Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 48
| ATVINNA |
Frekari upplýsingar veitir
Þorsteinn Hjartarson, fræðslustjóri, sími 480-1900, 852-3918 og thorsteinnhj@arborg.is. Áhugasamir geta sent
umsóknir á thorsteinnhj@arborg.is eða í pósti á fræðslusvið Árborgar, Austurvegi 2, 800 Selfoss.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2013.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um störfin. Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar sveitar-
félaga og viðeigandi stéttarfélags.
Sálfræðingar
Verkefni á sviði sálfræðilegra athugana, ráðgjafar og þver-
faglegs samstarfs um málefni barna í leik- og grunnskólum.
Meginhlutverk sálfræðinga er að annast ráðgjöf við nemendur,
foreldra og kennara vegna hegðunar- og tilfinningavanda, kvíða,
þunglyndis, námserfiðleika og vanlíðunar nemenda. Við leitum að
sálfræðingum sem búa yfir góðri hæfni í mannlegum samskiptum
og reynslu og menntun sem nýtist í starfi.
Kennsluráðgjafar
Verkefni þeirra snúa að almennri kennsluráðgjöf til starfsfólks
skóla og foreldra, ráðgjöf vegna eflingar fjölbreyttra og sveigjan-
legra kennsluhátta. Einnig ráðgjöf sem snýr að uppeldi leik- og
grunnskólabarna, samskiptum heimila og skóla, málörvun
og læsi, gerð sérkennsluáætlana, greiningum og mati á stuð-
ningsþörf nemenda, eflingu faglegra tengsla leik-, grunn- og
framhaldsskóla og verkefnum á sviði símenntunar. Við leitum
að kennsluráðgjöfum sem búa yfir góðri hæfni í mannlegum
samskiptum og reynslu og menntun sem nýtist í starfi.
Talmeinafræðingur
Verkefni á sviði talmeina- og málþroskavandamála hjá börnum.
Einnig vinna við skimanir, málþroskagreiningar og ráðgjöf.
Samstarf við starfandi talmeinafræðing sem annast talþjálfun
barna í Árborg sem og þverfaglegt samstarf við aðra sérfræðinga,
kennara og foreldra. Við leitum að talmeinafræðingi sem býr yfir
góðri hæfni í mannlegum samskiptum og reynslu og menntun
sem nýtist í starfi.
Vilt þú vinna að þróun skólaþjónustunnar með okkur?
Fræðslusvið sveitarfélagsins tekur að sér alla framkvæmd sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla í Árborg frá og með
næstu áramótum. Unnið verður út frá framtíðarsýn og skólastefnu sem hefur verið mótuð að undanförnu. Stefnt er að
styrkingu á heildstæðri nærþjónustu við börn, foreldra og skóla í samstarfi við ráðgjafa og notendur þjónustunnar. Lögð verður
áhersla á eflingu skólastarfs, snemmtæka íhlutun og ýmis verkefni á sviði forvarna. Jafnframt verður unnið að því að bæta
skilyrði starfsfólks til starfsþróunar og símenntunar. Þjónustan verður sniðin að þörfum hvers skóla og lýtur hún bæði að
ráðgjöf og stuðningi við almennt skólastarf og þróunarstarf. Hluti ráðgjafahópsins verður ráðinn til starfa í haust eftir nánara
samkomulagi en aðrir um áramót. Einn úr hópnum mun taka að sér stjórnunartengd verkefni að höfðu samráði við fræðslu-
stjóra. Í sveitarfélaginu búa um 8 þúsund íbúar, þar af um 1750 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Lögð verður
áhersla á þverfaglegt samstarf við önnur fagsvið sveitarfélagsins sem koma að fjölskyldu- og frístundamálum, einnig við
sérhæfð greiningar- og meðferðarúrræði hjá ríkinu og heilsugæslu.
SQL sérfræðingar - Microsoft sérfræðingar
Umsóknarfrestur er til og með 13. maí nk. Umsókn ásamt ferilskrá óskast fyllt út á www.intellecta.is. Nánari upplýsingar um starfið
veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 511 1225.
Óskum eftir að komast í samband við SQL gagnagrunnssérfræðinga og Microsoft kerfisstjóra með SQL þekkingu.
Leitað er að einstaklingum sem búnir eru að sanna sig í faginu.
Í boði eru mikil tækifæri fyrir rétta aðila.
ráðgjöf ráðningar rannsóknir
Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
4. maí 2013 LAUGARDAGUR6