Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.05.2013, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 04.05.2013, Qupperneq 16
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16 Þann 1. maí birtist grein í Fréttablaðinu eftir Þórdísi Hauksdóttur, þar sem hún fjallaði um uppsetningu fjarskipta- mannvirkja á Úlfars felli. Í greininni var uppsetn- ingin og tengdar fram- kvæmdir gagnrýndar harkalega, en með þess- um línum vill Voda- fone skýra tilurð fram- kvæmdanna og sögulegt samhengi þeirra. Alvarleg röskun á mikilvægri þjónustu yfirvofandi Um áratuga skeið var rekin á Rjúpnahæð í Kópavogi fjar- skiptastöð, þaðan sem og útvarps- sendingar voru til stórs hluta höf- uðborgarsvæðisins. Stöðin var lögð niður fyrir rúmum fimm árum, vegna byggingar nýrra íbúðahverfa á svæðinu. Þá átti að hraða uppbyggingu á aðstöðu til útvarpssendinga á nýjum stað, en sú vinna tafðist úr hófi og útvarpssendingar lentu á hrak- hólum. Fyrir vikið hafa gæði útvarpssendinga minnkað og þjónustan við borgarbúa versn- að, eins og vaxandi umkvart- anir almennings eru til vitnis um. Vegna byggðaþróunar munu útvarps- og sjónvarpssendingar frá Vatnsendahæð einnig leggjast af innan skamms og án uppbygg- ingar á nýjum útsendingarstað blasti því við alvarleg röskun á fjarskiptaþjónustu sem bæði er nauðsynleg út frá öryggissjónar- miðum og kröfu almennings um gæði útvarps- og sjón- varpsþjónustu. Í því samhengi hófst fyrir nokkrum árum kortlagning á mögulegum sendastöðum á höfuð- borgarsvæðinu. Niður- staða þeirrar vinnu var sú, að Úlfarsfell væri langheppilegasti stað- urinn til útvarpssend- inga. Þaðan gætu fjar- skiptamerki borist víða, án þess þó að umrædd mannvirki væru nærri byggð. Sótt var um leyfi fyrir nauðsyn- legum framkvæmdum og eftir að leyfi fékkst, um einu og hálfu ári síðar, var hafist handa við lagningu jarðstrengs og bygg- ingu tækjahúss. Þá voru settir upp tveir tréstaurar fyrir loftnet útvarpssendanna. Rík áhersla var lögð á lág- marksrask á umhverfinu við framkvæmdirnar. Sannarlega sá þeirra merki á framkvæmda- tímanum en nú, u.þ.b. ári síðar, eru ummerkin lítil sem engin. Farið var í einu og öllu eftir sett- um skilmálum en eftir að fram- kvæmdum lauk kom í ljós, að Reykjavíkurborg var óheimilt að veita byggingarleyfið sem síðar var afturkallað. Málinu var í framhaldinu vísað til kærunefnd- ar Umhverfis og auðlindamála, sem hefur það til úrvinnslu þegar þessi orð eru rituð. Úlfarsfell geti áfram verið útivistarparadís Uppbygging fjarskiptaþjónustu er mikilvæg samfélaginu öllu. Miklar kröfur eru gerðar til þjónustuaðila og til að verða við þeim er óhjákvæmilegt að setja upp fjarskiptabúnað af ýmsu tagi, oft á óbyggðum svæðum. Þannig hefur tekist að bæta þjón- ustu við almenning, auka öryggi ferðafólks og mæta vaxandi eftir- spurn. Í öllum framkvæmdum leggjum við okkur fram um að umgangast náttúruna af virðingu og hlusta fordómalaust á skoðan- ir þeirra sem gagnrýna einstak- ar framkvæmdir á okkar vegum. Við teljum okkur ekki vera óvini náttúrunnar og trúum því ein- læglega, að fjarskiptarekstur á Úlfarsfelli hafi hvorki áhrif á lífræna heild fjallsins né hindri borgarbúa í að sækja þangað til útivistar. Vinnum saman Starfsmenn Vodafone er reiðu- búnir til að vinna með öllum sem hagsmuna eiga að gæta að viðun- andi lausn á málinu. Það er okkar trú að eitt þurfi ekki að útiloka annað og með góðri samvinnu geti Úlfarsfell í senn orðið var- anlegur útsendingarstaður og útivistar paradís. Sjónvarps- og útvarps- sendingar frá Úlfarsfelli Undanfarið hefur mikil umræða verið um olíu- leit á íslenska landgrunninu og hefur m.a. verið fjallað um skatt- lagningu á slíkri starfsemi. Olíu- leitarfyrirtæki hafa gagnrýnt fyrirkomulag skattlagningar