Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 23

Stígandi - 01.10.1943, Blaðsíða 23
STÍGANDI UM MÁLVÖNDUN 85 og í viðræðum við menn. Þessi meinsemd er sýnu alvarlegust og grefur um sig jafnt og þétt. Ég á erfitt með að skilja, þó að mér þyki hörmulegt til þess að vita, að þetta geti stafað af öðru en almennri hnignun málsins eða að minnsta kosti hnignandi málkennd manna. En það er ofureðlilegt, að málkenndinni hnigni, því að menn lesa svo skelfilega lítið á góðu máli, eins og ég veik að áður. En við þessu sé ég enga lækningu aðra en þá, að menn breyti um stefnu í þessum efnum, hefji á nýjan leik lestur góðra, íslenzkra bókmennta og nemi setningasmíð af góð- skáldum vorum og fornum rithöfundum. En mál þarf engan veginn að vera vandað, þó að fylgt sé út í æsar viðurkenndum reglum um „rétt mál“. Það er fleira, sem gæta ber. Vandað mál er hreint mál. Við hreinleik málsins, tel ég, að íslendingum beri að leggja mikla rækt. Um það atriði er, að minni hyggju, varhugavert að láta sameiginlega villu (eða öllu heldur venju) veita réttinn. Þar ætti fleiri sjónarmið að koma til greina, sem oflangt mál yrði að rekja hér. Ég vil aðeins benda á, að þetta er utanríkismál tungunnar, þar sem réttleik- inn, sem um var rætt hér að framan, er innanríkismál. Og ein- mitt af þessum sökum verðum við að vera enn varfærnari. Þetta atriði er einnig veigameira fyrir þá sök, að íslenzkan er tunga, sem töluð er af smáþjóð, sem á gínandi yfir höfði sér ísmeygilegar stórþjóðir, er mæla á ginnandi alheimsmáli. Varð- veizla hreinleika málsins er þannig landvarnarmál, þar sem heyja verður þrotlausa og miskunnarlausa baráttu. Það dettur engum í hug að veita erlendum manni, sem rekið hefir á fjörur okkar, þegar í stað íslenzk þegnréttindi. Á sama hátt megum við ekki þegar í stað viðurkenna erlend orð, er slæðzt hafa inn í ís- lenzku, bera annarlegan svip og eiga erfitt með að laga sig eftir íslenzkum beygingarreglum. En hér er við ramman reip að draga, því að mörgum Islendingum þykir mjög gaman að því að láta bera á kunnáttu sinni í erlendum málum. Það er okkur nauðsynlegt, íslendingum, að leggja stund á erlendar tungur og kynnast þannig menningu stórþjóðanna. Ég hefi heldur enga óbeit á því, að menn stæri sig af þessari kunnáttu. Ég held, að það sé hverjum manni gott að vera hæfilega montinn. En þetta mont má ekki verða til þess, að menn óvirði íslenzka tungu með því að saurga hana með erlendum slettum. Þær ber að var- ast af fremsta megni. En ég ætla að biðja menn að hugleiða það, að það er margt fleira erlendar slettur en margur hyggur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.