Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 82
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
Þetta byrjaði eiginlega þannig að ég fór að taka eftir því hvað Sigríður Arna kom alltaf hress og endurnærð úr helgar-fríum, eftir að hún var
búin að gera eitthvað skemmtilegt
með börnunum sínum. Ég var, eins
og margir kannast kannski við,
búin að festast í einhverju fari, fór
alltaf á sömu staðina og gerði sömu
hlutina með börnunum. Ég fékk
því að slást í för með Sigríði og
síðan þá höfum við farið í ótal leið-
angra saman,“ segir Lára Guðrún
Sigurðardóttir, annar tveggja höf-
unda bókarinnar Útivist og afþrey-
ing fyrir börn.
Í henni er sagt frá fjölmörgum
áhugaverðum stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu fyrir fjölskyld-
ur og hafa þær Lára og Sigríður
Arna Sigurðardóttir sótt þá alla
heim með börnum sínum. „Það
er svo mikilvægt að gefa sér tíma
með börnum og njóta lífsins með
þeim. Það er svo skemmtilegt að
uppgötva umhverfi sitt í góðum
hópi, fara á nýjan stað, taka með
sér nesti, hreyfa sig og upplifa eitt-
hvað nýtt,“ segir Sigríður Arna.
„Við erum ekkert nema vaninn
og ef börn venjast því að stunda
útivist og eiga góðar samveru-
stundir með sínum nánustu þá eru
þau líklegri til að tileinka sér þá
lífshætti síðar meir,“ bætir Lára
við.
Samanlagt eiga þær Lára og Sig-
ríður sex börn. Elsta dóttir Sigríð-
ar er komin yfir tvítugt þannig að
það voru einkum yngri börn henn-
ar tvö, Þorri Freyr og Logi Snær
og þrír synir Láru, þeir Flóki,
Nökkvi og Fróði, sem hafa verið
á ferðinni með mæðrum sínum.
„Við byrjuðum á þessu verkefni
árið 2010 og höfum verið nokkuð
iðnar síðan,“ segja þær stöllur og
hvetja alla til þess að drífa sig af
stað með börnin. „Það er mjög fínt
að slappa af og vera í rólegheit-
um heima en við þurfum líka að
stunda reglulega útivist með börn-
unum, svo þau læri að njóta náttúr-
unnar en það getur skipt sköpum
fyrir heilbrigði þeirra síðar á lífs-
leiðinni.“
Langt er síðan hugmyndin um
bókina kviknaði hjá þeim Láru og
Sigríði. „Við afréðum fljótlega að
fleiri yrðu að fá að njóta ferðanna
með okkur, við vildum endilega
deila hugmyndunum að skemmti-
legum stöðum með sem flestum.
Því tókum við myndavélina alltaf
með og skráðum hjá okkur áhuga-
verða áfangastaði,“ segja þær.
Síðan bókin kom út hafa þær
opnað heimasíðuna www.fyrir-
born.is og svo er einnig hægt að
fylgjast með þeim á facebook á
síðunni Útivist og afþreying fyrir
börn.
Strönd í borginni
Margar náttúruperlur leynast á
höfuðborgarsvæðinu. Ein þeirra er
Álftanesströnd. „Það er alltaf gaman
að fara í fjöruferðir, hægt er að taka
með stækkunargler og rannsaka
lífríkið, búa til sandkastala eða fara í
leiki,“ segja Lára og Sigríður.
Fjársjóður í fjörunni
Hugmyndir að fjölmörgum leikjum
er að finna í bók þeirra, en fjársjóðs-
leikur er einn þeirra sem gaman
er að fara í í fjörunni. Þá er falinn
fjársjóður, eitthvað matarkyns,
sápukúlur eða hvað sem er og svo
gefin leiðarlýsing með skrefum og
kennileitum.
Nesti og nauðsynjar
Búnaður og nesti er mjög mikil-
vægur. „Ef maður klæðir sig rétt er
hægt að fara í fjöruferð allt árið. Og
ekki gleyma stígvélunum.“
Allir þurfa sína næringu og það
getur verið mjög góð hugmynd að
borða úti, sumar sem vetur. Lára
og Sigríður gefa góð ráð um nesti í
bókinni og nokkrar góðar uppskriftir.
Bananabrauð
2,5 bolli hveiti eða spelti
1 bolli hrásykur
3 tsk. vínsteinslyftiduft
1 tsk. salt
3 vel þroskaðir bananar
1 egg
3/4 bolli rísmjólk
1 bolli valhnetur saxað smátt
Hráefni blandað saman í skál og
bakað við 175°C í 55-60 mínútur.
Sundsprettur að lokum
Að lokinni fjöruferð er upplagt að
fara í sund og ef fjaran er Álftanes-
fjara þá er gráupplagt að fara í þá
laug sem er næst, Álftaneslaug.
„Það er mjög mikilvægt að ætla sér
ekki um of heldur taka því rólega,
ræða við börnin og hlusta á þau.“
Sigríður
Björg Tómasdóttir
sigridur@frettabladid.is
Endurnærð eftir helgarfjörið
Þær Lára Guðrún og Sigríður Arna eru þriggja barna mæður, vinnufélagar og vinkonur. Þær hafa undanfarin ár farið
í ótal leiðangra saman með börnin sín um helgar og gáfu nýverið út bók með góðum hugmyndum að fjölskylduafþreyingu.
GÓÐUR HÓPUR Nökkvi Fannar, Sigríður Arna, Logi Snær, Þorri Freyr, Flóki Fannar,
Lára Guðrún og Fróði Fannar samankomin á heimili Láru Guðrúnar í vikunni.
Strákarnir eru á aldrinum fimm til tíu ára í dag en sá yngsti Flóki Fannar var tveggja
ára þegar þær hófu könnunarferðir sínar um höfuðborgarsvæðið. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÚTIDAGUR FJÖRUFERÐ, FJÁRSJÓÐSLEIT OG NOTALEG STUND Í LAUGINNI
Ekki hanga
Það er gaman að breyta til og
stundum er veðrið ekki nægilega
aðlaðandi til útiveru. Innidagur þarf
samt alls ekki að vera hangsdagur
eins og tillaga Láru og Sigríðar ber
með sér.
Klifurhúsið
„Klifurhúsið í Skútuvogi er bráð-
skemmtilegt fyrir krakka á öllum
aldri. Allir finna vegg við sitt hæfi
og það er hægt að leigja klifurskó í
öllum stærðum þannig að málið er
ekki flókið.“
Kaffihús
Eftir klifrið er hægt að grípa nesti
en það getur líka verið gaman að
stoppa á kaffihúsi með börnin eða
í bakaríi með kaffiaðstöðu sem er
ódýrari kostur en kaffihús, gefist
ekki tækifæri til að taka nesti með.
Söfn
Eftir klifurhasar og kaffi er gott
að halda á safn og eiga rólega og
fræðandi stund saman.
Borgarbókasafnið Tryggvagötu
Frábær aðstaða fyrir börnin, hægt
að fara í búninga, skoða bækur og
leika sér.
Þjóðminjasafnið Safnið býður upp
á ratleik fyrir alla fjölskylduna og
svo er búningakistill fyrir krakkana,
heimsóknirnar þangað eru iðulega
mjög skemmtilegar.
Sjóminjasafnið Víkin Fræðandi
og flott safn sem gaman er að eyða
dágóðum tíma á.
INNIDAGUR HASAR OG FRÆÐSLA Á FLOTTUM SÖFNUM