Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 96
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 52
BÓKIN SEM
BREYTTI
LÍFI MÍNU
Sigrún
Óskarsdóttir,
prestur í
Árbæjarkirkju
DANÍEL BJARNASON Fílharmóníusveit Los Angeles þykir ein framsæknasta hljómsveit Bandaríkjanna. Hún pantaði kammer-
verk frá Daníel sem hún flutti í október síðastliðnum. Strax í kjölfarið pantaði sveitin annað verk fyrir stóra hljómsveit.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Það er auðvitað draumur að vera
beðinn um að semja verk fyrir eina
af bestu hljómsveitum Bandaríkj-
anna og þó víðar væri leitað,“ segir
Daníel Bjarnason tónskáld. Fílharm-
óníusveit Los Angeles hefur pantað
frá honum verk fyrir stóra hljóm-
sveit sem frumflutt verður undir
stjórn Gustavos Dudamel í Walt
Disney Concert Hall í desember.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
hún leitar til Daníels; hún pant-
aði verk fyrir kammersveit, Over
Light Earth, sem frumflutt var
undir stjórn Johns Adams í októ-
ber í fyrra. Á sömu tónleikum flutti
hún annað verk eftir Daníel, Bow
to string, á tónleikaröðinni Green
Umbrella, sem einblínir á nýja og
nýlega tónlist.
„Strax eftir þá tónleika báðu
þau mig um að semja verk fyrir
stóra hljómsveit,“ segir Daníel,
sem hefur frjálsar hendur í efnis-
tökum. „Ég geri ráð fyrir að þetta
verði tíu til tólf mínútna verk.“
Á efnisskránni verða líka píanó-
konsert eftir Rachmaninoff og
Petrushka eftir Stravinskí en ein-
leikari verður kínverski píanóleik-
arinn Yuja Wang.
Fílharmóníusveit Los Angeles
er tæplega aldar gömul og er af
mörgum álitin ein ef ekki allra
framsæknasta sinfóníuhljómsveit
Bandaríkjanna og þykir áberandi
dugleg við að panta ný verk.
„Finninn Esa-Pekka Salonen var
hljómsveitarstjóri sveitarinnar í
mörg ár og undir hans stjórn varð
hún virkilega framsækin og legg-
ur áherslu á nýja og nýlega tón-
list, þótt hún sinni auðvitað hefð-
inni líka,“ segir Daníel. Gustavo
Dudamel tók við sem hljómsveit-
arstjóri árið 2009, en hann stjórn-
aði Sinfóníuhljómsveit Gautaborg-
ar á eftirminnilegum tónleikum í
Hörpu haustið 2011.
Daníel fer utan í desember og
verður viðstaddur æfingar og
frumflutninginn. Um vorið fer
sveitin svo á flakk um Bandaríkin
og flytur verkið á fleiri tónleikum,
meðal annars í New York.
Daníel er nú um þessar mund-
ir að leggja loka hönd á nýja plötu
sem kemur út á vegum Bedroom
Community í lok september.
bergsteinn@frettabladid.is
Daníel semur fyrir
Fílharmóníuna í L.A.
Fílharmóníusveit Los Angeles hefur pantað nýtt verk eft ir Daníel Bjarnason sem
verður frumfl utt í desember undir stjórn Gustavos Dudamel. Þetta er annað
verkið sem sveitin pantar frá Daníel og það þriðja sem hún fl ytur eft ir hann.
MENNING
Það er svo fyrirsjáanlegt að það er næstum því vandræðalegt að láta prest
segja hvaða bók breytti lífinu. Ég les mikið, Laxness er í miklu uppáhaldi
hjá mér, Salka Valka fremst meðal jafningja. Skandinavísku
krimmarnir koma líka sterkir inn.
Bókin um Stubb hafði mikil áhrif á mig á sínum tíma
og ég get enn kallað fram sigurgleðina þegar hann fékk
uppreisn æru gegn stóru bræðrum sínum.
Það komu margar góðar bækur út fyrir jólin.
Ljósmóðirin, Boxarinn og Mensalder voru bækur
sem mér þótti mikið til um. Bók Auðar Jónsdóttur,
Ósjálfrátt, er lesning sem heillaði mig gjörsam-
lega. Þessi unga kona skrifar af svo mikilli næmni
um hluti sem eru svo skelfilegir. Það hefði verið
auðvelt að vera bitur, það hefði verið auðvelt að
velta sér upp úr ljótleikanum. Auður gerir hvorugt.
Væntumþykja, húmor og virðing er alltaf í forgrunni.
Ég hef mikið hugsað um þessa bók. Mennskan og
brestirnir sem við erum alltaf að reyna að forðast eru
teknir með sem sjálfsagðir hlutir. Í strangtrúarheimi
rétthugsunarinnar gleymist svo oft að gera ráð fyrir
breyskleikanum.
Já, það er fyrirsjáanlegt: Ýmsar bækur Biblíunnar eru
mér ómetanlegar. Ég lærði óð Páls postula til kærleikans utan að í fermingar-
fræðslunni og það breytti lífi mínu.
Salka Valka,
Ósjálfrátt og Biblían