Fréttablaðið - 20.09.2014, Blaðsíða 70
FÓLK|BÓLSTRUN
Húsgögn og fallegir munir hafa alltaf verið mitt aðaláhugamál, alveg frá því ég byrjaði að tala,“ segir
Andrés James sem uppgötvaði undraheim
húsbúnaðar á heimili ömmu sinnar og afa.
„Heimili þeirra var rosa flott í seventísstíl
þar sem allt var í tekki og palisander.“
Andrés segist bera mikla virðingu fyrir
hönnun fyrri tíma. „Ég vil halda á lífi
hönnunarbyltingu sem aldrei mun koma
aftur, þegar trésmiðir smíðuðu húsgögn í
höndunum og hægt var að fá tekkmublur
án eins einasta nagla.“
TVÍBURASTÓLAR SAMEINAST
Fyrsti stóllinn sem Andrés lét bólstra var
stóll úr eigu ömmu hans. „Ég fékk hann
þegar ég var nítján ára en hann var lengi
í geymslu hjá mér. „Þegar ég var að skoða
gamlar myndir heima hjá ömmu og afa
rakst ég á alveg geðveikan rauðan stól og
spurði afa út í hann. Hann sagði mér að
þetta væri brúni flauelsstóllinn sem ég
hefði fengið en hann hefði áður verið rauð-
ur. Strax daginn eftir fór ég með hann til
bólstrara og lét yfirdekkja hann í rauðu,“
segir Andrés. Hann dreymdi alla tíð að
eiga annan alveg eins stól. „En ég vissi að
það væru litlar líkur á því enda hafði afi
keypt hann frá Danmörku.“ Upp á von og
óvon þræddi Andrés reglulega nytjamark-
aði og Góða hirðinn og fyrir tveimur árum
datt hann í lukkupottinn. „Í Góða hirðinum
fann ég alveg eins stól og keypti hann á
fimm hundruð krónur. Ég hef aldrei séð
svona stól hvorki fyrr né síðar.“
Á 38 STÓLA Í HEILDINA
Andrés hefur látið bólstra og gera upp í
kringum fjórtán stóla. Allir utan fimm eru
komnir í notkun á fallegu heimili hans og
Gulla, mannsins hans. Í heildina á Andrés
hins vegar 38 stóla af ýmsum gerðum og
nokkrir bíða þess að komast í yfirhaln-
ingu. „Ég pæli oft lengi í því hvað mig lang-
ar að gera við stóla. Svo þegar mig vantar
verkefni og eitthvað að hlakka til þá fer ég
með stól til bólstrarans.“
Andrés fer alltaf til sama bólstrarans,
Lofts hjá Bólsturverki, en er fastagestur á
lagerum hjá hinum ýmsu bólstrurum. „Þar
getur maður fundið mestu gullmolana.“
■ solveig@365.is
Á FJÓRTÁN UPPGERÐA STÓLA
FALLEGT HEIMILI Innanhússarkitektinn Andrés James Andrésson finnur hamingju í fallegum húsgögnum. Hann þræðir nytjamark-
aði og lagera hjá bólstrurum þar sem margir gullmolar leynast. Hann hefur næmt auga fyrir því hvernig gamlir og lúnir stólar geti
eignast nýtt líf með umhyggju og bólstrun. Sjálfur á hann ógrynni af stólum og stóran hluta þeirra hefur hann látið gera upp.
HÁRAUTT PAR Andrés James við uppáhaldsstólana sína sem hann lét bólstra
með rauðu leðri. MYNDIR/GVA
FRÁ ÖMMU
„Þessir stólar
koma frá ömmu
minni og eru
frá 1968. Ég lét
bólstra þá með
grænu flaueli frá
1970 sem búið
er til úr geita-
hárum.“
Fabio Del Percio, bólstrari og hönnuður, flutti hingað til Íslands fyrir þremur
árum frá Ítalíu eftir að hafa
fallið fyrir landinu á ferðalagi.
„Mig langaði einfaldlega til að
búa hér,“ segir hann en hann
rekur bólstrunarverkstæðið
Hver Design á horni Bergstaða-
strætis og Hallveigarstígs.
BÓLSTRUN OG SÉRSAUMUÐ
GLUGGATJÖLD
Fabio hefur starfað við bólstrun
í tuttugu ár og sérhæft sig í
bólstrun antikhúsgagna og að
stoppa upp með gormum og
júta-striga en fæst einnig við
bólstrun nútímahönnunar með
nútímaefnum. Á verkstæðinu
sinnir hann alhliða bólstrun
fyrir einstaklinga, veitingastaði
og hótel. Þá sérsaumar hann
gluggatjöld og rúllugardínur
eftir máli og óskum viðskipta-
vina og sérhæfir sig einnig í að
bólstra sérsmíðuð húsgögn.
Fabio er í samvinnu við skipa-
smíðastöðvar í Þýskalandi,
Ítalíu, Frakklandi og Íslandi en
hann saumar allt textílverk fyrir
báta og snekkjur, allt frá dýnum
og púðum til gluggatjalda og
yfirbreiðslna.
Á verkstæðinu er að finna
úrval ítalskra efna, svo sem hör,
flauel, bómull, silki og leður.
Þá flytur Fabio sérstaklega
inn ullarefni frá Val d’Aosta á
Norður-Ítalíu en það svæði er
þekkt fyrir handofin gæðaefni.
Hann er einnig þekktur fyrir að
nota óhefðbundin efni, svo sem
plast, notað leður eða teppi og
endurvinnanleg efni.
HLJÓÐIN Í HÖFNINNI URÐU AÐ
MUNSTRI
Ísland hefur orðið Fabio inn-
blástur að eigin vörulínu. Hann
hefur meðal annars látið fram-
leiða bæði áklæði til bólstrunar
og værðarvoðir með sérstöku
munstri sem hann kallar Sound
of Iceland.
„Munstrið vann ég í samstarfi
við arkitektinn Önnu Giudice.
Við tókum upp hljóðin í höfn-
inni við Arnarstapa og létum
vefa hljóðbylgjuna í íslenska ull
annars vegar og í ullarblöndu
hins vegar. Værðarvoðirnar eru
framleiddar á Ítalíu með sér-
stakri tækni svo litirnir snúast
við á hinni hliðinni,“ útskýrir
Fabio.
Verkstæðið er opið virka
daga frá klukkan 11 til 18. Nán-
ari upplýsingar er að finna á
hver-design.com eða í síma 857
7924 og 561 8193.
ÍSLAND VEITIR INNBLÁSTUR
HVER DESIGN KYNNIR Fabio Del Percio rekur bólstrunarverkstæðið Hver Design ehf. að Bergstaðastræti 10. Þar yfirdekkir hann
húsgögn og sérsaumar gluggatjöld auk þess að hanna eigin húsgagnalínu og textílmunstur.
ANTIK OG NÝ HÖNNUN Fabio sérhæfir sig í bólstrun á antikhúsgögnum og nýrri
hönnun. Hann sérhæfir sig einnig í að bólstra sérsmíðuð húsgögn.
MYND/FABIO DEL PERCIO
500 KALL
„Grindina af
þessum íslenska
stól fékk ég á
nytjamarkaði
á Selfossi fyrir
500 kr.”
VERKEFNI „Ég á
átta svona stóla sem
ég fann á Barnalandi.
Ég á eftir að
ákveða hvað
mig langar að
gera við þá.”