Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 90

Fréttablaðið - 04.05.2013, Side 90
4. maí 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 46TÍMAMÓT Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, KARL KETILL ARASON áður Akri, Innri-Njarðvík, sem lést föstudaginn 26. apríl verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, þriðjudaginn 7. maí kl. 13.00. Hlöðver Reyr Sandra Sveinsdóttir Þorsteinn Karlsson Emebet Dibiwak Ásgerður Hrönn Karlsdóttir Matthew Doe barnabörn, barnabarnabarn og systkini hins látna. Fjölbreytt úrval legsteina Frí áletrun og uppsetning Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88 Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum) Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði www.granithollin.is Sími 555 38 88 Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA EGGERTS ODDSDÓTTIR Holtateig 44, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar þriðjudaginn 30. apríl. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. maí kl. 13.30. Sveinn Heiðar Jónsson Ragnheiður Sveinsdóttir Hrafn Þórðarson Fríða Björk Sveinsdóttir Jóhann Ómarsson Lovísa Sveinsdóttir Heiðar Jónsson Erlingur Heiðar Sveinsson Rósa Björg Gísladóttir ömmubörn og langömmubarn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALSTEINA SUMARLIÐADÓTTIR áður til heimilis að Skálholti 17, Ólafsvík, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri Ólafsvík að kvöldi 29. apríl. Útförin fer fram frá Ólafsvíkurkirkju mánudaginn 6. maí klukkan 14.00. Þórður Þórðarson Egill Þórðarson Yoko A. Þórðarson Þórður Þórðarson Kari H. Raa Karítas Anna Þórðardóttir Guðjón Elísson Svanfríður Þórðardóttir Björn Arnaldsson Guðríður Þórðardóttir Björn H. Hilmarsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs mannsins míns, föður okkar, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, BJÖRNS GUNNARSSONAR nuddara, Byggðavegi 151, Akureyri. Sérstakar þakkir til organista og kórs Akureyrarkirkju. Sigríður Olgeirsdóttir Birna Kristbjörg Björnsdóttir Jóhann Þröstur Þórisson Ragna Árný Björnsdóttir Birgir Þór Ingólfsson Áshildur Eygló Björnsdóttir Björn Halldór Björnsson Aðalheiður S. Jóhannesdóttir Aðalheiður Hanna Björnsdóttir Hallur Kristmundsson Gestur Gunnar Björnsson Helga Guðrún Pálsdóttir Unnur Lovísa Steinþórsdóttir Gissur Árdal Hauksson Olgeir Steinþórsson Steinþór Andri Steinþórsson barnabörn og barnabarnabörn. 1803 Bjarni Bjarnason og Steinunn Sveins- dóttir frá Sjöundá á Rauðasandi eru dæmd til lífláts fyrir að myrða maka sína ári áður. 1880 Jón Sigurðsson forseti og Ingi- björg Einarsdóttir kona hans eru jarðsett í Reykjavík við hátíðlega athöfn. 1924 Sumarólympíuleikar eru settir í París. 1979 Margaret Thatcher verður fyrsta konan til þess að taka sæti forsætisráðherra Bretlands. 1986 Sólveig Lára Guðmundsdóttir verð- ur fyrst íslenskra kvenna til að sigra í prests- kosningum er hún var kjörin prestur á Sel- tjarnarnesi. 1990 Lettland lýsir yfir sjálfstæði. SOLVEIG LÁRA GUÐ- MUNDSDÓTTIR, sóknarprestur á Möðru- völlum. MERKISATBURÐIR „Þetta er mesti aldur sem ég náð,“ segir Jakob Frímann Magnússon hress, spurður hvernig honum hugnist að vera sextugur. „Mér líður engan veginn, andlega né líkamlega, eins og ég ímynda mér að mönnum hafi liðið á þessum aldri, á fyrri hluta síð- ustu aldar, hvað þá áður. Menn bjugg- ust ekkert við því að verða sextugir fyrr á öldum, þá urðu menn þrjátíu og fimm og lífið var búið. Nú eru lifnað- arhættir okkar og öll upplýsing með öðrum hætti. Þegar Bill Clinton hélt á nýfæddum syni Tony Blair, í opin- berri heimsókn til Bretlands 1997, sagði hann: „Lífslíkur þessa drengs eru 120 ár.