Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 58
| ATVINNA |
Hagfræðingur/viðskiptafræðingur
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Helstu verkefni skrifstofu skattamála
Þá annast skrifstofa skattamála
Starfið
Menntunar- og hæfniskröfur eru þessar helstar:
Umsóknarfrestur
Guðný Harðardóttir
óskar eftir að ráða hagfræðing eða
viðskiptafræðing til starfa á skrifstofu skattamála. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt
starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.
varða tekjuöflun ríkissjóðs og mótun stefnu í
þeim efnum í samráði við yfirstjórn og aðrar skrifstofur ráðuneytisins. Skrifstofa
skattamála annast greiningu skatta og mat á skattbreytingum með hliðsjón af
stefnumótun ríkisfjármála, og efnahagsmálum almennt. Skrifstofan hefur einnig umsjón
með gerð tekjuáætlunar fjárlaga ár hvert, eftirfylgni með greiðsluflæði og innheimtu
einstakra tekjustofna og gerð langtímaáætlunar um þróun tekna.
undirbúning og gerð lagafrumvarpa á sviði skatta og
tolla, og hefur umsjón með skattalöggjöf almennt. Jafnframt gegnir skrifstofan
stjórnsýsluhlutverki gagnvart skattyfirvöldum, tollstjóra og innheimtumönnum ríkissjóðs.
Á skrifstofunni starfa lögfræðingar, hagfræðingar og viðskiptafræðingar.
felur m.a. í sér virka þátttöku í teymisvinnu og vinnu í starfshópum innan og utan
ráðuneytisins við greiningarvinnu, áætlanagerð og gagnavinnslu á tekjum ríkissjóðs, auk
margvíslegra annarra verkefna sem falla undir verksvið skrifstofunnar.
* Háskólamenntun á sviði hagfræði eða viðskiptafræði.
* Reynsla af vinnu við SQL gagnagrunna er æskileg.
* Þekking á sviði haglíkanagerðar er kostur.
* Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti.
* Góð kunnátta í ensku er nauðsynleg og kunnátta í einu
Norðurlandamáli æskileg.
* Reynsla á sviði skattamála er kostur.
* Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
* Færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
er til og með 21. maí nk. Um er að ræða fullt starf og til framtíðar.
Launakjör eru skv. kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið
störf sem fyrst.
, hjá STRÁ ehf. veitir frekari upplýsingar um störfin. Vinsamlega
sendið umsóknir ásamt meðfylgjandi gögnum til stra@stra.is.
Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan
til 3. tölul. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 464/1996, með síðari
breytingum, sem settar eru með stoð í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin.
www.stra.is
FJÁRMÁLA- OG EFNAHAGSRÁÐUNEYTIÐ
Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík
Ungbarnaleikskólinn Bjarmi
Ungbarnaleikskólinn Bjarmi í Hafnarfirði vantar starfs-
mann til að sinna eldhúsi og afleysingu inn á deild.
Um er að ræða stöðu við móttökueldhús fyrri hluta
dags og afleysingu inni á deild eftir hádegi. Viðkomandi
þarf að búa yfir sjálfstæði og geta sýnt sveigjanleika í
daglegu starfi.
Vinsamlegast sendið umsókn ásamt starfsferilsskrá á
netfangið bjarmi@bjargir.com
Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu skólans
www.leikskolinn.is/bjarmi
Nánari upplýsingar veitir Svava Björg
í síma 512-3330 og 695 3089
Góður starfsmaður óskast
Sumarstarf eða fullt starf
Lítil en öflug ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í hópferðum hvers
konar, einkum frá Íslandi, en einnig móttöku hópa til Íslands óskar
eftir réttum starfsmanni í fjölbreytt starf við sölu, úrvinnslu
og utanumhald.
Sumarstarf t.a.b.m., en getur orðið fullt starf.
Reynsla í ferðaþjónustu er mjög æskileg, en heiðarleiki, trúnaður,
vinnusemi og frumkvæði eru skilyrði, auk góðrar íslensku og
enskukunnáttu. Góð tölvukunnátta er nauðsynleg, m.a. Excel.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Áhugasamir sendi upplýsingar og ferilskrá á box@frett.is
merkt ,,Ferðaskrifstofa“
Stálorka óskar eftir
að ráða menn til framtíðarstarfa vana smíði úr ryðfríu
stáli og áli, aðalstarfsvið er smíði á búnaði í skip og
báta. Hægt er að senda inn umsóknir á stalorka@
simnet.is eða hafa samband við Benedikt í síma
8927687 á virkum dögum milli 8 og 18
www.gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Garðabær óskar eftir leik- og
grunnskólakennurum til starfa
Álftanesskóli
Umsjónarkennarar á yngsta- og miðstigi
Tungumálakennari
Smíðakennari
Flataskóli
Umsjónarkennarar á yngsta stig
Hæðarból
Leikskólakennari
Nánari upplýsingar á vef
Garðabæjar, www.gardabaer.is
KREFJANDI OG
LÍFLEGT STARF
T
R
A
U
S
T
F
Y
R
IR
T
Æ
K
I
•
J
Á
K
V
Æ
Ð
U
R
S
T
A
R
F
S
A
N
D
I
•
S
A
M
K
E
P
P
N
IS
H
Æ
F
L
A
U
N
atvinna@foodco.is
http://umsokn.foodco.is
Við leitum að frábærum aðstoð-
arveitingastjóra til starfa hjá Eld-
smiðjunni í 100% vaktavinnu.
Unnið er 15 daga í mánuði.
Þar er öflug liðsheild og frábær
vinnuandi. Ef þú hefur gaman af
fólki, ríka þjónustulund, ábyrgð-
artilfinningu og ert eldri en 26
ára, hikaðu þá ekki við að skella
inn umsókn hjá okkur:
4. maí 2013 LAUGARDAGUR16