Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 6
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
vegar rétt á því að fara á eftir-
laun og því er óvíst hvort hún
þiggur biðlaun.
Hinir sjö ráðherrarnir sitja
allir áfram á Alþingi. Þeir eiga
þó rétt á biðlaunum vegna ráð-
herrahluta launanna, eða 482.581
krónu, í sex mánuði, samtals 3,6
milljónir króna hver ráðherra.
Aðstoðarmenn ráðherra eru
11 talsins og þeir fá sömu laun
og skrifstofustjórar, eða 715.235
krónur á mánuði. Þeir eiga rétt
á þriggja mánaða biðlaunum, eða
rúmlega 2,1 milljón króna hver.
kolbeinn@frettabladid.is
ALÞINGI Biðlaunaréttur þing-
manna, ráðherra og aðstoð-
armanna ráðherra nemur
121.190.484 krónum. Óvíst er
hvort allir nýti sér rétt sinn og
taki þeir að sér önnur störf drag-
ast launin frá biðlaunaréttinum.
Alls luku 27 þingmenn störfum
á Alþingi eftir nýafstaðnar kosn-
ingar. Sumir þeirra náðu ekki
kjöri en aðrir höfðu ákveðið að
gefa ekki kost á sér. Þessir þing-
menn eiga allir rétt á biðlaunum.
Þeir sem hafa setið lengur en eitt
kjörtímabil eiga rétt á sex mán-
aða biðlaunum. Þeir sem hins
vegar hafa aðeins setið eitt kjör-
tímabil, eða skemur, eiga rétt á
þriggja mánaða biðlaunum. Þá
skiptir engu hvort þeir sátu allt
kjörtímabilið eða aðeins nokkra
mánuði. Þingfararkaupið er
630.025 krónur á mánuði.
Laun ráðherra samanstanda
af þingfararkaupi og ráðherra-
álagi. Forsætisráðherra er með
1.231.092 krónur á mánuði, en
aðrir ráðherrar 1.112.606 krónur.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra á rétt á sex mán-
aða biðlaunum, eða tæplega 7,4
milljónum króna. Hún hættir
bæði sem ráðherra og þingmað-
ur og er því talin báðum megin
í þessu uppgjöri, þar sem laun
hennar eru tvískipt. Hún á hins
Biðlaunaréttur upp
á 121 milljón króna
Ráðherrar, þingmenn og aðstoðarmenn ráðherra sem nú láta af störfum eiga rétt
á biðlaunum sem nema rúmri 121 milljón króna. Nokkurra mánaða þingseta
gefur rétt á þriggja mánaða biðlaunum. Önnur laun skerða biðlaunaréttinn.
Alls: 121.190.484 kr
23
.6
02
.7
55
k
r
23.874.804 kr
73.712.925 kr
28 ÞINGMENN*
8 RÁÐHERRAR* 1
1
AÐ
ST
O
Ð
AR
M
EN
N
*Biðlaunaréttur Jóhönnu Sigurðardóttur
skiptist í ráðherra- og þingmannahluta
12
þingmenn eiga rétt
á sex mánaða
biðlaunum og 15 á
þriggja mánaða.
Sjálfsöryggi og sátt
Sjálfstyrkingarnámskeið
Sjálfsöryggi og sátt er 10 skipta (20 klst.) námskeið á vegum
Kvíðameðferðarstöðvarinnar þar sem kenndar eru aðferðir til að bæta
sjálfstraust. Lítið sjálfstraust getur hamlað fólki í daglegu lífi, haft
veruleg áhrif á lífsgæði og valdið þrálátri vanlíðan.
Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar, jafnframt
því sem lögð er áhersla á árvekni (mindfulness) og sátt (acceptance).
Á námskeiðinu læra þátttakendur leiðir til að bæta öryggi í samskiptum
og leikari kemur í heimsókn og fjallar um framkomu og líkamstjáningu.
Námskeiðið hefst þriðjudaginn 14. maí kl. 15 og munu sálfræðingar
Kvíðameðferðarstöðvarinnar stýra námskeiðinu.
