Fréttablaðið - 04.05.2013, Page 30

Fréttablaðið - 04.05.2013, Page 30
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Eftir langt atvinnuumsóknarferli hefur Björt Ólafsdóttir loksins fengið svar, hún mun taka sæti á Alþingi næsta haust ásamt fimm flokksystkinum sínum í hinum nýstofnaða flokki Bjartri framtíð. Björt verður ein af 27 nýjum þingmönnum sem taka sæti á Alþingi og viðurkennir að hún sé með nokkur fiðrildi í maganum yfir væntanlegu starfi. „Ég er svona að átta mig á þessu núna. Ég hlakka líka mikið til að takast á starf- ið og leggja mitt af mörkum. Ég verð samt örugglega smá stressuð fyrir mína fyrstu ræðu í pontu en það er eðlilegt,“ segir Björt hlæjandi er hún tekur á móti blaða- manni í fallegri risíbúð í miðbæ Reykja- víkur. Þar býr Björt ásamt unnusta sínum, Birgi Viðars syni, og þriggja ára syni þeirra, Garpi. Árið 2013 er viðburðaríkt í lífi Bjartar. Hún fagnaði þrítugsafmæli sínu í byrjun árs, sagði upp vinnu sinni sem mannauðs- ráðgjafi hjá Capacent og ákvað að skella sér í framboð. Einnig fékk hún bónorð og er að skipuleggja veglegt sveitabrúðkaup í sumar. Björt er nefnilega sveitastúlka sem ólst upp við heldur óvanalegar aðstæður. Ólst upp á meðferðarheimili „Mér og bræðrum mínum hefur aldrei þótt þetta neitt sérstakt tiltökumál en flestum finnst mjög merkilegt þegar við segjumst hafa alist upp á meðferðarheimili,“ segir Björt og vísar þar í æskuheimilið, Torfa- staði í Biskupstungum. Foreldrar Bjartar ráku meðferðarheim- ili fyrir unglinga á aldrinum 12-17 ára sam- hliða því að reka búskap á bænum í 28 ár. Samtals voru þau yfirleitt 12 á heimilinu, fimm fjölskyldumeðlimir, en Björt á tvo bræður, sex unglingar og einn vinnumaður. Yfirleitt var um barnaverndarmál að ræða þar sem vímuefnamisnotkun kom stundum við sögu. Björt lærði snemma á mikilvægi góðra samskipta og kallaði þá unglinga sem dvöldu hjá þeim hverju sinni stjúpsystkini sín. „Krakkarnir sem dvöldu hjá okkur voru aldrei minna en ár í senn, sum komu svo aftur til að vinna og búa hjá okkur. Auð- vitað tengdist maður þeim mismikið en mörg þeirra eru í sambandi við okkur enn þann dag í dag. Hafa verið með okkur á jól- unum í seinni tíð og skírt börn sín í höfuðið á foreldrum mínum,“ segir Björt og bætir við að þau hafa yfirleitt tæklað öll vandamál sem komu upp á svona stóru heimili saman. „Maður lærði aga og að maður þurfti að vinna fyrir hlutunum. Ég man ekkert sér- staklega eftir neinu einstöku sem kom upp en ég held að mamma og pabbi hafi sofið með annað augað opið í 28 ár. Við vorum hins vegar aldrei skert af ást og umhyggju þó að stundum reyndi á að deila athygli for- eldra okkar með öðrum.