Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 8

Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 8
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 Umsókn um íslenskan ríkisborgararétt Breyttur afgreiðslustaður Athugið að frá 1. maí 2013 skulu umsóknir og erindi vegna ríkisborgararéttar berast Útlendingastofnun, Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, sími 510 5400. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Útlendingastof- nunar www.utl.is. Fyrirspurnum vegna umsókna sem borist hafa innanrík- isráðuneytinu fyrir 1. maí 2013, ber hins vegar að beina til ráðuneytisins. ------ Application for Icelandic citizenship New point of contact Please be adviced that from the 1st of May 2013 applications and inquiries for Icelandic citizenship should be delivered to the Directorate of Immigration at Skógarhlíð 6, 105 Reykjavík, tel. 510 5400. Further information can be found on the website of the Direc- torate of Immigration www.utl.is. Inquiries regarding applications received by the Ministry of the Interior before the 1st of May 2013 should be addressed to the ministry. Innanríkisráðuneytinu 4. maí 2013. DÓMSMÁL Jörðin að Vatnsenda í Kópavogi er enn í beinni eigu dán- arbús Sigurðar Kristjáns Lárus- sonar Hjaltested, en ekki sonar- sonar hans og núverandi ábúanda, Þorsteins Hjaltested. Þetta er nið- urstaða Hæstaréttar frá í gær, en um er að ræða staðfestingu á niður- stöðu Héraðsdóms Reykjaness frá því í nóvember síðastliðnum. Um 7.000 manna byggð er nú í Vatnsenda og er gert ráð fyrir enn frekari uppbyggingu á svæðinu. Kópavogsbær hefur greitt Þorsteini hátt í þrjá milljarða króna vegna eignarnáms í fjórum áföngum frá árinu 1992. Kópavogsbær hefur tekið undir sig hátt í 2.000 hektara af Vatnsendalandinu, en eftir síð- asta eignarnám voru aðeins fjöru- tíu hektarar eftir af jörðinni. Auk þeirrar upphæðar hefur Þorsteinn, sem skráður eigandi, haft meiri tekjur af landinu í gegnum ákvæði í samningum við Kópavogsbæ. Þor- steinn greiddi mest allra í skatt á Íslandi árin 2010 og 2011. Deilan um landið hefur staðið frá árinu 1967, en á sér rætur allt til 1940. Þá lést Magnús Einarsson Hjaltested og eftirlét frænda sínum, Sigurði Kristjáni Lárussyni Hjalte- sted eftir jörðina, með ýmsum skil- yrðum þó, meðal annars að jörðina mætti ekki selja og að hún skyldi ganga að erfðum til elsta sonar í beinan karllegg. Við andlát Sigurðar árið 1966 hlaut Magnús, elsti sonur hans og faðir Þorsteins, umráð og afnot yfir jörðinni, en síðan þá hafa yngri hálfbræður Magnúsar, þeir Sigurð- ur Kristján og Karl Lárus deilt við Magnús og síðar Þorstein um landið. Í niðurstöðu Hæstaréttar að þessu sinni segir að í tengslum við yfirfærslu umráða og afnota af jörð- inni frá dánarbúi Sigurðar til Magn- úsar sonar hans árið 1968 sé „hvergi minnst á afsal til Magnúsar á bein- um eignarrétti yfir jörðinni“. Auk þess verði ekki séð að „þeim rétti hafi síðar verið ráðstafað til hans með skiptayfirlýsingu eða afsali“. Því teljist telst beinn eignarrétt- ur að jörðinni Vatnsenda í Kópavogi enn vera á hendi dánarbúsins. Ekki náðist í Þorstein við vinnslu þessarar fréttar. thorgils@frettabladid.is Vatnsendi ekki í eigu Þorsteins skattakóngs Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms um að landið á Vatnsenda í Kópavogi sé enn í beinni eigu dánarbús Sigurðar Kristjáns Hjaltested. Núverandi ábúandi hefur haft miklar tekjur af landinu og deilt við föðurbræður sína. GAMLI VATNSENDABÆRINN Eftir áratuga deilur hefur nú verið staðfest í Hæsta- rétti að jörðin að Vatnsenda er enn í beinni eigu dánarbús Sigurðar Kristjáns Hjaltested, en ekki núverandi ábúanda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ➜ „Nú byrja alls konar mál...“ Með dómi Hæstaréttar má segja að Karl Hjaltested og Sigurður bróðir hans hafi unnið sigur í málinu. „Þetta er það sem við höfum alltaf sagt og staðfestir dóm Hæstaréttar frá 1968 þar sem tekið er fram að ekki sé deilt um eignarhald, heldur fór aðeins ábúenda- og afnotaréttur til Magnúsar bróður míns. Karl segir þetta ánægjudag. „Það er bara verst að móðir okkar er ekki á lífi til að njóta þessa dags.“ Hann segir framhaldið óljóst, enda margt í málinu. „Nú byrja alls konar mál, við eigum eftir að setjast niður og skoða næstu skref.“ Save the Children á Íslandi ➜ Skoða málið um helgina Málið getur haft gríðar- mikil áhrif á Kópavogsbæ og framtíðaruppbyggingu á svæðinu. Ármann Kr. Ólafs- son, bæjarstjóri sagði í sam- tali við Fréttablaðið að hann hafi ekki haft tækifæri til að skoða dóminn til hlítar, en málið væri í skoðun. „Ég mun hitta lögfræðinga og embættis- menn bæjarins um helgina og við munum leggjast yfir þetta. Ég hef hins vegar ekki náð að kynna mér dóminn og get ekki tjáð mig frekar um það, að svo komnu máli.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.