjartsýni lærdómsmannsins, og þar sem maður andaði að sér hinu einkennilega andrúmslofti klerklegrar mælskulistar, — þessara stóru orða yfir gott og illt, fallegt og Ijótt, sem ég hata svo heitt, af því að þau, ef til vill Jrau ein, eiga sök á þjáningum mínum. í mínum augum fólst lífið beinlínis í stórum orðum, því að ég Jrekkti það að engu nenia hinu geysimikla, óraunverulega hug- boði, sem þessi orð vöktu hjá mér. Af mönnunum vænti ég mér guðlegrar gæzku og djöfullegrar mannvonzku. Af lífinu vænti ég mér dásamlegrar fegurðar og skelfilegrar andstyggðar, og losta- kennd löngun eftir öllu Jjessu gagntók mig, djúp, kvíðafull þrá eftir liinum mikla veruleika, eftir æfintýrinu, hvernig svo sem það væri, eftir hinni áfengu, dýrðlegu gæfu og hinum ólýsanlegu, óhugsanlega hræðilegu Jjjáningum. Ég minnist, herra minn, með raunalegri nákvæmni fyrstu von- brigðanna í lífi mínu, og ég bið yður að taka eftir því, að þau voru ekki fólgin í því, að falleg von brygðist, heldur í því, að ó- gæfa dundi yfir. Ég var næstum því enn barn að aldri, er eldur kom um nótt upp í húsi foreldra minna. Eldurinn hafði breiðzt laumulega út og lævíslega, litla húshæðin var alelda alt að her- bergisdyrum mínum, og ekki vantaði heldur mikið á, að stiginn stæði í björtu báli. Ég var sá fyrsti, sem tók eftir þessu, og ég man, að ég þaut um húsið, um leið og ég hrópaði í sífellu þessi orð: Nú brennur! Nú brennur! Ég man glöggt þessi orð, og ég man einnig, hvaða tilfinning fólst á bak við þau, enda þótt ég hafi Jrá ef til vill naumast gert mér hennar grein. Þetta er eldsvoði, — sú tilfinning greip nrig, — nú reyni ég hann! Er hann ekki verri? Er þetta allt og sumt? — Guð veit, að Jretta voru engir smámunir. Allt húsið brann, við komumst öll nauðulega úr mesta háska, og ég sjálfur fékk veru- leg brunasár. Einnig væri rangt að segja, að hugmyndaflug mitt hefði orðið á undan atburðunum og dregið upp í huga mér skelfilegri mynd af húsbruna hjá foreldrum mínum. En óljós grunur, formlaust hugboð um eitthvað miklu ógurlegra hafði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.