Fréttablaðið - 04.05.2013, Síða 71

Fréttablaðið - 04.05.2013, Síða 71
 | FÓLK | 5 BIO-KULT CANDÉA HENTAR ÖLLUM Bio-Kult Candéa er samsett úr vinveittum gerlum, hvít- lauk og þrúgukjarnaþykkni og er öflug vörn gegn Can- dida-sveppasýkingu í meltingarvegi kvenna og karla. Sveppasýking getur komið fram með ólíkum hætti. Einkennin geta meðal annars verið munnangur, fæðuóþol, skapsveiflur, þreyta, meltingartruflanir, verkir í liðum, mígreni og húðvandamál. MJÖG GÓÐ REYNSLA AF BIO-KULT CANDÉA Íris Guðmundsdóttir hafði strítt við ristil- krampa í nokkur ár áður en hún kynntist Bio-Kult Candéa. „Ég var farin að forðast að fara út úr húsi strax eftir máltíð, eða hrein- lega sleppti því að borða þegar ég var ekki heima hjá mér. Yfirleitt komu kramparnir þegar ég var búin að fá mér að borða. Ég fór í gegnum allt mataræðið hjá mér og tók út mjólkurvörur og minnkaði glútenneyslu gríðarlega en ekkert virtist virka. Þá rakst ég á auglýsingu og reynslusögur um Bio-Kult Candéa og sá að ég hafði engu að tapa. Strax á fyrstu vikunni fann ég mikinn mun á mér og eftir þrjár vikur fann ég ekki fyrir þessum kvilla sem hafði hrjáð mig í nokkur ár. Bio-Kult Candéa virkar mjög vel á mig, takk fyrir mig.“ VIRKAR VEL Á SVEPPASÝKINGU Bio-Kult Candéa hjálpaði dóttur Lindu Andrésardóttur. „Dóttir mín á unglingsaldri hafði átt við óþægindi og kláða að stríða á kynfærasvæði í nokkra mánuði. Hún hafði prófað ýmis lyf við sveppasýkingunni en ekkert virkaði. Ég las um Bio-Kult Candéa og ákvað að kaupa pakka og fyrir hana til að prófa, þar sem sveppalyfin náðu ekki niður kláð- anum. Fljótlega fann hún mun á sér og núna passar hún vel upp á að gleyma ekki að taka hylkin. Í sumar gleymdist það í nokkra daga og þá blossaði sveppasýkingin upp aftur. Við mæðgur viljum þakka fyrir að hægt er að ná niður vanda- máli á náttúrulegan hátt í stað þess að nota lyf við sveppa- sýkingu.“ SÁRSAUKAFULLIR RISTILKRAPMAR ÚR SÖGUNNI Jóhanna Þorvaldsdóttir fékk það sársaukafulla ristilkrampa að hún leið nánast út af. Bio-Kult Candéa breytti því. „Ég var yfirleitt dágóða stund að jafna mig eftir ristilkrampa- köstin. Ég kveið líka fyrir því að fara á mannfögnuði og í matarboð því ég var hrædd um að fá ristilkrampakast þegar ég var ekki heima við. Ég ræddi þetta við lækna sem vissu ekki hvers vegna ég fékk köstin og áttu engin sérstök ráð handa mér. Svo benti vinkona mín mér á að prófa Bio- Kult Candéa. Ég fann nánast strax mun. Meltingin varð allt önnur og núna tæplega tveimur árum eftir að ég byrjaði að taka Bio-Kult hef ég ekki enn fengið ristilkrampakast. Bæði líður mér betur í maga, ég get treyst meltingunni og ég er laus úr viðjum ristilkrampans. Ég hika ekki við að mæla með Bio-Kult Candéa.“ JÁKVÆÐAR BREYTINGAR Á LÍKAMA OG SÁL ICECARE KYNNIR Heilsuvörurnar Bio-Kult Candéa og Femarelle hafa gefið góða raun. Bio-Kult Candéa fæðubótarefnið styrkir náttúrulegar varnir líkamans gegn Candida-sveppasýkingu. Femarelle er náttúrulegt jurtaSERMI sem slær á einkenni tíðahvarfa. Vörurnar fást í öllum apótekum og heilsubúðum. ÁNÆGÐ Guðfinna Sigurgeirsdóttir fann strax fyrir breytingum til hins betra með Femarelle. FEMARELLE ER ÖRUGGUR KOSTUR FYRIR KONUR ■ Slær á óþægindi svo sem höfuðverk, svefntruflanir, nætursvita, skapsveiflur, óþægindi í liðum og vöðvum. ■ Þéttir beinin. ■ Hefur hvorki áhrif á móðurlíf né brjóstavef. ■ Náttúruleg lausn, inniheldur tofu extract og hörfræjaduft. ■ Inniheldur engin hormón eða ísóflavóníða. ■ Staðfest með rannsóknum síðustu 13 ár. LAUS VIÐ VERKJALYFIN – ÞVÍLÍKUR MUNUR Kolbrún Jóhannesdóttir las að Femarelle myndi slá á einkenni tíðahvarfa