Fréttablaðið - 04.05.2013, Page 62

Fréttablaðið - 04.05.2013, Page 62
VESTMANNAEYJASTRENGUR 3 JARÐSTRENGUR, 66kV – Jarðvinna og lagning Landsnet óskar eftir tilboðum í lagningu 66kV jarðstrengs í Austur-Landeyjum og á Heimaey í Vestmannaeyjum og að vinna það annað sem tiltekið er og lýst er í útboðsgögnum VM3-01. Verk þetta er hluti af lagningu nýs 66kV rafstrengs fyrir Vestmannaeyjar, frá Aðveitustöð við Rimakot í Austur- Landeyjum að Tengihúsi við Skansinn í Vestmannaeyjum. Verkið felur m.a. í sér jarðvinnu, þ.e. skurðgröft, vatnsvarnir, fyllingar, slóðagerð, yfirborðsfrágang o.fl., lagningu rafstrengja og fjarskiptaröra, steypuvinnu og vinnu við landtöku sæstrengs, bæði í Austur-Landeyjum og á Heimaey. Helstu magntölur: - Skurðgröftur: 19.000m3 - Framleiðsla á lagnasandi: 4.300m3 - Fyllingar: 25.000m3 - Grjótvarnir: 600m3 - Steypumót: 500m2 - Lágstyrkssteypa 120m3 - Lagning háspennustrengs, 66kV: 5.100m - Lagning fjarskiptaröra: 8.700m Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2013. Útboðsgögn eru til afhendingar frá miðvikudegi 8. maí 2013, kl. 9:00, í afgreiðslu Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík. Tilboðum skal skila í afgreiðslu Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn 21. maí 2013, kl. 14:00, þar sem tilboðin verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðen- dum sem þess óska. ÚTBOÐ VM3-01 ÚTBOÐ Ríkiskaup f.h. Isavia ohf. óskar eftir tilboðum í verkið: Útboð 15450 - Keflavíkurflugvöllur Malbikun akbrauta 2013 Verkið felst í viðgerðum og yfirlögn malbiks á tveimur akbrautum á Keflavíkurflugvelli auk staðbundinnar viðgerðar á þeirri þriðju. Yfirlögn er 5 cm lag af fullþjöppuðu malbiki. Viðgerðir felast í því að fræsa 5 cm niður í núverandi yfirborð og leggja nýtt malbik í staðinn. Jaðar þess yfirborðs akbrauta sem leggja skal yfir er fræst með 4,5m breiðum lás. Um er að ræða akbraut ECHO-4 (yfirlag um 13.000 m2, viðgerðir um 5.400 m2) og akbraut NOVEMBER-3, (yfirlag um 10.000 m2, viðgerðir um 3.400 m2) auk viðgerðar við austur innkeyrslu inn á flughlað Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar á akbraut NOVEMBER-4 (um 600 m2). Verktaki framleiðir malbik og leggur til allt efni sem þarf til verksins ásamt malbikun og flatarfræsun. Helstu verkþættir og magntölur: Malbiks útlögn 32.000 m2 Malbik 4.200 tonn Flatarfræsun 16.300 m2 Verki skal að fullu lokið fyrir 4. júlí 2013. Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.ríkiskaup.is þriðju- daginn 7. maí 2013. Verð útboðsgagna kr. 3.500.- Tilboð verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska 21. maí 2013 kl 11:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík. Aðalfundur Aðalfundur Barnaheilla - Save the Children á Íslandi verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 17:00 á skrifstofu samtakanna að Suðurlandsbraut 24. Á dagskrá eru vejuleg aðalfundarstörf. Athugið að tillaga að lagabreytingu liggur frammi á skrifstofu samtakanna. Félagsmenn samtakanna eru hvattir til að mæta. Stjórn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi Verkefnasjóður sjávarútvegsins, deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði, auglýsir eftir umsóknum um styrki til framhaldsverkefna. Sjóðurinn mun styrkja rannsóknir á sjávarlífverum sem nú eru nytjaðar