Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 98
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 54
DÓMAR 27.04.2013 ➜ 03.05.2013
LAUGARDAGUR
4. MAÍ 2013
Tónleikar
16.00 Kvennakór Hafnarfjarðar heldur
vortónleika í Hásölum við Strandgötu
undir yfirskriftinni Litir vorsins. Stjórnandi
kórsins er Erna Guðmundsdóttir og píanó-
leikari er Antonia Hevesi. Miðaverð er
2.500 kr.
16.00 Söngsveitin Fílharmónía flytur
Requiem eftir Gabriel Fauré auk fleiri
verka í Reykholtskirkju.
17:00 Heklurnar halda vortónleika í
Lágafellskirkju.
20.00 Guðný Valborg Guðmundsdóttir
og Snorri Hallgrímsson halda útskriftar-
tónleika sína í Áskirkju. Þau útskrifast með
BA-gráðu af tónsmíðabraut Listaháskóla
Íslands nú í vor.
Fræðsla
13.00 Frítt á söfnin í Eyjafirði í tilefni
eyfirska safnadagsins.
Hönnun Og Tíska
15.00 Fashion Academy Reykjavík, L‘Oréal
og Magnetic standa fyrir Naglakeppni í
höfuðstöðvum Elite og Fashion Academy
að Ármúla 21. Gestum og gangandi er
boðið að fylgjast með keppninni sem
hefst kl 11:00 en á milli kl 15:00 og 17:00
verða módel keppanda tilbúin til sýningar
fyrir dómara og áhorfendur.
Uppákomur
10.00 Samkór Kópavogs mun hefja menn-
ingarhátíð Kópavogsbæjar, Kópavogsdaga,
með kórsöng í Sundlaug Kópavogs. Menn-
ingarhátíðin stendur til 11. maí, nánari
upplýsingar er að finna á kopavogsdagar.is.
Málþing
13.00 9. febrúar 2013 var aldarafmæli
Jóhanns K. Péturssonar, hæsta Íslendings
fyrr og síðar, og af þvi tilefni verður haldið
málþing um Jóhann í menningarhúsinu
Bergi, Dalvík.
Tónlist
22.00 Breski tónlistarmaðurinn Nick Tann
heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8.
22.00 Greifarnir spila og syngja fjöldann
allan af skemmtilegum lögum á SPOT í
Kópavogi.
Myndlist
14.00 Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari
veitir gestum leiðsögn um sýningu sína
„Kvosin 1986 & 2011“, sem er samstarfs-
verkefni Ljósmyndasafns og Minjasafns
Reykjavíkur.
14.00 Þrjár sýningar á verkum nemenda
sem eru í fullu námi í Myndlistaskólanum
í Reykjavík opna, í Gallerí Tukt, Pósthús-
stræti 3-5 kl.14:00, í húsnæði Myndlista-
skólans að Hringbraut 121 kl.15:00 og í
Þjóðmenningarhúsinu 15 kl.16:00.
14.00 Sýningin Handan við hafið opnar
í Edinborgarhúsinu, Ísafirði. Sýningin er
önnur einkasýning Önnu Leif sem útskrif-
aðist frá LHI árið 2005 með BA-gráðu í
myndlist. Verkin eru unnin með blandaðri
tækni á pappír vorið 2013.
16.00 Myndlistarmaðurinn Hafsteinn
Michael opnar sína tíundu einkasýningu
sem ber yfirskriftina X-makab á Gallerí/
pool-bar Hverfisgötu 46.
SUNNUDAGUR
5. MAÍ 2013
Tónleikar
17.00 Vortónleikar Kvennakórsins Létt-
sveitar Reykjavíkur verða haldnir í Grafar-
vogskirkju. Yfirskrift tónleikanna er Douze
points en þar flytja 120 Léttur undir stjórn
Gísla Magna innlenda og erlenda Euro-
vision-smelli frá ýmsum tímum í bland við
aðrar perlur úr dægurlagaheiminum.
17.00 Fjáröflunartónleikar Kammerkórs
unglinga í Bústaðakirkju en kórinn sem
skipaður er stúlkum á aldrinum 12-16 ára
er á leið á kóramót í Noregi í næstu viku.
Fræðsla
14.00 Ókeypis barnaleiðsögn í Þjóðminja-
safni Íslands.
14.00 Harpa Þórsdóttir forstöðumaður
Hönnunarsafnsins gengur með Aldísi Báru
Einarsdóttur um sýninguna Innlit í Glit.
Aldís nam leirmunagerð hjá þýska leirlista-
manninum Gerhard Schwarz, sem kom til
starfa við leirbrennsluna Glit árið 1968 og
starfaði þar til 1973.
14.00 Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri
verður með leiðsögn um sýningarnar
Gamlar gersemar og Erlendir áhrifavaldar
sem nú standa yfir í Listasafni Íslands við
Tjörnina.
Fundir
13.00 Alþjóðlegi hláturdagurinn haldinn
hátíðlegur. Eins og undanfarin ár verður
safnast saman við Þvottalaugarnar í Laug-
ardalnum. Ásta Valdimarsdóttir og aðrir
hláturjógaleiðbeinendur stjórna
Námskeið
11.00 Fjölskrúðugt fuglalífið skoðað á
göngu um Grasagarðinn í Laugardal í sam-
starfi við Fuglaverndarfélag Íslands. Um
leiðsögn sér Hannes Þór Hafsteinsson
garðyrkjufræðingur og fuglaáhugamaður.
Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara í
Reykjavík, Stangarhyl 4.
Tónlist
15.30 Sjöttu og síðustu tónleikar Hlífar
Sigurjónsdóttur fiðluleikara í Skútustaða-
kirkju í Mývatnssveit til að minnast hálfrar
annarrar aldar fiðlumenningar í Suður-
Þingeyjarsýslu.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og kynnir
lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8.
17.00 Lúðrasveit Reykjavíkur heldur fjöl-
skyldutónleika í Kaldalónssal Hörpu.
Fyrirlestrar
14.00 Myndlistarkonan Guðrún Erla
Geirsdóttir (GERLA) bregður upp mynd af
jafnréttissinnanum Ásmundi Sveinssyni,
myndhöggvara, og ræðir um konurnar í
verkum hans í Ásmundarsafni.
Myndlist
15.00 Erla Þórarinsdóttir myndlistarmaður
tekur þátt í leiðsögn og ræðir við gesti um
verk sín á samsýningunni Tilraun til að
beisla ljósið í Hafnarborg.
15.00 Boðið upp á leiðsögn og spjall við
nemendur um sýningu grafískrar hönn-
unar og vöruhönnunar við Listaháskóla
Íslands sem nú stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá
inni á visir.is.
LAUGARDAGUR
&SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
DANS
★★★★ ★
Walking Mad
Íslenski dansflokkurinn
Sýning Íslenska dansflokksins Walking
Mad er falleg og skemmtileg og ber
færni og fagmennsku þeirra sem að
flokknum standa, dansara jafnt sem
annarra listamanna, ljós merki. -sgm
BÍÓ
★★★★ ★
Iron Man 3
Leikstjórn:Shane Black
Besta mynd seríunnar. -hva
★★ ★★★
Passion
Leikstjórn: Brian De Palma
Óeftirminnilegur samtíningur úr fyrri
verkum. -hva
TÓNLEIKAR
★★★ ★★
Hljómeyki
Stjórnandi: Marta Guðrún Halldórs-
dóttir
Hljómeyki söng fallega, en hljóm-
burðurinn í nýjum tónleikasal í
Hannesar holti hentaði kórnum illa. -js