“ Mér hugnast ekkert illa sú tilhugsun að lífslíkur manna hér á þessum stað í veröldinni verði 120 ár, jafnvel þó þeir hafi fæðst um miðja síðustu öld.“ Jakob kveðst ekki endilega dvelja mikið við árafjöldann, heldur vilja halda upp á þau gleðilegu tímamót að á þessum mánaðardegi fyrir fjöru- tíu árum hafi konan hans, Birna Rún Gísladóttir, fæðst og að fyrir nákvæmlega tólf árum hafi þau hist. „Og nú tveimur börnum síðar og ham- ingju í hæsta veldi þá ætlum við að staðfesta heit okkar á þessum drottins degi, sem ber upp á samtals hundrað ára afmæli okkar beggja. Þetta verð- ur brúðkaupsdagurinn okkar og dag- urinn sem lausaleiksstatus barnanna okkar lýkur,“ lýsir hann. Jakob segir einskæra tilviljun hafa ráðið því að þau Birna Rún hittust þennan mánaðardag árið 2001. „Við vorum bæði stödd á sama veitinga- stað án þess að vita hvort af hinu,“ segir hann og upplýsir að sá staður sé í miðborginni en vill ekki gefa upp nafnið á honum, stöðu sinnar vegna. „Sameiginlegur vinur okkar kveikti á því að við værum bæði að halda upp á afmælin okkar. Þetta var heillastað- ur og heillastund og ég lít á það sem mikla gæfu að hafa verið leiddur á vit þessarar heilladísar.“ Þau Jakob og Birna Rún eiga saman dæturnar Jarúnu Júlíu fimm ára og Katrínu Borg sem verður níu mánaða á mánudaginn. Níu mánuðum síðar getur svo auðvitað allt gerst enda brúðkaupsnóttin fram undan! „Ég er reiðubúinn á mig blómum að bæta,“ segir Jakob glaðlega þegar barnamál- in ber á góma. Um brúðkaupið vill Jakob ekki upp- lýsa of mikið. Hann segir mannfjölda þar stillt í hóf. „Við ætlum bara að gleðjast með nánustu fjölskyldu og samferðamönnum. Kirkjubrúðkaup? Nei, þetta verður öðru vísi í laginu og að sumu leyti óhefðbundið, eins og ýmislegt okkur tengt. Þetta er og á að vera dálítið prívat og auðvitað heilög stund.“ gun@frettabladid.is Hamingja í hæsta veldi Það er stór dagur í lífi Jakobs Frímanns Magnússonar, framkvæmdastjóra miðborgarmála, í dag. Á sextíu ára afmæli sínu kvænist hann elskunni sinni, hinni fertugu Birnu Rún Gísladóttur og saman fagna þau hundrað ára afmæli. TURTILDÚFURNAR Jakob Frímann og Birna Rún ætla að ganga í það heilaga í dag og gleðjast með nánustu fjöl- skyldu og samferða- mönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Kvennakórinn Heklurnar í Mos- fellsbæ á 10 ára afmæli á þessu ári og heldur vortónleika í Lágafellskirkju í dag klukkan 17 og ætlar þar að vígja nýja kórkjóla sem hönnuður í kórnum á heiðurinn að. Þann 16. maí leggur hann upp í fimm daga ferðalag til Ítalíu í til- efni afmælisins. Vilborg Þórhallsdóttir er stjórnandi kórsins. Hún segir lagaval- ið á vortónleikunum helgast að nokkru af Ítalíuferðinni sem fram undan er. „Helmingur laganna er íslensk þjóð- lög og hitt eru einkum vel valin íslensk dægurlög.“ En hvernig er ferðaáætl- unin? „Við fljúgum til München, tökum rútu til Bolzano á Norður-Ítalíu og þurf- um helst að hafa kóræfingu kvöldið sem við komum út, því við fáum undirleikara þar. Svo er planað að syngja í kirkjum og líka hér og þar, óundirbúið,“ segir Vil- borg. „Við erum í sambandi við íslenska konu sem er að skipuleggja með okkur tónleikana, útvega undirleikara og kór til syngja með.“ Þetta er fyrsta utanlandsferð Heklanna í tíu ára sögu kórsins en Vil- borg hefur farið í kórferðalög síðan hún var sextán ára og finnst það skemmti- legustu ferðalög sem hún fer í. gun@ Til Ítalíu í nýjum kórkjólum Heklurnar eru með vortónleika í Lágafellskirkju í dag og fl jótlega halda þær til Ítalíu í afmælisferð. HEKLURNAR Kórinn fagnar tíu ára afmæli á árinu og syngur fyrir Ítali í tilefni þess. En fyrst fyrir Íslendinga í dag. MYND/ÓLAFUR JÓN THORODDSEN KÓRSTJÓRINN Vilborg Þórhallsdóttir segir kórferðalög þau skemmtilegustu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.