“ Ætlaði að hætta í menntaskóla Björt gekk í grunnskóla Biskupstungna í Reykholti, í tíu manna bekk þar sem allir fengu að blómstra, en er hún lauk grunn- skólagöngu fór hún að renna hýru auga til höfuðborgarsvæðisins. Hana langaði í Menntaskólann við Hamrahlíð þó að móðir hennar hafi frekar viljað hafa einkadótt- urina nær. Björt hafði vinninginn og flutti 16 ára gömul til Reykjavíkur. „Mömmu var ekki alveg rótt að sleppa hendinni af einkadótturinni svo hún fékk konu sem hafði verið hjá okkur á Torfa- stöðum til að flytja inn með mér ásamt fjöl- skyldu sinni. Svo var ég oft lokkuð heim um helgar. Ég er svo mikill sælkeri að pabbi hringdi oft í mig á föstudögum og sagðist vera með lambalæri eða eitthvað annað gott í ofninum og þá var ég fljót að koma,“ rifjar Björt upp hlæjandi. Það var krefjandi fyrst um sinn að koma úr sveitinni í jafn stóran skóla og MH. Hins vegar voru það týpurnar og ekki síst hinn frægi Hamrahlíðarkór sem heilluðu Björt, sem var fljót að kynnast fólki og koma sér inn í félagslífið. „Ég hafði alltaf verið afburðanemandi en kannski hentaði fjölbrautakerfið mér ekki alveg nógu vel. Eftir annað árið þurfti ég að horfast í augu við raunveruleikann og spýta í lófana ef ég ætlaði að útskrifast á réttum tíma,“ segir Björt sem á þeim tíma var jafnvel að spá í hætta í skóla og halda út í heim. „Ég fékk þá flugu í hausinn að læra fatahönnun í Flórens 18 ára en þá settu for eldrar mínir mér stólinn fyrir dyrnar og sögðu mér að gjöra svo vel og klára skólann. Eftir það gæti ég gert það sem ég vildi. Þá lá hins vegar sálfræðin beinast við og ég sé ekki eftir því í dag. Ég hef samt enn þá mik- inn áhuga á hönnun og tísku.“ Þrífst á mannlegum samskiptum Björt fór í sálfræði í Háskóla Íslands og vann á geðdeildum Landspítalans samhliða námi sínu. Hún segir áhugann á sálfræði líklega vera hægt að rekja til æsku sinnar þegar hún lærði að takast á við og eiga sam- skipti við mismunandi einstaklinga á heim- ili sínu. Í starfi sínu á geðdeildunum kynnt- ist hún samtökunum Geðhjálp þar sem hún síðar gegndi formennsku á árunum 2011 til lok árs 2012. „Geðhjálp var sjálfboðavinna sem ég sinnti samhliða vinnu minni sem ráðgjafi hjá Capacent og ég lærði heilan helling í því starfi. Ég var með gott fólk í kringum mig sem studdi mig og kynntist líka nokkr- um alþingismönnum sem ég þurfti að eiga í samskiptum við.“ Björt flutti ásamt unnusta sínum til Lund- ar í Svíþjóð þar sem hún nældi sér í masters- gráðu í mannauðsstjórnun. Þau fluttu svo heim í miðju hruni en Björt datt í lukkupott- inn og fékk draumastöðuna hjá Capacent. „Ég hef alltaf sóst eftir því að vera í ábyrgðarstöðu og viljað vera í eldlínunni. Ég er mikil félagsvera og þrífst þegar ég er í mannlegum samskiptum við sem flesta en þar kemur sálfræðin sér vel. Að kunna að tækla mismunandi einstaklinga með misjafn- ar skoðanir og þarfir. Ég býst við því að það eigi eftir að koma sér vel inni á Alþingi líka.“ Bjartari framtíð Björt tók sér langan umhugsunarfrest um hvort hún ætti að hella sér út í pólitíkina þegar Heiða Kristín Helgadóttir, annar for- maður Bjartar framtíðar, viðraði þessa hug- mynd við hana í byrjun árs. „Ég hef alltaf haft áhuga á stjórnmálum og fékk pólitískt uppeldi þar sem okkur var kennd gagnrýn hugsun. Ég hef samt aldrei verið virk í neinum flokki.