Skráning og fyrirspurnir í síma 534-0110 eða kms@kms.is
Nánari upplýsingar: www.kms.is
Reykjavíkurborg ı 411 1111 ı www.reykjavik.is/eignir
R
ey
kj
av
ík
u
rb
o
rg
3
0.
a
p
rí
l 2
01
3
/
JH
J
Þarf að verjast fordómum:
Kyenge er fyrsti
svarti ráðherra í
ríkisstjórn Ítalíu
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
Ársfundur 2013
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga verður haldinn
þriðjudaginn 21. maí kl. 16.30, í sal Bandalags háskólamanna að
Borgartúni 6, 3.hæð, Reykjavík.
Dagskrá
1. Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins
2. Önnur mál löglega upp borin
3. Breyting á samþykktum sjóðsins
4. Sameining lífeyrissjóða
Allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga
rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að
mæta
Fundargögn verða afhent á fundarstað fyrir setningu fundarins.
Reykjavík, 2. maí 2013
Stjórn Lífeyrissjóðs stafsmanna sveitarfélaga
ELDUR Mikill viðbúnaður var hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
í gær þegar eldur kom upp í iðnað-
arhúsnæði í Gjáhellu í Hafnarfirði.
Eldurinn komst í gaskúta sem voru
innandyra í húsnæðinu og skapað-
ist mikil sprengihætta í kjölfarið.
Aðgengi að öllu iðnaðarhverf-
inu var lokað vegna hættunnar
en allt tiltækt slökkvilið og fjöldi
lögreglumanna voru að störfum á
svæðinu. Vel tókst að ráða niður-
lögum eldsins og hafði slökkviliðið
náð að slökkva hann í gærkvöldi.
Unnið var að því að kæla niður
kæla kútana niður og var því enn
töluverð sprengihætta.
- hó
Mikill viðbúnaður hjá slökkviliðinu vegna elds í gaskútum:
Lokað vegna sprengi-
hættu í Hafnarfirði
VIÐBÚNAÐUR Allt tiltækt slökkvilið var að störfum á svæðinu.
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
kannast ekki við að standa í „óform-
legum viðræðum“ við Framsóknar-
flokkinn um myndun ríkisstjórnar,
eins og sagt var í fjölmiðlum í gær.
Á Facebooksíðu sinni sagði
Bjarni í gærkvöldi: „Ég gæti hafa
verið inni í bílskúr eða bak við hús
og misst af einhverju en þessar við-
ræður fóru ekki fram með minni
þátttöku.“
Ekki náðist í Bjarna í gærkvöldi,
en Svanhildur Hólm Valsdóttir,
aðstoðarkona hans staðfesti við
Fréttablaðið að Bjarni og Sigmund-
ur hefðu ekki hist í gær og enginn
fundur væri fyrirhugaður í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins bar einnig til baka á sinni síðu
fréttir um að hann hafi hitt Bjarna
og Katrínu Jakobsdóttur, formann
Vinstri grænna í gær. Hann hafi
hitt hvorugt.
„Dagurinn hefur farið í að skoða
tölfræði og tækifæri. Það var upp-
örvandi vinna.“ - þj
Formenn segjast ekki vera í „óformlegum viðræðum“ um stjórnarmyndun:
Bjarni hitti Sigmund ekki í gær
ENGIR FUNDIR FYRIRHUGAÐIR Engar
stjórnarmyndunarviðræður áttu sér
stað í gær að sögn formanna Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Engir
fundir eru á dagskrá í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍTALÍA, AP Kyenge, fyrsti ráð-
herra Ítalíu af svörtum upp-
runa, tók við embætti innflytj-
endaráðherra nú í lok febrúar.
Kyenge, sem er skurðlæknir að
mennt, fædd-
ist í Kongó
en fluttist til
Ítalíu fyrir um
þrjátíu árum til
þess að nema
læknisfræði.
Í starfi sínu
sem ráðherra
hefur hún þurft
að verjast
kynþáttafor-
dómum, meðal
annars frá samstarfsfélögum
sínum á þingi en Cecile segir
mikilvægt að uppfræða þjóðina
þar sem kynþáttafordómar eigi
rætur sínar í þekkingarleysi.
Hún segir að sitt fyrsta verk sem
ráðherra muni vera að tryggja
réttindi barna innflytjenda sem
í dag geta ekki sótt um ítalskan
ríkisborgararétt fyrr en 18 ára
gömul þrátt fyrir að hafa fæðst í
landinu. - hó
CECILE KYENGE