Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 59

Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 59
Lögfræðingur hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu Fjármála- og efnahagsráðuneytið Helstu verkefni Þá annast skrifstofan Starfið Menntunar- og hæfniskröfur eru þessar helstar Umsóknarfrestur Guðný Harðardóttir óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa á skrifstofu skattamála. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. skrifstofu skattamála varða tekjuöflun ríkissjóðs og mótun stefnu í þeim efnum í samráði við yfirstjórn og aðrar skrifstofur ráðuneytisins. Skrifstofa skattamála annast undirbúning og gerð lagafrumvarpa á sviði skatta og tolla og hefur umsjón með skattalöggjöf almennt. Jafnframt gegnir skrifstofan stjórnsýsluhlutverki gagnvart skattyfirvöldum, tollstjóra og innheimtumönnum ríkissjóðs. greiningu skatta og mat á skattbreytingum með hliðsjón af stefnumótun ríkisfjármála og efnahagsmálum almennt. Skrifstofa skattamála hefur einnig umsjón með gerð tekjuáætlunar fjárlaga ár hvert, eftirfylgni með greiðsluflæði og innheimtu einstakra tekjustofna og gerð langtímaáætlunar um þróun tekna. Á skrifstofunni starfa lögfræðingar, hagfræðingar og viðskiptafræðingar. felur m.a. í sér virka þátttöku í teymisvinnu og vinnu í starfshópum innan og utan ráðuneytisins við undirbúning og gerð lagafrumvarpa, auk margvíslegra annarra verkefna sem falla undir verksvið skrifstofunnar. : * Embættis- eða meistarapróf í lögum. * Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg. * Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti. * Góð kunnátta í ensku er nauðsynleg og kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg. * Reynsla á sviði skattamála er kostur og sömuleiðis þekking á sviði hagfræði eða viðskiptafræði. * Frumkvæði , sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni. * Færni og lipurð í mannlegum samskiptum. er til og með 21 maí nk., en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða fullt starf og til framtíðar. Laun eru skv. kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Einstaklingar af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna. , hjá STRÁ ehf. veitir frekari upplýsingar um störfin. Vinsamlega sendið umsóknir ásamt meðfylgjandi gögnum til stra@stra.is. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tölul. 2. mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 464/1996, með síðari breytingum, sem settar eru með stoð í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. www.stra.is FJÁRMÁLA- OG EFNAHAGSRÁÐUNEYTIÐ Suðurlandsbraut 30 - 108 Reykjavík Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 www.velfang.is • velfang@velfang.is – VERKIN TALA Fr um Starfskraftur á verkstæði óskast Vélfang ehf. er sölu- og þjónustuaðili á sviði vinnu- og land- búnaðarvéla. Helstu vörumerki eru JCB, CLAAS og Fendt. Vélfang var valið Fyrirtæki ársins af VR árin 2007 og 2008 og er Fyrirmyndarfyrirtæki VR. Hjá Vélfangi starfar hópur fólks sem hefur það að markmiði að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu og nú vantar einn í liðið. Við óskum eftir að ráða starfsmann á verkstæði í fullt starf. Reynsla af vélaviðgerðum er æskileg og menntun augljós kostur. Mikilvægt er að viðkom- andi sé jákvæður, með ríka þjónustulund og eigi gott með samskipti við viðskiptavini. Allar upplýsingar veitir Guðmundur í síma 894 0617, en allar umsóknir skal senda á netfangið thjonusta@velfang.is 18. maí. 22 www.vestmannaeyjar.is STARF SKÓLASTJÓRA GRUNNSKÓLA VESTMANNAEYJA Vestmannaeyjabær auglýsir stöðu skólastjóra við Grunnskóla Vestmannaeyja lausa til umsóknar. Leitað er eftir leiðtoga með góða færni í mannlegum samskiptum, menntun og reynslu sem nýst getur til að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í bæjarfélaginu. Nánari upplýsingar veitir Jón Pétursson, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og fræðslusviðs í síma 488 2000 og á netfanginu jonp@vestmannaeyjar.is. Umsóknarfrestur er til 22. maí n.k. Umsóknir má senda rafrænt á fyrrgreint netfang eða skila í Ráðhúsið í Vestmannaeyjum v/Ráðhúströð, 900 Vestmannaeyjar í umslagi merktu: „Umsókn um starf skólastjóra“. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Grunnskólinn í Vestmannaeyjum þjónar nemendum frá 1. – 10. bekk. Starfsstöðvar eru tvær, yngri deild með nemendum í 1. – 5. bekk og miðstig og unglingadeild í annarri starfsstöð. Nemendur eru um 550. Starfsmenn eru metnaðarfullir og reynslumiklir og vinna eftir hugmyndafræðinni „Uppeldi til ábyrgðar“ og „Orð af orði“. Öflugt íþróttastarf er í Vestmannaeyjum og gott samstarf á milli íþróttahreyfingarinnar og grunnskólans. Einnig er lögð mikil áhersla á gott samstarf við forráðamenn nemenda. FYRIR AÐSTOÐ INNANLANDS gjofsemgefur.is 9O7 2OO2 Stuðningsfjölskyldur Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir stuðnings- fjölskyldum fyrir börn og ungmenni eina til tvær helgar í mánuði eða eftir nánara samkomulagi. Greitt er skv verktakataxta. Upplýsingar veitir Dagný Björk í síma 570 1500 á mánudögum og fimmtudögum eða í netfangi dagny@kopavogur.is Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.