Fréttablaðið - 04.05.2013, Blaðsíða 78
KYNNING − AUGLÝSINGStangveiði LAUGARDAGUR 4. MAÍ 20138
SJÁLFBOÐALIÐAR
FYLGJAST MEÐ NÆTUR
VEIÐI
Tíu sjálfboðaliðar úr röðum stang-
veiðimanna hafa verið útnefndir
sem veiðiverðir við Þingvallavatn
í sumar.
Þingvallanefnd hafði ákveðið
að banna næturveiði í vatninu
sökum ónæðis frá veiðimönnum
og slæmrar umgengni þeirra, auk
þess sem brögð voru að því að
notuð væri ólögleg beita. Eftir
kröftug mótmæli og fundi með
stangveiðimönnum féll nefndin
frá ákvörðun sinni. Þingvallanefnd
staðfesti svo samstarfsyfirlýsingu
sem þjóðgarðs vörður hafði unnið
í samstarfi við Landsamband
stangaveiðifélaga og Veiðikortið
um sameiginlegt eftirlit og bætta
veiðimenningu við vatnið, á fundi
sínum þann 19. apríl síðastliðinn.
„Aðilar árétta að með þessu er
ekki aðeins lagður grunnur að
bættri veiðimenningu í þjóðgarð-
inum heldur er efnt til samstarfs
þjóðgarðsins og veiðimanna um
verndun Þingvallavatns sem haldið
verður áfram til lengri tíma,“ segir í
yfirlýsingu frá þjóðgarðinum.
Veiðiverðirnir tíu verða merktir á
meðan þeir sinna skyldum sínum
en þeir fá Veiðikortið í þóknun fyrir
framlag sitt. Veiðitímabilið í þjóð-
garðinum byrjaði 1. maí. Fiskurinn
hefur þó verið tregur enda hefur
verið afar kalt í veðri undanfarið.
MÆLA FRUMLEIÐNI Í ÚLFARSÁ
Nýlega hóf Veiðimálastofnun rannsókn á grunnþáttum í lífríki Úlfarsár, eða Korpu, eins og
hún er einnig nefnd. Þetta þykir tímamótarannsókn enda hefur frumframleiðni aldrei verið
mæld áður í straumvatni á Íslandi en greint er frá rannsókninni á vef Veiðimálastofnunar
www.veidimal.is.
Frumframleiðni er í grunninn framleiðsla á lífrænu efni úr koldíoxíði og nánast allt líf á
jörðinni er á einn eða annan hátt háð því ferli. Frumframleiðendur eru þær lífverur sem
geta beislað orku sólarljóssins og nýtt hana til þessarar framleiðslu. Lífræn efni sem þannig
myndast, nýtast í efri þrepum fæðukeðjunnar og er því á óyggjandi hátt undirstaða alls lífs.
Í Úlfarsá verður reynt að mæla virkni þörunga til orkubindingar (tillífun) á mismunandi
árstímum með mælingum á súrefnisinnihaldi árvatnsins og ljósstyrk sólarljóss. Einnig
verður tegundasamsetning og magn þörunga á árbotni athugað. Rannsókninni er stýrt af
Friðþjófi Árnasyni og Ragnhildi Þ. Magnúsdóttur, líffræðingum á Veiðimálastofnun, og er
unnin í samstarfi við aðra sérfræðinga á stofnuninni og erlenda vatnalíffræðinga sem hafa
tímabundið aðsetur á Veiðimálastofnun. Rannsóknin mun standa yfir fram á mitt ár 2014.
ELDAÐ VIÐ ÁRBAKKANN
Það er einfalt og skemmtilegt
að elda fisk við árbakkann og
lítil fyrirhöfn ef veiðimenn eru
vel skipulagðir. Hægt er að nota
lítið ferðagasgrill eða prímus og
pönnu til að elda fiskinn. Þeir sem
eru ævintýragjarnari taka með
kol, álpappír og grind og grafa
holu í jörðina. Góður hnífur, bretti
og flísatöng þurfa að vera við
höndina til að verka fiskinn. Olía,
ferskar eða þurrkaðar kryddjurtir
eftir smekk hvers og eins og salt
og pipar gera góðan fisk enn
betri og sítróna breytir grilluðum
fisk í kóngafæði. Fiskinn er bæði
hægt að flaka eða grilla heilan
eftir að búið er að verka hann. Sé
fiskurinn grillaður heill er gott að
skera nokkrar rákir hvorum megin
og troða ferskum kryddjurtum í
sárin og setja sítrónu á milli. Með-
lætið þarf ekki að vera flókið. Kalt
kartöflusalat eða ferskt salat og
góð köld sósa eftir smekk hvers
og eins.
Ný
tt
ap
p
Farðu á visir.is/utvapp eða skannaðu QR kóðann
og sæktu Útvappið fyrir iOS eða Android.
Nú hafa 10.000 manns sótt Útvappið í símann sinn! Komdu í hópinn
og hlustaðu á FM957, Bylgjuna og X977 hvar og hvenær sem er.
Við erum komin í 10.000 síma