og gert kröfur um breytingar. Á sínum tíma var undirritaður fenginn til að vinna grunnathugun á því hvernig skattlagningu á olíuvinnslufyrir- tækjum væri háttað hjá öðrum ríkj- um og var m.a. í því litið til Kanada en þar eru aðstæður svipaðar og við Íslandsstrendur. Einnig eru vinnslu- aðferðir áþekkar þeim sem nota á hér á landi. Enn er þó langt í land að vinnsla fari af stað af fullri alvöru og skulu menn ekki vanmeta þá miklu vinnu sem er fram undan í rannsóknum og tilraunaborunum. Í upphafi sjöunda áratugar síð- ustu aldar var byrjað að leita að olíu á hafsvæðinu í kringum Nýfundna- land og Labrador. Boraðar voru 132 tilraunaholur áður en vinnanleg olía fannst en til samanburðar hafa verið boraðar 3.500 tilraunaholur í Norðursjó og hafa 200 gefið af sér vinnanlega olíu. Rannsóknir á haf- svæðinu í kringum Nýfundnaland og Labrador héldu áfram út sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar en það var ekki fyrr en í byrjun níunda ára- tugarins sem olíuvinnsla byrjaði af fullum krafti. Ótroðnar slóðir Kanadamenn ákváðu að fara ótroðnar slóðir í skattlagningu á þessu sviði og var yfirvöldum þar í landi veitt sérstök lagaheimild til þess að gera sérsamninga við hvert olíuleitarfyrirtæki þar sem kveðið var á um hlutfall og fyrir- komulag álagningar. Með þessu var tekið mið af mismunandi aðstæðum hvers og eins, s.s. því hversu mikla olíu er hægt að vinna úr hverri auð- lind og hversu miklum fjármunum talið er að viðkomandi fyrirtæki þurfi að eyða í fjárfestingar. Með þessu hafa Kanadamenn getað komið til móts við fyrirtækin og fengið sanngjarna hlutdeild í ágóð- anum og um leið gert olíuvinnslu meira aðlagandi fyrir erlenda fjár- festa. Er ljóst að íslensk stjórnvöld líkt og þau kanadísku þurfa að taka meira tillit til krafna olíufyr- irtækja um að skattlagning endur- spegli líka kostnaðinn og áhættuna fyrir fyrirtækin sjálf. Það sem við getum lært af Kanadamönnum er að hægt er að fara fleiri en eina leið, þ.e.a.s. við getum sett upp sveigjanlegt kerfi sem tekur mið af mismunandi þáttum í stað þess að einblína á að velja einhvern einn farveg líkt og umræðan hefur látið stjórnast af hingað til. Til samanburðar má nefna olíu- vinnslu á svæði við Kanada sem kallast Hibernia-svæðið. Þar var gerður sérsamningur við olíu- vinnslufyrirtæki um skattheimtu og voru fyrirtækjunum sett mörk með hversu miklu af rekstrarkostn- aði þau fengju að gjaldfæra í rekstri sínum en ýmis afsláttur var svo gef- inn með tilliti til aðstæðna. Mikil- vægt er að við drögum lærdóm af því sem önnur ríki í sömu aðstæðum og Íslendingar hafa gert enda ljóst að þegar kemur að olíuleit og fram- leiðslu þá er um mjög tímafreka og kostnaðarsama grein að ræða en ávinningurinn getur að sama skapi verið mikill. Olía við Ísland Landey ehf. er dótturfélag Arion banka og fer með eignarhald bankans á nýbyggingum og fasteignaþróunarverkefnum. Hátúni 2b | 105 Reykjavík | Sími 594 4200 | Fax 594 4201 | www.landey.is Austurbakki 2 Um er að ræða byggingarrétt að 15.500 m2 skrifstofu- og atvinnuhúsnæði við Austurbakka 2, Reykjavík. Reiturinn er merktur nr. 2 á meðfylgjandi deiliskipulagsuppdrætti. Spennandi tækifæri á lifandi svæði. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins Hátúni 2b í síma 594 4210 eða 660 4210, netfang: landey@landey.is ÍS LE N SK A /S IA .I S/ L A E 6 39 54 0 4/ 13 Landey býður til sölu eftirtalin lóðarréttindi: SKIPULAGSMÁL Hrannar Pétursson framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone ➜ Það er okkar trú að eitt þurfi ekki að útiloka annað og með góðri samvinnu geti Úlfarsfell í senn orðið varan- legur útsendingarstaður og útivistarparadís. OLÍULEIT Sævar Þór Jónsson lögmaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.