Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 42
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4
Mikið verður um dýrðir í kvik-myndahúsinu Bíó Paradís um helgina þegar lokasýning költ-
kvikmyndahópsins Svartir sunnudagar
verður, auk þess sem opnuð verður yfir-
litssýning veggspjalda sem hönnuð voru
sérstaklega fyrir kvikmyndasýningar
vetrarins. Veggspjöldin eru hönnuð af
íslenskum listamönnum og hafa vakið
mikla athygli. Sýningin verður haldin í dag
laugardag kl. 16 og stendur yfir í nokkra
klukkutíma eða eftir því hvernig stemning-
in þróast að sögn Hrannar Sveinsdóttur,
framkvæmdastjóra Heimilis kvikmyndanna
ses., rekstraraðila Bíós Paradísar. „Svartir
sunnudagar hafa algjörlega slegið í gegn
hjá okkur í vetur. Þar höfum við sýnt
vikulega áhugaverðar kvikmyndir, hvort
sem hægt er að flokka þær undir költ eða
klassískar kvikmyndir. Um leið hafa ýmsir
listamenn útbúið sérstakt kvikmyndaplak-
at fyrir hverja mynd og hafa þau ekki síst
vakið mikla athygli. Það er búið að vera
ótrúlega skemmtilegt fyrir listamennina að
vinna þau í vetur enda eru þeir sjálfir mikl-
ir kvikmyndaaðdáendur.Veggspjöldin eru
virkilega sérstök og einstæð.“ Hópurinn á
bak við Svarta sunnudaga samanstendur
af Hugleiki Dagssyni, Páli Óskari Hjálmtýs-
syni, Sigurjóni Kjartanssyni og Sjón.
BIÐRAÐIR ÚT Á GÖTU
Hrönn segir aðsókn hafa verið mjög góða á
sýningar Svartra sunnudaga í vetur og þar
hafi skemmtilega myndskreytt kvikmynda-
veggspjöld haft sitt að segja. „Það er búið
að vera pakkað hjá okkur í vetur og mikil
stemning á sýningum. Hér hafa verið lang-
ar biðraðir út á götu og margir treysta því
að við séum að sýna góðar kvikmyndir því
sumir kaupa miða án þess að kynna sér
fyrir fram hvaða sýning er í boði.“
Margir þjóðþekktir listamenn hafa
hannað kvikmyndaveggspjöld í vetur fyrir
Svarta sunnudaga. Má þar nefna Hugleik
Dagsson, Ómar Örn Hauksson, Sólveigu
Pálsdóttur, Þránd Þórarinsson og Bobby
Breiðholt. „Þetta eru sannkallaðir safn-
gripir. Veggspjöldin verða aðeins til sölu í
dag laugardag og aldrei aftur. Hvert vegg-
spjald verður prentað sérstaklega fyrir
hvern kaupanda og kostar aðeins 15.000
krónur. Þau verða prentuð í takmörkuðu
upplagi og ekki hægt að kaupa síðar.
Þessi veggspjöld verða því sannkallaðir
safngripir. Það eru allir velkomnir og
ókeypis er inn á sýninguna. Þessi sýning
verður vafalaust umtöluð í mörg ár. Þetta
eru svo sannarlega geggjuð veggspjöld og
margir eiga eftir að verða æstir í að ná sér
í nokkur.“
Lokasýning Svartra sunnudaga verður
á sunnudaginn þegar sýndar verða tvær
kvikmyndir saman. Fyrst verður sýnd
kvikmyndin Jómfrúarvorið eftir Ingmar
Bergman frá árinu 1960 og strax þar á
eftir kvikmyndin The Last house on the
left eftir hryllingsmyndaleikstjórann Wes
Craven, en báðar myndir eru byggðar á
sömu sögu. „Síðan snúum við aftur með
Svarta sunnudaga næsta haust með enn
meira költ og gleði.“ ■ starri@365.is
KÖLT OG KLASSÍK
VEGGSPJÖLD Skemmtileg veggspjöld hafa sett svip á kvikmyndasýningar
Svartra sunnudaga í vetur. Íslenskir listamenn eiga heiðurinn af þeim og
verða þau öll til sýnis í dag í Bíó Paradís.
