Fréttablaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
Vegna forfalla vantar
umsjónarkennara á miðstig.
Leitað er að einstaklingi með kennsluréttindi, góða
skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Umsækjandi
þarf að geta hafið störf 3. nóvember. Auðarskóli er
samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, sem staðsettur
er í rólegu umhverfi í Búðardal. Í skólanum er áhersla
lögð á sveigjanlega kennsluhætti, einstaklingsmiðað
nám, ábyrgð nemenda og samvinnu allra aðila. Aðstaða
í skólanum er góð. Viðamiklar upplýsingar um skólann
má finna á vefsvæði hans; http://www.audarskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Starfið
hentar jafnt körlum sem konum.
Upplýsingar gefur Eyjólfur Sturlaugsson skólastjóri á
netfanginu eyjolfur@audarskoli.is eða í síma 434 1133.
Umsóknir og ferilskrár skal senda á fyrrgreint netfang.
Garðyrkjufræðingur
Lystigarður Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða samvisku-
saman og drífandi garðyrkjufræðing sem verkstjóra í mjög fjöl-
breytt 100% starf við Lystigarðinn á Akureyri.
Helstu verkefni eru:
• Verkstjórn við nýframkvæmdir, ræktun og viðhald.
• Fræsöfnun, hreinsun og fræafgreiðsla.
• Ræktun og uppeldi fjölæringa, trjáa, runna og sumarblóma.
• Útplöntun fjölæringa, trjáa og runna og sumarblóma.
• Trjá og runnaklippingar.
• Umhirða og viðhald handverkfæra, véla og tækja.
• Eiturúðun gegn plöntusjúkdómum og illgresi.
• Uppfæra teikningar af beðum.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2014
Áfengis og vímuefnaráðgjafar
SÁÁ óskar eftir Áfengis og vímuefnaráðgjöfum
til náms eða starfa. Stúdentspróf æskilegt.
Nánari upplýsingar veitir Hjalti Björnsson dagskrárstjóri
í síma 824 7620, netfang hjalti@saa.is
Skriflegar umsóknir sendist á Sjúkrahúsið Vog Stórhöfða 45,
112 Reykjavík, merktar „ráðgjafi“ fyrir 1. október n.k.
Dagvinna – fjölbreytt verkefni –
þjálfun – sveigjanlegur vinnutími
Vegna aukinna verkefna vantar okkur fleiri þjónustulipra
sölufulltrúa í dagteymið okkar.
25 ára+ og fólk með reynslu gengur fyrir.
Upplýsingar í s. 647 4700
og dagvinna@simstodin.is
Okkur vantar hressan hárgreiðslusvein til starfa.
Einnig möguleiki á stólaleigu. upplýsingar í síma
565-5530 eða 699-0979
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík
Sími 525 7000 | www.eimskip.is
Eimskip vill ráða vélstjóra með full STCW réttindi á skip félagsins.
Almennt gildir að siglt er í tvær vikur og frí í tvær vikur.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Full réttindi STCW samkvæmt reglum lll/2
• Nauðsynlegt að geta unnið undir álagi
• Jákvæðni, þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
• Íslenskukunnátta
• Hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðni Sigurmundsson, í síma 525 7162.
Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2014.
Sótt er um starfið á heimasíðu Eimskips, www.eimskip.is
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Vélstjóri á flutningaskip
Hjá Eimskip starfar fjölbreyttur og skemmtilegur hópur öflugra starfsmanna og nú
leitum við að einstaklingi til að slást í þann hóp og takast á við spennandi starf.
Kröfur
Háskólapróf í rafmagnsverkfræði eða tæknifræði,
meistaragráða kostur.
Góð þekking og reynsla á raforkumarkaði æskileg.
Góð tölvukunnátta og kunnátta í líkanreikningum.
Nákvæmni og góð tilfinning fyrir rituðu máli, bæði
íslensku og ensku.
Samskiptahæfni og frumkvæði.
Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi.
HS ORKA leitar að öflugum liðsmanni
til starfa á framleiðslu- og sölusviði fyrirtækisins
Helstu verkefni
Áætlanagerð til lengri og skemmri tíma
um raforkuframleiðslu, -kaup og -sölu.
Úrvinnsla gagna úr upplýsingakerfum.
Uppgjör orkuviðskipta.
Samskipti við aðila á raforkumarkaði.
Hagkvæmnimat verkefna.
HS ORKA hefur verið leiðandi í framleiðslu endurnýjanlegrar orku í 40 ár
og ætlar sér enn stærri hluti í framleiðslu á orku á umhverfisvænan hátt samfélaginu til hagsbóta.
Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu á sínu sviði.
Fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið í Svartsengi og Reykjanesvirkjun sem
eru grundvöllur Auðlindagarðs hvar markmiðið er að öllum straumum sé breytt í verðmæta
auðlindastrauma.
Nánari upplýsingar veitir Petra Lind Einarsdóttir starfsmannastjóri.
Frekari upplýsingar um fyrirtækið er hægt að nálgast á www.hsorka.is.
Umsækjendur sækja um starfið á heimasíðu fyrirtækisins.
Umsóknarfrestur er til og með 3. október 2014.
www.hsorka.is
20. september 2014 LAUGARDAGUR8