Fréttablaðið - 04.05.2013, Síða 55

Fréttablaðið - 04.05.2013, Síða 55
| ATVINNA | Staða forstöðulæknis FSN í Neskaupstað Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða í stöðu forstöðulæknis við umdæmissjúkrahús Austurlands í Neskaupstað. Forstöðulæknir stjórnar læknisfræðilegum þætti sjúkrasviðs HSA. Um er að ræða 100% stöðugildi. Leitað er að sérfræðingi í lyflækningum með áhuga á að stjórna og þróa sjúkrahúsþjónustu í Neskaupstað. Færni í mannlegum samskiptum er mikilvæg sem og reynsla af stjórnun. Á FSN er rekin lyflækningadeild með tveimur lyflæknum, hjúkrunardeild, handlækningadeild með skurðstofu og svæfingarlækni, fæð- ingarþjónusta og endurhæfingardeild ásamt stoðdeildum. Þar er einnig heilsugæsla fyrir íbúa í Neskaup- stað og á Mjóafirði. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. FSN starfrækir sjúkrasvið HSA. Stofnunin þjónar alls um 10.400 íbúum frá Bakkafirði til Djúpavogs, auk ferða- manna sem sækja Austurland heim. Starfskjör fara eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem fást á vef Embættis landlæknis, www.landlaeknir.is, til HSA, mann- auðsstjóra, Lagarási 22, 700 Egilsstöðum. Umsóknarfrestur er til 31. maí nk. en staðan er laus frá 1. júlí 2013, eða eftir nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar gefa: Stefán Þórarinsson, framkvæmdastjóri lækninga, s. 470-3052/892-3095, tölvup. stefanth@hsa.is og Valdimar O. Hermannsson, rekstrarstjóri FSN, s. 860-6770, tölvup. valdimarh@hsa.is. Við Grunnskólann í Hveragerði er laus staða deildarstjóra sérkennslu. Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Einkunnarorð skólans eru: viska, virðing og vinátta. Í ljósi þessara einkennisorða eru dagleg störf mótuð. Í skólanum eru um 330 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er grænfánaskóli og lögð er áhersla á nýtingu nánasta umhverfis við kennslu. Í þeim tilgangi er starfrækt útikennslustofa og umhverfismálum er vel sinnt. Tónlistar- kennsla er á skólatíma á vegum Tónlistarskóla Árnessýslu. Starfssvið: • Deildarstjóri er millistjórnandi sem hefur mannaforráð og stýrir hluta af skólastarfinu í samráði við skólastjóra. Hann fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegu starfi. Hann hefur umsjón með sérúrræðum nemenda í samráði við kennara og skólastjórnendur og stýrir teymisfundum. Menntunar og hæfniskröfur deildarstjóra sérkennslu: • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði • Viðbótarmenntun í sérkennslufræðum skilyrði • Reynsla af sérkennslu æskileg • Framúrskarandi hæfni í samskiptum • Góðir skipulagshæfileikar • Góð þekking á stoðþjónustu Umsóknarfrestur er til 20.maí. Umsóknir má senda rafrænt á netfangið gudjon@hveragerdi.is eða á skrifstofu skólans Skólamörk 6, 810 Hveragerði. Upplýsingar um starfið veita: Gunnar Baldursson í síma 483 4350 og Fanney Ásgeirsdóttir í síma 846 4797 Skólastjóri Helstu verkefni eru: • Samhæfing ofangreindra skráningarkerfa • Yfirumsjón verkefna • Samhæfing skráningar- og matsferla • Birting upplýsinga • Samskipti við önnur opinber stjórnvöld, hagsmunaaðila og viðskiptavini Hæfniskröfur: • Framhaldsmenntun á sviði verkfræði eða stærðfræði eða annað háskólanám sem nýtist í starfi • Menntun á sviði verkefnastjórnunar er æskileg • Marktæk reynsla af verkefnastjórnun stórra verkefna • Reynsla af uppbyggingu stórra tölvukerfa • Stjórnunarreynsla • Reynsla af því að starfa í umhverfi gæðastjórnunar • Reynsla af öryggisstjórnun upplýsingakerfa æskileg • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt sem og í hóp • Forystuhæfileikar, metnaður og skipulagshæfileikar • Góð kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði og æskilegt er að kunna eitt Norðurlandamál Hjá Þjóðskrá Íslands starfa yfir 100 starfsmenn. Verkefni stofnunarinnar eru mjög fjölbreytt og heldur stofnunin m.a. fasteignaskrá og þjóðskrá, gefur út fasteignamat og brunabótamat, rekur vefinn island.is og sér um útgáfu vegabréfa. Þjóðskrá Íslands leggur metnað sinn í að sinna verkefnum sínum af fagmennsku og áreiðanleika. Stofnunin hefur það að leiðarljósi að starfsmönnum líði vel í starfi og leggur áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn. Gildi stofnunarinnar eru virðing, sköpunargleði og áreiðanleiki. Þjóðskrá Íslands óskar eftir að ráða öflugan og reyndan aðila í starf sviðsstjóra fasteignaskrár Þjóðskrár Íslands. Starfið er á starfsstöð Þjóðskrár Íslands í Reykjavík. Sviðsstjóri fasteignaskrár Þjóðskrár Íslands Um er að ræða fullt starf og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Athygli er vakin á því, að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2013. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurbjörg J. Helgadóttir mannauðsstjóri hjá Þjóðskrá Íslands á netfanginu sjh@skra.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir óskast sendar á netfangið sjh@skra.is. www.skra.is www.island.is Sviðsstjóri fasteignaskrár fer með yfirstjórn fasteignaskrár, sem tekur til skráningakerfis lands, skráningakerfis mannvirkja og tengist matskerfi fyrir fasteignamat og brunabótamat. Sviðsstjóri fasteignaskrár stýrir starfsemi starfseiningarinnar með faglegt öryggi og rekstrarlega hagkvæmni að leiðarljósi í samræmi við hlutverk stofnunarinnar, markmið og starfsáætlanir. Sviðsstjóri mótar vinnu starfseiningarinnar með því að setja hverju viðfangsefni markmið og eftir atvikum mælikvarða, starfsáætlun og að unnið sé samkvæmt gæðakerfi og staðli um öryggisstjórnun upplýsingakerfa. VAKA er eitt fjölhæfasta bílaþjónustufyrirtæki landsins. Helstu áherslur · Akstur bíla · Móttaka flutningsbeiðna · Manna vaktir · Ábyrgð á ástandi bifreiða Hæfniskröfur · Meirapróf · Almenn tölvukunnátta · Gott viðmót og áhugi að bæta sig í starfi · Stundvísi og snyrtimennska · Góð mannleg samskipti · Öguð vinnubrögð Varahlutir Bifreiðaflutningar Úrvinnsla bíla Smurþjónusta VAKA óskar eftir deildarstjóra akstursdeildar Áhugasamir geta sótt um með því að senda umsókn fyrir 17. maí á starf@vakahf.is. Við bjóðum: Fjölbreytt verkefni, gott starfsumhverfi og vel samkeppnishæf laun. Umsækjendur þurfa að geta lagt fram hreint sakavottorð. Dekkjaþjónusta Bifreiðaverkstæði LAUGARDAGUR 4. maí 2013 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.