PHANTASM Veggspjald eftir Ingu Maríu Brynjarsdóttur ÚRVAL MYNDA EFTIR ROGER CORMAN Ýmsir höfundar
DEEP RED Veggspjald
eftir Pál Óskar Hjálm-
týsson
PINK FLAMINGOS
Veggspjald eftir Jóhann
Ludwig Torfason
Hönnunarhúsið Netagerðin við Nýlendu-
götu 14 hefur verið heimili íslenskrar
hönnunar og tónlistar síðan í október
2011. Þar hafa hönnunarteymin Stáss og
Volki meðal annars unnið og selt sína
hönnun og textílhönnuðurinn Bryndís
Bolladóttir. Auk þeirra hefur Kongó Shop
verið undir þaki Netagerðarinnar en fyrir-
tækið sérhæfir sig í dreifingu á tónlist.
Mikið líf og fjör hefur verið í húsnæði
Netagerðarinnar frá fyrsta degi en nú er
komið að tímamótum. Netagerðin mun
flytja starfsemi sína af Mýrargötunni en
ekki hefur verið ákveðið hvert hönnunar-
húsið flytur.
Því er blásið til kveðjuveislu í dag
milli klukkan 12 og 16 þar sem
boðið verður upp á lifandi
tónlist og hægt verður að
gera góð kaup á íslenskri
hönnun og tónlist á tilboðs-
verði.
Dagskrá hefst klukkan 13
á því að Ómar og Óskar
Guðjónssynir stíga á stokk.
Jónas Sig kemur fram
klukkan 14 og klukkan 15
Robert the Roommate.
Gengið er inn í Neta-
gerðina frá Mýrargötu.
NETAGERÐIN FLYTUR
Blásið verður til kveðjuveislu á Nýlendugötu 14 vegna flutninga
Netagerðarinnar. Veislan stendur frá klukkan 12 til 16 í dag.
VOLKI
DESIGN Að
Netagerðinni
standa Bryn-
dís Bolladóttir,
Stáss, Volki og
Kongó Shop.
Frábært úrval afþreyingar,
ferskar fréttir, fjölbreytt
efnisval, myndrænt viðmót
og færri flettingar.
Þess vegna var visir.is
kosinn besti frétta- og
afþreyingarvefur ársins
á Íslensku vefverðlaunu-
num 2012.
Minna
að fletta
meira
að frétta
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar
afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og
skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna það
efni sem leitað er að.“
BESTI FRÉTTA- OG
AFÞREYINGARVEFURINN
Frábært úrval afþreyingar,
ferskar fréttir, fjölbreytt
efnisval, myndrænt viðmót
og færri flettingar.
Þess vegna var visir.is
kosinn besti frétta- og
afþreyingarvefur ársins
á Íslensku vefverðlaunu-
num 2012.
Minna
að fletta
meira
að f étta
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Gönguferðir með barnavagna og kerrur alla daga vikunnar kl. 12.00
Hressileg ganga fyrir mömmur og pabba, afa og ömmur með léttum
æfingum, teygjum og slökun, hver gönguferð tekur ca. 60 - 75 mínútur.
Mætið í góðum gönguskóm og helst göngufatnaði.
Gengið er eftir göngustígum borgarinnar, sjá dagskrá hér neðar.
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.
Fararstjóri: Auður Kjartansdóttir. Brottför er kl 12:00 alla daga:
Mánudag: Mæting við Perluna Öskjuhlíð
Þiðjudagur: Mæting við Gerðasafn í Kópavogi
Miðvikudag: Mæting við Árbæjarlaug
Fimmtudag: Mæting við Nauthól
Föstudag Mæting við Húsdýragarðinn Laugardal
Barnavagnavika
FÍ og Ferðafélags barnanna 13. - 17. maí