“ Eins og flestir fylgdist Björt með velgengni Besta flokksins úr fjarlægð og fékk í kjölfarið góða tilfinn- ingu fyrir stjórnmálum. „Þetta er ábyrgðar- fullt hlutverk sem ég vildi ekki taka að mér í neinni fljótfærni. Því hugsaði ég þetta vel og lengi, auðvitað með mínum nánustu sem studdu mig áfram. Það kom mér því ekki á óvart að komast á þing enda var það mark- miðið allan tímann og ég undir það búin.“ Ýmsar raddir hafa heyrst þess efnist að Björt hafi ekki verið nógu áberandi í kosn- ingabaráttunni miðað við hversu hátt sæti hún skipaði á lista en Björt sat í fyrsta sæti í Reykjavíkurkjördæmi norður. „Ég var úti um allt á meðan á baráttunni stóð, í viðtölum í sjónvarpi og útvarpi. Í odd- vitaþætti RÚV, sat pallborð hjá hinum ýmsu hagsmunaaðilum, fór á fjölmarga vinnustaði og stóð vaktina í verslunarmiðstöðvum. Björt framtíð er ólíkur öðrum flokkum því það eru tveir formenn. Það er eðlilegt að Gummi og Heiða hafi kannski virkað meira áberandi fyrir suma. Við höfðum takmarkað aðgengi að fjölmiðlum og vorum ekki með neina styrki frá ríkinu eins og margur til að koma okkur á framfæri. En mér þykir vænt um að heyra að fólk hafi viljað sjá meira af mér, sumir hringdu bara í mig og mæltu sér mót við mig.“ Góð samskipti lykillinn Björt framtíð hafa lýst því yfir að þau vilji breyta til á Alþingi og meðal annars breyta vinnuferlum, minnka átök og málþóf. Þau eru aðgengilegur flokkur sem vill þjónusta almenning með stjórnmálaþátttöku sinni. „Alþingi er ekkert öðruvísi en aðrir vinnu- staðir þar sem góð samskipti eru lykillinn að góðum árangri. Það skiptir máli að tala saman, setja sitt egó út fyrir rammann og hugsa um heildina. Hvað er besta leiðin hverju sinni,“ segir Björt sem setur spurn- ingarmerki við flokkshollustu. „Mér finnst það skrýtin pæling enda virð- ist sem fólk blindist á allar aðrar leiðir en sínar eigin. Stundum er það ekki besta leið- in og við erum ráðin í þetta starf til að ein- mitt finna bestu útfærslurnar hverju sinni. Það sem skiptir mestu máli er að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Ég set spurningar- merki við það að fylgja ákvörðunum sem ég hef ekki tekið þátt í og er kannski ekki sam- mála.” segir Björt sem hlakkar til að hefjast handa. „Nú ætla ég að vera skipulögð og sum- arið verður nýtt í undirbúning fyrir þennan spennandi vetur sem er fram undan.“ Með fiðrildi í maganum Björt Ólafsdóttir er eitt af nýju andlitunum sem taka sæti á Alþingi. Þar mun hún sitja fyrir hönd Bjartrar framtíðar en Björt er sveitastúlka sem ólst upp á meðferðarheimili þar sem áhuginn á sálfræði kviknaði en sú reynsla gæti nýst í nýju starfi. GÓÐ SAMSKIPTI LYKILLINN Björt Ólafsdóttir er viss um að bakgrunnur hennar úr sálfræði og mannauðsstjórnun eigi eftir að koma sér vel í nýja starfinu þar sem góð samskipti séu nauðsynleg til að ná árangri á Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is BJÖRT FORTÍÐ FJÖLSKYLDAN Björt ásamt unnusta sínum, Birgi Viðarssyni, og syni þeirra, Garpi. Á SKÍÐUM Björt er bæði í skíða- og hesta- mennskunni. Í STUÐI Tveggja ára Björt með foreldrum sínum og bróður í húsi þeirra á Njálsgötunni. STÓRT HEIMILI Allir að borða morgunmat í hestaferð en mikið var um að vera á stóru heimili á Torfastöðum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.