Fréttablaðið - 09.08.2014, Page 72
KYNNING − AUGLÝSINGSafar og þeytingar LAUGARDAGUR 9. ÁGÚST 20144
FROSTPINNI MEÐ ÁVÖXTUM
Börn elska frostpinna. Ef maður
býr sjálfur til frostpinna veit
maður nákvæmlega hvað hann
inniheldur. Litríkur, sætur og
góður frostpinni er ljúfur ef
veður er gott, en einnig ef börn
eru lasin og þurfa hollan vökva.
Þessi uppskrift dugar fyrir átta
frostpinna.
Það sem þarf:
4 kíví
1 stór mangó
400 g hindber
Sykurlögur
1 ½ dl vatn
2 msk. sykur
Sjóðið vatn og sykur þar til allur
sykur er leystur upp.
Notið blandara eða töfrasprota
til að mauka ávextina, hverja
tegund í einu. Fyrst kíví, síðan
mangó og loks hindberin.
Hindberjamaukið þarf að sigta.
Gott er að hafa ávextina vel
þroskaða.
Setjið örlítið af sykurlegi í
hverja ávaxtablöndu.
Setjið kívímaukið fyrst í
frostpinnamót og frystið í
30-40 mínútur. Setjið spýtuna í
blönduna þegar hún byrjar að
harðna. Þá er mangómaukið sett
í og mótið sett aftur í frystinn í 20
mínútur. Loks er berjamaukið sett
í formið og látið vera í frysti þar til
allt er frosið í gegn.
DRYKKUR SEM
HREINSAR LÍKAMANN
Hér er uppskrift að afar hollum
drykk sem er sagður hafa góð
áhrif á meltinguna og hreinsa
líkamann. Það er um að gera að
prófa þennan drykk núna þegar
grænmetið er ferskt og gott.
Það sem þarf í þennan drykk:
3 gulrætur
3 grænkálsblöð
2 stilkar sellerí
2 rauðrófur
1 næpa
½ poki spínat
½ kálhaus
Lúka af ferskri steinselju
½ laukur
2 hvítlauksrif
Setjið allt í matvinnsluvél með
smávegis vatni og þessi holli
drykkur verður tilbúinn til neyslu.
Annar hollur drykkur sem er
góður til hreinsunar líkamans er
sítrónudrykkur. Hann er auðvelt
að gera.
Þótt safar og þeytingar séu yfirleitt að
stærstum hluta byggðir á hollu innihaldi
eins og ávöxtum, grænmeti og skyri má að
sjálfsögðu fríska upp á drykkina með ýmsum
hætti. Súkkulaði og kakó er til dæmis frábær
kostur til að fríska upp á annars bragðgóða
og holla drykki. Hér er ein einföld og góð
uppskrift sem minnir vafalaust marga á gamla
góða súkkulaðisjeikinn úr ísbúðinni í gamla
daga.
1 frosinn banani
Kalt vatn
1 dl kókosmjólk
2 skeiðar súkkulaðiprótein duft
1-2 tsk. hreint kakó
Allt hráefnið er sett í blandarann fyrir utan
próteinduftið sem er sett út í síðast svo ekki
verði of mikið loft í drykknum. Þegar búið er
að blanda öllu vel saman og bananinn hefur
maukast vel er duftinu bætt út í. Drykknum er
hellt í hátt glas og röri stungið í. Sannarlega
ískaldur, hollur og góður svaladrykkur sem
gott er að gæða sér á úti á svölum eða bara
uppi í sófa. Heimild: heilshugar.com
SÚKKULAÐI Í ÞEYTINGINN