Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 36

Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGStangveiði LAUGARDAGUR 4. MAÍ 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Atli Bergmanm, s. 512-5457, atli.bergmann@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Loop er skandinavískt merki og eitt af stóru merkjunum í fluguveiðibúnaði í heiminum,“ segir Hilmar Hansson, eig- andi verslunarinnar Veiðiflugna sem nýlega tók við umboði fyrir Loop-veiðivörur á Ís- landi. „Loop sérhæfir sig í veiðistöngum, hjólum og línum. Þannig hefur nýja Cross S1-veiði- stöngin frá Loop vakið gríðarlega athygli og menn upphefja hana sem eina af bestu veiði- stöngum sem framleiddar hafa verið,“ út- skýrir Hilmar um eitt helsta stolt Loop. Hann hvetur veiðimenn til að koma með Loop-veiðistangir sem í vantar varahluti því hjá Veiðiflugum leysi menn málin eftir bestu getu. „Í veiðihjólum leggjum við áherslu á Opti- hjól sem eru frábær hjól með afbragðs góða reynslu,“ segir Hilmar. Um miðjan maímánuð á Hilmar von á nýjum straumflugum í verslunina. „Straumflugurnar eru hnýttar af Jóni Inga og eru þær vönduðustu sem völ er á. Við fáum gott úrval af nýjum Fish Skull- og Zonker-straumflugum og allt eru það flugur sem við höfum sjálfir notað með afar góðum árangri á undanförnu ári. Um mánaðamót- in maí-júní tökum við svo inn laxaflugur og verðum með mýmargar nýjungar sem við auglýsum síðar.“ Hilmar segir fleiri nýjunga vera að vænta í Veiðiflugur í sumar. „Við fáum stóra sendingu frá Guide- line á næstu dögum, eins og belly-báta sem eru þeir allra vönduðustu sem völ er á. Frá Guide line kemur líka ný tvíhenda sem heit- ir LXi og fékk verðlaunin „Best in Test“ í síð- asta tölublaði Trout and Salmon. Þá eru Alta- rennilásavöðlurnar nú endurbættar og orðn- ar alveg saumlausar,“ upplýsir Hilmar um ríkulegt vöruúrvalið í Veiðiflugum. Veiðiflugur standa fyrir spennandi nám- skeiðum fyrir veiðimenn og standa bókan- ir yfir nú. „Kastnámskeið Klaus Frimor hefjast í lok maí og í fyrra komust færri að en vildu. Við munum því mæta eftirspurninni betur og koma öllum að í ár,“ segir Hilmar. „Sumarið verður spennandi hjá okkur í Veiðiflugum, búðin er að fá andlitslyftingu og mikið af freistandi nýjungum í boði.“ Þess má geta að Loop-veiðivörurnar fást einnig hjá Veiðivon í Mörkinni. Veiðiflugur eru á Langholtsvegi 111 í Reykjavík. Sími 5271060. Sjá nánar á www. veidiflugur.is og www.fishingflies.is. Spennandi sumar hjá Veiðiflugum Veiðiflugur hafa nú tekið við umboði fyrir hinar heimsfrægu Loop-veiðivörur á Íslandi. Verslunin er ævintýraland fyrir veiðimenn og þar fæst ríkulegt úrval veiðivarnings. Skráningar standa nú yfir á kastnámskeið og von er á nýjum straumflugum frá Jóni Inga. Loop Cross 1 veiðistöngin. Hilmar Hansson með litskrúðugt úrval veiðiflugna í bakgrunni. MYND/DANÍEL Verslunin Útilíf í Glæsibæ hefur öll verið endurnýjuð og nútímavædd. Veiðideildin var í leiðinni stækk- uð og úrvalið aukið. Meðal nýjunga eru bandarísku Sage-stangirnar sem eru landsþekktar fyrir gæði,“ segir vörustjór- inn Örn Hjálmarsson. Hann segir sérstöðu veiðideildar Útilífs vera breitt vöruúrval og sanngjarnt verð. „Hér geta reyndir sem óreyndir veiðimenn feng- ið allan nauðsynlegan búnað. Ódýrasti val- kosturinn er Joakims-flugustangir. Þær eru á verðbilinu 18.000 til 25.000 og eru frábær valkostur fyrir fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í veiðinni,“ segir Örn. Hann segir engu að síður um mjög góða vöru að ræða. „Þessi Asíuframleiðsla er orðin svo miklu betri en áður og þetta er í alla staði mjög frambærileg vara. Stöngunum fylgir aukatoppur svo þeir sem brjóta í byrjun geta skipt um topp og við- haldskostnaður er því lítill.“ Útilíf býður einn- ig flugustangir frá Ross sem eru á verðbilinu 29.900 til 49.900 króna og hafa reynst afar vel. Sage-stangirnar kosta svo frá 49.000 krónum og eru fyrir fólk sem kýs mestu gæðin, en nýja stöngin Sage One er af mörgum talin besta flugustöngin á markaðnum í dag. Í versluninni fæst sömuleiðis allur annar búnaður svo sem flugulínur, veiðiflugur, veiðijakkar, öndunarvöðlur og skór. „Við erum með flugur frá Jóni Inga Ágústssyni en þær þykja bestar á markaðnum. Ég er flugu- hnýtingarmaður sjálfur og hef mikinn metn- að fyrir því að bjóða upp á bestu fáanlegu flugurnar. Þá tökum við við sérpöntunum ef þess er óskað en það er talsvert um það að fólk vilji láta hnýta fyrir sig ákveðnar flugur.“ Örn segir Útilíf jafnframt bjóða úrval kast- stanga, spúna og maðka og ljóst að þar fá veiðimenn allt sem þarf á einum stað. Gott úrval á breiðu verðbili Veiðideild Útilífs í Glæsibæ er ein elsta veiðideild landsins og þar starfa menn með mikla reynslu. Deildin var nýverið stækkuð og úrvalið aukið. Þar geta reyndir sem óreyndir veiðimenn fundið allt sem þarf í veiðina. Flugurnar eru frá Jóni Inga Ágústssyni en auk þess tekur Örn við sérpöntunum. Joakims-stangirnar eru hér fremst, þá Ross og loks Sage. Örn (til hægri) ásamt Ívari Blöndal Halldórssyni, starfsmanni veiðideildar Útilífs. MYND/VILHELM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.