Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 71
| FÓLK | 5
BIO-KULT CANDÉA HENTAR ÖLLUM
Bio-Kult Candéa er samsett úr vinveittum gerlum, hvít-
lauk og þrúgukjarnaþykkni og er öflug vörn gegn Can-
dida-sveppasýkingu í meltingarvegi kvenna og karla.
Sveppasýking getur komið fram með ólíkum hætti.
Einkennin geta meðal annars verið munnangur,
fæðuóþol, skapsveiflur, þreyta, meltingartruflanir,
verkir í liðum, mígreni og húðvandamál.
MJÖG GÓÐ REYNSLA AF BIO-KULT CANDÉA
Íris Guðmundsdóttir hafði strítt við ristil-
krampa í nokkur ár áður en hún kynntist
Bio-Kult Candéa. „Ég var farin að forðast að
fara út úr húsi strax eftir máltíð, eða hrein-
lega sleppti því að borða þegar ég var ekki
heima hjá mér. Yfirleitt komu kramparnir
þegar ég var búin að fá mér að borða.
Ég fór í gegnum allt mataræðið hjá mér
og tók út mjólkurvörur og minnkaði
glútenneyslu gríðarlega en ekkert
virtist virka. Þá rakst ég á auglýsingu
og reynslusögur um Bio-Kult Candéa
og sá að ég hafði engu að tapa. Strax
á fyrstu vikunni fann ég mikinn mun
á mér og eftir þrjár vikur fann ég ekki
fyrir þessum kvilla sem hafði hrjáð mig
í nokkur ár. Bio-Kult Candéa virkar mjög vel á
mig, takk fyrir mig.“
VIRKAR VEL Á SVEPPASÝKINGU
Bio-Kult Candéa hjálpaði dóttur Lindu Andrésardóttur.
„Dóttir mín á unglingsaldri hafði átt við óþægindi og kláða
að stríða á kynfærasvæði í nokkra mánuði. Hún hafði
prófað ýmis lyf við sveppasýkingunni en ekkert virkaði. Ég
las um Bio-Kult Candéa og ákvað að kaupa pakka og fyrir
hana til að prófa, þar sem sveppalyfin náðu ekki niður kláð-
anum. Fljótlega fann hún mun á sér og núna passar hún vel
upp á að gleyma ekki að taka hylkin. Í sumar gleymdist það
í nokkra daga og þá blossaði sveppasýkingin upp aftur. Við
mæðgur viljum þakka fyrir að hægt er að ná niður vanda-
máli á náttúrulegan hátt í stað þess að nota lyf við sveppa-
sýkingu.“
SÁRSAUKAFULLIR RISTILKRAPMAR ÚR SÖGUNNI
Jóhanna Þorvaldsdóttir fékk það sársaukafulla ristilkrampa
að hún leið nánast út af. Bio-Kult Candéa breytti því. „Ég
var yfirleitt dágóða stund að jafna mig eftir ristilkrampa-
köstin. Ég kveið líka fyrir því að fara á mannfögnuði og
í matarboð því ég var hrædd um að fá ristilkrampakast
þegar ég var ekki heima við. Ég ræddi þetta við lækna sem
vissu ekki hvers vegna ég fékk köstin og áttu engin sérstök
ráð handa mér. Svo benti vinkona mín mér á að prófa Bio-
Kult Candéa. Ég fann nánast strax mun. Meltingin varð allt
önnur og núna tæplega tveimur árum eftir að ég byrjaði að
taka Bio-Kult hef ég ekki enn fengið ristilkrampakast. Bæði
líður mér betur í maga, ég get treyst meltingunni og ég er
laus úr viðjum ristilkrampans. Ég hika ekki við að mæla
með Bio-Kult Candéa.“
JÁKVÆÐAR
BREYTINGAR
Á LÍKAMA
OG SÁL
ICECARE KYNNIR Heilsuvörurnar Bio-Kult Candéa
og Femarelle hafa gefið góða raun. Bio-Kult Candéa
fæðubótarefnið styrkir náttúrulegar varnir líkamans
gegn Candida-sveppasýkingu. Femarelle er náttúrulegt
jurtaSERMI sem slær á einkenni tíðahvarfa. Vörurnar
fást í öllum apótekum og heilsubúðum.
ÁNÆGÐ Guðfinna
Sigurgeirsdóttir fann
strax fyrir breytingum
til hins betra með
Femarelle.
FEMARELLE ER ÖRUGGUR
KOSTUR FYRIR KONUR
■ Slær á óþægindi svo sem höfuðverk, svefntruflanir, nætursvita,
skapsveiflur, óþægindi í liðum og vöðvum.
■ Þéttir beinin.
■ Hefur hvorki áhrif á móðurlíf né brjóstavef.
■ Náttúruleg lausn, inniheldur tofu extract og hörfræjaduft.
■ Inniheldur engin hormón eða ísóflavóníða.
■ Staðfest með rannsóknum síðustu 13 ár.