eða sem mögulegt væri að nytja. Áhersla verður lögð á verkefni sem efla rannsókna- og þróunarstarf á lífríki sjávar og styrkja til lengri tíma litið sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og samkeppnishæfni sjávarútvegs. Þar sem minna fjármagn en verið hefur er til ráð- stöfunar í sjóðnum verða í ár einungis veittir styrkir til framhaldsverkefna. Þeir sem fengu styrk úr sjóðnum við síðustu úthlutun og hyggjast sækja um framhaldsstyrk skulu skila skýrslu um stöðu verkefnisins, ella koma viðkomandi umsóknir ekki til greina við úthlutun. Styrkur nemur að hámarki 50% af áætluðum heildarkostnaði viðkomandi verkefnis og er veittur til eins árs í senn. Umsóknarfrestur er til 31. maí 2013 og skulu umsóknir send ar til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknir skulu einnig berast á rafrænu formi á netfangið hulda@anr.is. Umsóknir sem berast eftir 31. maí verða ekki teknar gildar nema póststimpill sýni að umsóknin hafi verið póstlögð ekki síðar en þann dag. Nánari upplýsingar um sjóðinn og leiðbeiningar um frágang umsókna er að finna á heimasíðu atvinnuvega- og nýsköpunar ráðuneytisins anr.is Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið Umsóknir um framhaldsstyrki úr Verkefnasjóði s j á v a r ú t v e g s i n s Ím yn d u n ar af l / A N R Suðurlandsbraut 48 • 108 Reykjavík • Sími: 585 0100 • Fax: 585 0109 huseign@huseign.is • www.huseign.is Baldvin Ómar Magnússon - Löggiltur fasteignasali Opið hús Brekkubyggð 17, Garðabæ, í dag kl. 14-15 Húseign kynnir;- Fallega, bjarta 2ja herbergja íbúð í Garðabæ með sérinngangi í klasahúsi. Gott alrými, eldhús og baðherbergi, stórt hjónaherbergi og auka vinnuherbergi, sér geymsla. Allir velkomnir, Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898-1177. OPIÐ HÚS Laxatunga 24-34 Mosfellsbæ Vorum að fá í sölu raðhúsalengju við Laxatungu 24-34 í Mos- fellsbæ. 243,5 m2, 5 herbergja raðhús á tveimur hæðum með bílskúr við Laxatungu í Mosfellsbæ. Húsin eru vel staðsett með góðu útsýni. Tvær svalir. Stórar stofur. Fjögur rúmgóð svefnherbergi. Björt rými og stórir gluggar. Húsin eru rúmlega fokheld í dag og afhendast í núverandi ástandi. Verð 24,0 til 25,2 m. Hulduhlíð 9 Mosfellsbæ Rúmgóð 84,1 m2, 3ja herbergja endaíbúð á jarðhæð með sér inngangi og garði við Hulduhlíð 9 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Eignin er laus til afhendingar strax. V. 23,0 m. Litlikriki 33 neðri hæð – Mosfellsbæ 2ja herbergja, 60,0 m2, íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi við Litlakrika 33 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, geymslu, baðherbergi og þvottahús. Eignin er laus til afhendingar strax. V. 16,5 m. Kvíslartunga 62 Mosfellsbæ 240,2 m2 raðhús á tveimur hæðum við Kvíslartungu 62 í Mos- fellsbæ. Á jarðhæð er forstofa, stofa, sjónvarpshol og eldhús. Á 2. hæðinni eru fjögur góð svefnherbergi, fataherbergi, stórt baðherbergi og þvottahús inn af baði. Ýmis frágangur er eftir í húsinu. Verð kr. 36,0 milljónir. Hafið samband við Einar Pál s. 899-5159 eða Svanþór s. 698-8555 varðandi skoðun. KJARNA - ÞVERHOLTI 2 • 270 MOSFELLSBÆ • SÍMI: 586 8080 • FAX: 586 8081 WWW.FASTMOS.IS Ti l sö lu 3ja he rb. 2ja he rb. Nýtt á skrá Nýtt á skrá Nýtt á skrá Nýtt á skrá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.