hjá konum og ákvað því að prófa. „Ég taldi að ég væri að fá liðagigt, þar sem ég var orðin svo aum í liðum og mér var alltaf illt í höndum og fingrum og notaði verkjalyf til að lina þjáningarnar. Eftir að ég byrjaði á Femarelle fann ég fljótlega að mér leið mun betur í liðunum. Eftir rúmlega viku notkun voru verkirnir að mestu horfnir og mér líður mjög vel í öllum liðum og vöðvum og má segja að ég þurfi ekki að nota verkjalyf lengur. Að auki sef ég mun betur og hvílist mjög vel þegar ég sef. Það er allt annað líf eftir að ég byrjaði að nota Femarelle, ég mæli með því við vinkonur mínar og hvet allar konur til að prófa! JÁKVÆÐAR BREYTINGAR Á LÍKAMA OG SÁL Guðfinna Guðný Sigurgeirsdóttir fékk fyrsta pakkann af Fem- arelle að gjöf og fann strax fyrir breytingum til hins betra. „Vin- kona mín gaf mér fyrsta pakkann og sagði mér að prufa þar sem Femarelle hefði reynst konum á breytingaskeiði vel. Ég hafði sjálf barist við vanlíðan vegna tíðahvarfa svo sem hitakóf, stirðleika í liðum og vöðvum, skapsveiflur og annað sem fylgir tíðahvörfum. Eftir að ég fór að taka Femarelle fann ég fljótlega fyrir jákvæðum breytingum á líkama og sál. Lundin varð léttari, hitakófum fækk- aði og það sem mest um munar fyrir mig minnkaði stirðleiki í liðum og vöðvum til muna. Núna get ég gengið um án þess að vera stirð og öll mín líðan er mun betri. Mér varð ljóst að með hjálp Femarelle gat ég komist léttar í gegnum breytingaskeiðið. Ég hvet allar konur til að prófa.“ HÆTTI Á HORMÓNUM OG LÍÐUR VEL MEÐ FEMARELLE Kristín Bjarnadóttir fór í aðgerð þar sem þurfti að fjarlægja móðurlíf og báða eggjastokka árið 2000. „Þar sem ég var aðeins 44 ára á þeim tíma var mér ráðlagt af kven- sjúkdómalækni mínum að fara á hormónalyf sem ég hef tekið síðan. Um síðustu áramót fór ég að velta fyrir mér að hætta að taka hormón. Ég var samt í vafa því ég hafði áhyggjur af hvernig mér mundi líða án þeirra og eins hvað ég mundi geta tekið í staðinn til þess að draga úr einkennum breytingaskeiðs. Ég ákvað að prófa Femarelle og sé ekki eftir því. Ég komst að því að ég hafði verið með miklar aukaverkanir af hormónunum en mér líður miklu betur að öllu leyti eftir að ég byrjaði að taka Femarelle. Verkir í stoðkerfi hafa minnkað stórlega og svæsnum og þrálátum höfuð- verkjaköstum hefur fækkað en þau stóðu oft yfir í nokkra daga. Í dag líður mér miklu betur að öllu leyti, þökk sé Femarelle.“ FRÁBÆR LÍÐAN AF NOTKUN FEMARELLE Ásdís L. Runólfsdóttir hafði reynt allt áður en hún kynntist Femarelle. „Ég hafði í mörg ár glímt við ýmiss konar vandamál varðandi blæðingar og tíðarhvörf. Sam- hliða mjög slæmum skapsveiflum og andlegri vanlíðan jókst tíðni mígreniskasta gríðarlega. Ég prófaði allt, breytti matarræðinu, tók inn ýmiss konar vítamín og bætiefni en ekkert virkaði. Í lok síðasta árs prófaði ég hormónatöflur í þrjá mánuði með slæmum árangri. Þegar Femarelle kom á markaðinn var ég komin að því að gefast upp. Hitaköstin urðu stöðugt verri og ég átti svefnlausar nætur vegna nætursvita og hitakasta. Mér leið eins og ég logaði innan frá. Það tók Femarelle um það bil tvær vikur að virka, á þriðju viku fann ég ekki fyrir neinum einkenn- um. Nú líður mér mjög vel bæði andlega og líkamlega. Ég þarf ekki lengur að rífa mig úr fötunum þegar ég sit í sófanum á kvöldin vegna óbærilegs hita og sef mjög vært í langerma nátt- kjólum á næturnar.“ ICECARE.IS Bio-Kult Candéa og Femarelle vörur- nar fást í öllum apótekum, heilsu- vöruverslunum og í heilsuhillum stórmarkaðanna. Nánari upplýsingar er að finna á www. icecare.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.