LAUS VIÐ VERKJALYFIN – ÞVÍLÍKUR MUNUR
Kolbrún Jóhannesdóttir las að Femarelle myndi slá á einkenni
tíðahvarfa hjá konum og ákvað því að prófa. „Ég taldi að ég
væri að fá liðagigt, þar sem ég var orðin svo aum í liðum og mér
var alltaf illt í höndum og fingrum og notaði verkjalyf til að lina
þjáningarnar. Eftir að ég byrjaði á Femarelle fann ég fljótlega að
mér leið mun betur í liðunum. Eftir rúmlega viku notkun voru
verkirnir að mestu horfnir og mér líður mjög vel í öllum liðum og
vöðvum og má segja að ég þurfi ekki að nota verkjalyf lengur. Að
auki sef ég mun betur og hvílist mjög vel þegar ég sef.
Það er allt annað líf eftir að ég byrjaði að nota Femarelle, ég
mæli með því við vinkonur mínar og hvet allar konur til að prófa!
JÁKVÆÐAR BREYTINGAR Á LÍKAMA OG SÁL
Guðfinna Guðný Sigurgeirsdóttir fékk fyrsta pakkann af Fem-
arelle að gjöf og fann strax fyrir breytingum til hins betra. „Vin-
kona mín gaf mér fyrsta pakkann og sagði mér að prufa þar sem
Femarelle hefði reynst konum á breytingaskeiði vel. Ég hafði sjálf
barist við vanlíðan vegna tíðahvarfa svo sem hitakóf, stirðleika í
liðum og vöðvum, skapsveiflur og annað sem fylgir tíðahvörfum.
Eftir að ég fór að taka Femarelle fann ég fljótlega fyrir jákvæðum
breytingum á líkama og sál. Lundin varð léttari, hitakófum fækk-
aði og það sem mest um munar fyrir mig minnkaði stirðleiki í
liðum og vöðvum til muna. Núna get ég gengið um án þess að
vera stirð og öll mín líðan er mun betri. Mér varð ljóst að með
hjálp Femarelle gat ég komist léttar í gegnum breytingaskeiðið.
Ég hvet allar konur til að prófa.“
HÆTTI Á HORMÓNUM OG LÍÐUR VEL MEÐ FEMARELLE
Kristín Bjarnadóttir fór í aðgerð þar sem þurfti að fjarlægja
móðurlíf og báða eggjastokka árið 2000. „Þar sem ég
var aðeins 44 ára á þeim tíma var mér ráðlagt af kven-
sjúkdómalækni mínum að fara á hormónalyf sem ég
hef tekið síðan. Um síðustu áramót fór ég að velta fyrir
mér að hætta að taka hormón. Ég var samt í vafa því
ég hafði áhyggjur af hvernig mér mundi líða án þeirra
og eins hvað ég mundi geta tekið í staðinn til þess að
draga úr einkennum breytingaskeiðs.
Ég ákvað að prófa Femarelle og sé ekki eftir því. Ég
komst að því að ég hafði verið með miklar aukaverkanir
af hormónunum en mér líður miklu betur að öllu leyti
eftir að ég byrjaði að taka Femarelle. Verkir í stoðkerfi
hafa minnkað stórlega og svæsnum og þrálátum höfuð-
verkjaköstum hefur fækkað en þau stóðu oft yfir í
nokkra daga.
Í dag líður mér miklu betur að öllu leyti, þökk sé
Femarelle.“
FRÁBÆR LÍÐAN AF NOTKUN FEMARELLE
Ásdís L. Runólfsdóttir hafði reynt allt áður en hún
kynntist Femarelle. „Ég hafði í mörg ár glímt við ýmiss
konar vandamál varðandi blæðingar og tíðarhvörf. Sam-
hliða mjög slæmum skapsveiflum og andlegri vanlíðan
jókst tíðni mígreniskasta gríðarlega. Ég prófaði allt,
breytti matarræðinu, tók inn ýmiss konar vítamín og
bætiefni en ekkert virkaði. Í lok síðasta árs prófaði ég
hormónatöflur í þrjá mánuði með slæmum árangri.
Þegar Femarelle kom á markaðinn var ég komin að því
að gefast upp. Hitaköstin urðu stöðugt verri og ég átti
svefnlausar nætur vegna nætursvita og hitakasta. Mér leið
eins og ég logaði innan frá. Það tók Femarelle um það bil tvær
vikur að virka, á þriðju viku fann ég ekki fyrir neinum einkenn-
um. Nú líður mér mjög vel bæði andlega og líkamlega. Ég þarf
ekki lengur að rífa mig úr fötunum þegar ég sit í sófanum á
kvöldin vegna óbærilegs hita og sef mjög vært í langerma nátt-
kjólum á næturnar.“
ICECARE.IS
Bio-Kult Candéa og
Femarelle vörur-
nar fást í öllum
apótekum, heilsu-
vöruverslunum
og í heilsuhillum
stórmarkaðanna.
Nánari upplýsingar
er að finna á www.
icecare.is